Bæjarins besta - 23.08.2012, Page 15
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2012 15
Sælkeri vikunnar er Ævar Einarsson og Thitikan Janthawong
„Vinur barnanna“
Sælkerar vikunnar bjóða
upp á hrísgrjónarétt sem þau
segja að sé vinsæll meðal
barna. „Þennan rétt er fljótlegt
að elda og er mjög vinsæll
heima hjá okkur og stelpurnar
okkar dýrka hann. Það má svo
einnig nota nautakjöt, kjúkl-
ingabringur eða skötusel í rétt-
inn. Verði ykkur að góðu.“
„Vinur barnanna“
Hrísgrjónaréttur fyrir tvo.
2 matsk. matarolía,
2 hvítlauksrif,
100 smátt skorið svínagúllas,
2 egg
200 g soðin hrísgrjón (köld)
1 tesk. soya fish sause
1 tesk. soya sause m/sveppum
1 tesk. sykur
1/2 tesk. pipar
2 stöngla vorlauk.
Fyrst er matarolían sett á vog-
pönnu við hálfan hita. Hvítlauk-
urinn og svínakjötið er sett á
pönnuna og hrært vel ásamt því
að velta við kjötinu. Síðan er
innihald eggjanna sett út á og
hrært vel. Hækkið svo hitann og
hellið grjónunum út á, hrærið vel
og náið grjónunum í sundur. Þá
er báðum soya sósunum hellt yfir,
piprað og sykrað ef þurfa þykir.
Setjið vorlaukinn út á, hrærið
vel og slökkvið á hitanum. Setjið
réttinn í skál og hvolfið yfir á
disk. Borið fram með skraut-
skornum agúrkum og tómatbát-
um.
Við skorum á Önnu Szablowska
og Karol Szablowski á Suðureyri
til að koma með einhverja góða
uppskrift í næsta BB.
Steinunn Guðmundsdóttir
mun gegna stöðu skólastjóra
við Grunnskóla Bolungarvík-
ur á komandi skólaári. Tekur
hún við af Soffíu Vagnsdóttur
sem er í námsleyfi frá 1. ágúst
til 31. júlí 2013. Steinunn
hefur starfað sem aðstoðar-
skólastjóri við skólann og
mun Halldóra Dagný Svein-
björnsdóttir gegna stöðu
aðstoðarskólastjóra.
Var þetta samþykkt á fundi
fræðslumála- og æskulýðs-
ráðs Bolungarvíkur á dögun-
um. Ráðið lét bóka að það
óski Soffíu góðs gengis í
náminu og staðgenglum með
störf sín. – thelma@bb.is
Nýr skóla-
stjóri ráðinn
tímabundið
Berjaspretta virðist vera góð á
Vestfjörðum eftir því sem fregnir
herma. Salóme Ingólfsdóttir,
matvæla- og næringafræðingur
á Ísafirði, segir þó að sums staðar
sé mannfólkið ekki eitt um hituna
þar sem fiðrildalirfa sé búin að
éta upp berin af lynginu. „Maður
sér það þar sem rautt er orðið í
hlíðunum, þá eru lyngin og berin
orðin skorpin og ómöguleg eftir
lirfuna. En ég er búin að kíkja
sjálf upp í hlíð og það var alveg
prýðilegt.“
Hún hvetur fólk til að fara í
berjamó, sem ekki eingöngu veiti
holla næringu heldur einnig góða
hreyfingu. „Það er svo góð úti-
vera og skemmtileg stemmning
að skella sér í berjamó, og alveg
tilvalið að fara með alla fjölskyld-
una.“ Hún segir mikilvægt að
fólk læri að meta það sem nátt-
úran hefur upp á að bjóða. „Til
dæmis er munurinn á bláberjum
og aðalbláberjum sá að aðalblá-
berin finnast ekki um land og
einna helst á Vestfjörðum. Það
er því kjörið fyrir okkur Vest-
firðingana að ná í gómsæt aðal-
bláber í næsta nágrenni.“
Í grein sem Salomé ritaði fyrir
nokkrum árum segir að berin séu
vítamín- og steinefnasprengjur
sem auka fjölbreytni og hollustu
fæðunnar. „Bláber og krækiber
eru rík af vítamínum, steinefnum,
tefjum og öðrum hollefnum sem
eru mikilvæg fyrir heilsuna.
Sérstaklega má nefna C-vítamín
og bláberin innihalda einnig E-
vítamín. Bæði þessi vítamín eru
andoxunarefni og geta komið í
veg fyrir skaðleg áhrif svokall-
aðra sindurefna í líkamanum.
Sindurefni hafa verið tengd þróun
ýmissa sjúkdóma í mönnum, s.s
krabbameins og æðakölkunar.
Íslenskar rannsóknir hafa sýnt
að ekki fá allir nægjanlegt magn
járns úr fæðunni og eru kræki-
berin góður kostur til að fylla á
járnbirgðir líkamans. Fæðutrefjar
hafa góð áhrif á meltinguna og
þær geta einnig hjálpað til við að
halda þyngdinni innan eðlilegra
marka.“
– thelma@bb.is
Aðalbláberin finnast að
mestu leyti fyrir vestan