Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.02.2012, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 09.02.2012, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012 Það mátti hels ekki sjást í gól Hljómsveit Baldurs Geirmunds- sonar breytti um nöfn eftir því sem söngvararnir komu og fóru. Því varð þessi nokkurnveginn sama sveit þekkt undir ýmsum nöfnum en reis hvað hæst á þeim árum sem hún hét BG og Ingi- björg. Þá sendi hljómsveitin frá sér lög sem allir þekkja og eru löngu orðin vörður í íslenskri tónlistarsögu; Þín innsta þrá og Mín æskuást. Blaðamaður BB hitti Baldur og fékk að fylgja hon- um frá æskustöðvunum í Fljóta- vík, þvers og kruss um landið og loks inn í Edinborgarhúsið þar sem hann var útnefndur bæjar- listamaður Ísafjarðarbæjar, þá sjötugur. Fiskur í öll mál „Ég er fæddur í Aðalvík en fór eins árs með foreldrum mínum til Fljótavíkur og ólst upp þar þangað til ég var níu ára. Við vorum sjö systkinin og þarna bjuggu líka amma og afi, Júlíus Geirmundsson og Guðrún Jóns- dóttir. Það stóðu kannski 6-7 býli í Fljótavíkinni. Það bjuggu fleiri að Látrum og þar á meðal hinn afi minn, Sigurður. Foreldrar mínir hófu sinn búskap hjá hon- um en pabbi sá ekki fram á að geta stækkað það bú, flutti því fjölskylduna til Fljótavíkur, fékk jörð og reisti nýbýlið Skjalda- breið,“ segir Baldur. „Jarðirnar voru svo litlar þarna þannig að búskapur var lítill. Lífið snérist aðallega um sjóinn. Enda var meira og minna stein- bítur og þorskur í öll mál. Það var líka mikið geymt í súr; selur, svið og slátur. En svo fólk fór að vinna annarsstaðar og sá líklega að það var lítil framtíð í þessu. Mótorbátarnir voru komnir og fólk var að reyna að búa til bryggjur en það gekk illa. Það fluttu margir burtu í kringum 1946. Þegar ég var níu ára fluttum við í Hnífsdal.“ rétt eftir fermingu. „Ég spilaði á harmoníku og við vorum yfirleitt tveir sem skipt- umst á. Inni í Djúpi vorum við alltaf saman, ég og Dóri Víg- lunds, og spiluðum til 4-5 á næt- urnar. Það var alltaf mikil stemn- ing á þessum böllum sem oftast nær komu til þannig að unga fólkið í sveitinni ákvað með litl- um fyrirvara að slá upp dansleik og fékk einhvern til að spila. Það var ákveðið vandamál að þegar komið var mikið stapp heyrðist varla í harmoníkunni. En þeir sem voru að dansa slógu taktinn.“ segir Baldur og hlær. Seinna átti Baldur og bróðir hans Karl eftir að ganga í tónlist- arskóla. „Það var veturinn 1958-59. Þá fórum við í Tónlistarskóla Reyk- javíkur og fórum fram á að fá að taka einn vetur á hálfum vetri því við höfðum verið að spila svo mikið hér fyrir vestan. Við lærðum tónfræði hjá Fjölni Stef- ánssyni og svona hitt og þetta. Seinna fór ég í orgeltíma hjá Kjartani Sigurjónssyni Fyrsta hljómsveitin „Fyrsta hljómsveitin sem ég spilaði með hét BKB. Ég var í henni með Kalla heitnum Tomm og Karli bróður og við spiluðum gömlu dansana í Gúttó. En nafnið á hljómsveitinni kom þannig til að Bæring Jónsson byrjaði að spila með okkur en hætti síðan. Við héldum nafninu. Ég hef verið svona 16-17 ára gamall á þessum tíma.“ Árið 1958 var hljómsveitin BG svo stofnuð og síðar bættist við Gunnar Hólm. „Við fórum í mikla tónleika- og sýningarferð með Jóni Bjarna- syni, ljósmyndara. Hann sýndi töfrabrögð og dró rútu á tönnun- um. Ferðin var skipulögð í kring- um þessi töfrabrögð Jóns enda aðalskemmtikrafturinn hérna á þessum árum og vinsæll gestur á kabarettum. Ferðin stóð í þrjár vikur og við fórum norður og austur og spiluðum í öllum þess- um litlu samkomuhúsum. Við enduðum þetta svo í Austurbæj- arbíói. Þessi ferð kom okkur kort- ið.“ BG og Ingibjörg Í framhaldinu varð til hljóm- sveitin BG og Árni. „Þá kom Árni Búbba til sög- unnar en hann söng með okkur í 2-3 ár. Þarna var rokkið að byrja fyrir alvöru, Bítlarnir og Rolling Stones mættir. Árni var vinsæll söngvari og hafði líflega sviðs- framkomu en varð þreyttur á þessu. Þá gerðist hann umboðs- maður hljómsveitarinnar í stað- inn. Við vorum svo heppnir að ná í Ingibjörgu Guðmundsdóttur söngkonu. Ingibjörg hafði góða rödd og mikla útgeislun og hafði verið uppgötvuð í hæfileikakepp- ni, að mig minnir.