Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 13

Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 13
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 13 Steingrímur Jónsson, bóndi á Efri-Engidal í Skutulsfirði, segir niðurstöður beitartilraunar í daln- um breyta litlu og leitar réttar síns með aðstoð lögmanns. Beit- artilraunin sem gerð var í ná- grenni við sorpbrennslustöðina Funa í Skutulsfirði sýnir að svæðið hentar aftur til búfjár- halds og ætlar Matvælastofnun að aflétta banni á nýtingu fóðurs. Ráðlegt er þó talið að vakta af- urðir fyrst um sinn, sérstaklega er varðar kýr og hross. Steingrímur segir í samtali við Fréttablaðið að þrátt fyrir að nið- urstöðurnar segi að fóðra megi skepnurnar þá sé nýr bústofn eins og hann átti fyrir ekki galdraður fram, enda myndi það kosta fimm til átta milljónir að kaupa hann aftur. Hann felldi allan sinn bú- stofn: 80 kindur og 19 nautgripi. Eins var 200 kindum fargað frá öðrum bændum í dalnum. Matvælastofnun (MAST) skip- aði fyrir ári sérfræðihóp til að meta áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Skutulsfirði. Hópur- inn skilaði skýrslu í vor þar sem lagt var til að gerð yrði beitartil- raun til að ganga úr skugga um hvort gripir sem þar ganga tækju upp díoxín úr gróðri á svæðinu. Þrjár ær og fjögur lömb voru á beit í sérstöku hólfi í landi Kirkju- bóls í Engidal. Þeim var slátrað í haust til efnagreiningar og sýna- töku. Þess má geta að Umhverf- isstofnun hafði fyrr gefið út að jarðvegur á svæðinu væri hættu- laus, og höfðu bæjaryfirvöld á Ísafirði gert athugasemdir vegna þess að stofnanirnar væru tvísaga um hvort landið væri nýtanlegt. Niðurstaða beitartilraunarinn- ar er að þó að mengun sé enn til staðar, er ekki talið tilefni til að ætla að sauðfé taki lengur upp mikið magn díoxíns í gegnum beitina á svæðinu. Gert er ráð fyrir að áfram dragi úr mengun, en sorpbrennslustöðin er ekki lengur í rekstri. Kjartan Hreins- son, sérgreinadýralæknir hjá MAST, segir í samtali við Frétta- blaðið niðurstöðuna þá bestu úr því sem komið var í vondri stöðu. Banni til framleiðslu og sölu af- urða sé aflétt. „Það þarf samt eitthvað að fylgjast með þessu. Díoxín mælist aðeins hærra en í landinu almennt en þau eru undir öllum viðmiðunargildum.“ Hæsta gildið sem mældist í beitartilrauninni var 60% yfir að- gerðarmörkum, en fari matvæli yfir þau mörk, ber að leita uppsprettu og draga úr losun út í umhverfið. „Ég held að þetta sé mjög góð niðurstaða fyrir búskap á þessu svæði,“ segir Kjartan. Leitar réttar síns Minni áhorfendastúka í skoðun Fram hefur komið sú hugmynd að fyrsti áfangi byggingu áhorf- endastúku á Torfnesi verði minn- kaður þannig að í fyrstu verði einungis gert ráð fyrir 300 manna stúku. Hún yrði þar af leiðandi mun styttri og kostnaður yrði væntanlega minni sem því nemur en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 36 milljóna króna kostnaði við fyrsta áfanga. Þetta kemur fram í minnisblaði Daníels Jakobsson- ar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, sem lagt hefur verið fyrir bæjar- ráð. Um nokkurt skeið hefur Hér- aðssamband Vestfirðinga í sam- starfi við Boltafélag Ísafjarðar, Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar og áhugamannafélag um bygg- ingu stúku átt í viðræðum við Ísafjarðarbæ um aðkomu bæjar- ins að byggingu áhorfendastúku og aðstöðu fyrir skotíþróttamenn. Félagið hafði í hyggju að byggja rúmlega 500 manna stúku með 50 metra langri skotbraut fyrir skotíþróttamenn í rými undir stúkunni. Eins og kunnugt er setur Knatt- spyrnusamband Íslands (KSÍ) fram ákveðnar kröfur um aðstöðu og aðbúnað fyrir þau félög sem keppa í deildarkerfinu í knatt- spyrnu. Fram að þessu hefur fé- lögum verið veittur frestur til framkvæmda en nú hefur KSÍ ákveðið að ekki verði veittir frek- ari frestir en til 2012. Þó er KSÍ heimilt að veita félagi sem kemur upp í 1. deild í fyrsta skipti eftir 2006 eins árs aðlögunartíma ef samþykktur leikvangur finnst ekki innan hæfilegrar fjarlægðar frá aðsetri félags. Sá tími er út- runninn hjá BÍ. Til að mega spila í fyrstu deild er gerð krafa um að völlurinn uppfylli kröfur samkvæmt C flokki sem þýðir að vellir þurfa að hafa 300 aðskilin sæti. Ekki er gerð krafa um yfirbyggð sæti. Áhugamannafélag um bygg- ingu stúkunnar fór fram á að Ísa- fjarðarbær myndi leggja til 10 millj- ónir króna til byggingar rúmlega 500 manna áhorfendastúku með aðstöðu undir henni fyrir skotfé- lagið. Í minnisblaði bæjarstjóra er nú óskað eftir afstöðu bæjarins til þess hvort hugsanlegt sé að bærinn komi að byggingu áhorf- endastúkunnar þannig að gert verði ráð fyrir að heildarkostn- aður við bygginguna yrði 21 milljónir. Bærinn myndi leggja til þriðjung þess eða 7 milljónir krónur, þar af yrði lóð og bygg- ingarleyfisgjöld metin á 1 milljón króna en afgangurinn greiddur í tvennu lagi, 3 milljónir króna á þessu ári og þrjár á næsta ári. KSÍ kæmi svo með 7 milljónir króna og BÍ og Skotfélagið með afganginn. Þá yrði hluti vinnunn- ar væntanlega unninn í sjálfboða- vinnu. Við verklok fyrsta áfanga myndi Ísafjarðarbær eignast mannvirkið. „Áætlaður rekstrar- kostnaður er óverulegur en hug- myndir eru uppi að byggja mannvirkið þannig að viðhalds- kostnaður sé í lágmarki. Ekki er gert ráð fyrir að rýmið undir stúk- unni sé upphitað í fyrsta áfanga,“ segir í minnisblaði bæjarstjóra. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á erindinu og verður það tekið aftur fyrir í bæjarráði síðar. – thelma@bb.is Torfnesvöllur. Engidalur í Skutulsfirði. Alls voru taldir 17.500 fuglar af 35 tegundum í árvissri vetr- artalningu á fuglum á norðan- verðum Vestfjörðum. Talið var í Bolungarvík, á Óshlíð, í Skut- ulsfirði, Álftafirði, Súganda- firði, Önundarfirði og í Dýra- firði í kringum áramótin. Mest var æðarfugli eða tæplega 10 þúsund fuglar. Hávellur voru rúmlega 1600, hvítmáfar 1220, ógreindir máfar (hvít- eða bjartmáfar) 1040, snjótittlingar tæpir 1100 og aðrar tegundir voru undir þúsund. Af flækingum voru þrír æðar- kóngar, tveir gráþrestir og einn svartþröstur. Sá síðast nefndi er reyndar varpfugl á Íslandi en telst frekar til flækingsfugla á Vest- fjörðum. Óvenjulega stór hópur (30) sást af lómi í Önundarfirði. „Það náðist ekki að telja eitt svæði og tvö voru aðeins talin að hluta. Eitt svæðið er Óshlíðin en vegna snjóflóða var leiðin alveg ófær. Samt náðist að telja 1/3 af því svæði. Öll svæðin voru talin úr bíl nema eitt sem var Tungudalur á Ísafirði, það svæði var talið á gönguskíð- um,“ segir á vef Náttúrustofu Vestfjarða sem hafði umsjón með talningunni. Nánari upp- lýsingar um fjölda fugla má finna á nave.is. Mest af æðarfugli meðal vetrarfugla Óvenjulega stór hópur sást af lómi í Önundarfirði.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.