“ „Við vorum lengst af sex á í BG og Ingibjörg en Svanfríður Arnórsdóttir kom svo inn síðasta árið, 1978. Við spiluðum eigin- lega bara á sumrin enda voru nokkur í hljómsveitinni í skóla. Auðvitað spiluðum við mikið í Hnífsdal en fórum líka mikið í þriggja daga reisur, spiluðum þá föstudag, laugardag og sunnu- dag. Við fórum um mest allt land en tókum gjarnan svæðisbundna túra, byrjuðum kannski í Króks- fjarðarnes á föstudegi, spiluðum í Hvoli á laugardegi og enduðum á Akranesi á sunnudeginum. Við fórum líka oft suður og spiluðum mikið í Stapanum og í Aratungu.“ - Hvar var skemmtilegast að spila? „Það var oft gaman hér heima fyrir vestan. Þegar mest var að gera vorum við kannski þrjár helgar á sumri í Hnífsdal. Stund- um voru 500 manns á böllunum. Við vorum óánægðir ef það sást í gólfið. En það var bara allt opnað og fólk labbaði hringinn.“ Aðspurður hvaða aðrar hljóm- sveitir hafi verið áberandi á þess- um tíma nefnir Baldur þá Ingimar Eydal og Svavar Gestsson. „Ingimar hringdi alltaf á vorin til að fá ferðaplanið hjá okkur svo að hljómsveitirnar rækjust ekki á og skemmdu fyrir hvorri annarri. Ragnar Bjarnason gerði þetta líka. Þannig pössuðum við að vera ekki helgina á undan eða eftir í sama húsi og hinir. Það var svolítið mál að fá góð hús og það fylgdi þessu áhætta. Við vorum að gera þetta sjálfir og að skaffa fólki vinnu og því eins gott að þetta gengi. Því var maður alltaf hræddur um að fá ekki traffík.“ Plötuútgáfa BG og Ingibjörg gáfu út fjórar hljómplötur og auk þess var hljómsveitin með á safnplötu sem ber nafnið Hrif. „Á fyrstu plötunni eru lögin sem lifa hvað best í dag, Þín innsta þrá og Mín æskuást. Við tókum hana upp síðdegis en spil- uðum síðan í Sjálfstæðishúsinu um kvöldið. Við vorum því fjóra tíma að taka hana upp. En svo héldum við laginu Þín innsta þrá sem lokalagi á böllum árin á eftir. Næsta plata kom árið 1972 en á henni er lagið Fyrsta ástin. Við áttum tvö lög á safnplötunni Hrif en árið 1976 kom stóra platan, Sólskinsdagar. Þetta tímabil, BG og Ingibjörg stóð í raun ekki svo lengi. Frá 1968-78, mér finnst það ekki langt miðað við að við Margrét vorum að í átján ár,“ segir Baldur. Árin í Sjallanum Þegar tími BG og Ingibjargar var á enda tók skeið BG-flokks- ins við. „Þá byrjar Reynir Guðmunds- son að syngja með okkur og var með okkur alveg til 1987. Eins Lúið orgel í Hnífsdal „Ég hafði áhuga á músík en það var ekki fyrr en í Hnífsdal sem ég hafði kynni af hljóðfær- um, þá ellefu eða tólf ára. Ég komst í lúið orgel á gömlu verk- stæði og fór að fikta við það. Síðan keypti Gunnar eldri bróðir minn sér harmoníku og ég var alltaf að stelast í hana. Einhvern- tíma fór Gunnar á síld og þá æfði maður sig á harmoníkuna allt sumarið. Seinna keypti ég mér danskan harmoníkuskóla og lærði þannig nóturnar smám saman. En það var engin leið að ná í lög á þessum tíma nema að geta lesið nótur. Maður átti engar plötur og segulbandið kom seinna. Harmoníkan var svakalega vin- sæl á þessum árum og það spil- uðu margir á hana hér á landi, til dæmis Bragi Hlíðberg, Villi Valli, Reynir Jónasson, Grettir Björnsson og fleiri. Síðan þegar rokkið kom með Bill Haly varð saxófónn vinsælasta hljóðfærið og ég fór að læra á hann.“ - Lá þetta vel fyrir þér? „Það fór heilmikill tími í þetta. Enda tónlistin ekkert öðruvísi en íþróttir, menn verða að æfa. Auð- vitað verður fólk að hafa músík- ina í sér, en það er bara tíu prósent af öllu saman.“ - Hvaðan fékkstu þín tíu prós- ent? „Mamma var mjög músíkölsk og maður hefur þetta sennilega frá henni. En við Kalli bróðir áttum eftir að fylgjast að í gegn- um þetta allt saman og vorum í öllum þessum hljómsveitum saman. Ég spilaði á píanó eða saxófón, hann söng eða spilaði á bassa og gítar, eða hvað sem vant- aði.“ Stappið yfir- gnæfði nikkuna Baldur byrjaði að spila á sveita- böllum í Hnífsdal og inni í Djúpi

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.