Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.11.2013, Síða 14

Bæjarins besta - 07.11.2013, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Sælkerar vikunnar eru Sigríður Fanndís Jónbjörnsdóttir og Steingrímur Jón Steingrímsson á Ísafirði Pönnusteikt lúða og marengsterta Við ætlum að bjóða kæru les- endum BB upp á pönnusteikta lúðu sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur og ljúffenga rice krispies marengstertu í eftirrétt. Verði ykkur að góðu. Lúða 4-5 lime hálf agúrka (skorin í strimla) 1 rauð paprika (skorin í strimla) ¼ rjómi olive olía 1 msk smjör klípa Meðlæti: Soðnar karftöflur og ferskt salat Salat: Klettasalat Tómatar Gúrka Fetaostur (öll krukkan og olían með) sirka 20 stk rauð vinber (skorið í tvennt) Pönnusteikt Lúða Lúðan er skorin í litla bita og krydduð með sitrónupipar síðan er henni raðað á pönnuna og er steikt upp úr Olive olíu. Látin malla í sirka 4 til 5 mínútur. Síðan þegar henni er snúið við er látið smá smjörklípa út í. Lime-ið er skorið í litla báta og bætt við. Þegar lúðan er orðin klár er panna tekin af hellunni, agúrkan og paprikan bætt út á pönnuna og rjómanum hellt yfir og lokið sett á. Allt saman látið malla í sirka 4 minútur áður en borið fram Borið fram með fersku salati og kartöflum Rice crispies margengsterta Botnar 4 eggjahvítur 200gr sykur 1 tsk lyftiduft 3 bollar Rice crispies Aðferð: Stífþeyta eggjahvít- urnar, hinu blandað varlega sam- an við með sleikju, setja bökunar- pappír í tvo botna. Bakið botnana í sirka 45 mínútur við 150° C og blástur. Slökkva síðan á ofninum. Best er að leyfa marengsinum að kólna inn í ofninum Kremið: 4 eggjarauður 60 gr flórsykur 100 gr brætt súkkulaði 3 til 4 msk þeyttur rjómi Súkkulaðið er brætt í vatns- baði. Flórsykur og eggjarauðum eru þeytt mjög vel saman og er síðan blandað varlega saman við súkkulaðibráðina og þeytta rjómann. látið kólna örlitla stund áður en er sett ofan á tertuna Botnarnir eru lagðir saman með restina af rjómanum og sirka 5 msk af súkkulaðibráðinni Restin af súkkulaðibráðinni er síðan smurð ofan á kökuna og látin leka niður með hliðunum. Best er að gera tertuna kvöldið áður eða alla vega 5 til 6 tímum áður en hún er borin fram Tertan er síðan skreytt með jarðarberjum eða bláberjum Við skorum á Ólafíu Sif Magnúsdóttur og Magnús þór Heimirsson til að vera næstu sælkerar vikunnar. Þiggjendur fjárhagsað- stoðar frá sveitarfélögum á Vestfjörðum voru jafn marg- ir árið 2012 og 2011, en nokkur breyting varð á hópn- um. 51 fjölskylda sem fékk stuðning árið 2012 hafði ekki fengið stuðning árið 2011. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti ný- verið. Meðalgreiðsla lækk- aði einnig verulega, eða úr 66.730 krónum í 28.628 krónur. Þrátt fyrir þetta hækkuðu útgjöldin um 40%, eða úr rúmum 15 milljónum króna í um 21,5 milljónir. Þetta skýrist af gríðarlegri aukningu í þeim tíma sem þiggjendur fengu stuðning, en meðalfjöldi mánaða hækk- ar úr 2,5 í 8,2 mánuði milli ára. Allt útlit er fyrir að kostn- aðaraukningin haldi áfram á þessu ári, en fjárveiting til stuðningsins var nýlega hækkuð í Ísafjarðarbæ þar sem fyrri fjárveiting var nær uppurin. Svipaða sögu er að segja frá Súðavíkurhrepp, en þar hefur kostnaður við fjárhagsaðstoð tvöfaldast frá áætlun. – herbert@bb.is Kostnaður við fjárhags- aðstoð eykst Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að hækka fjárframlag til fjárhagsaðstoðar á vegum sveitarfélagsins um 2.750 þúsund krónur til 3 milljónir króna. Sam- þykktin kemur í kjölfar beiðni frá Margréti Geirsdóttur, sviðs- stjóra fjölskyldusviðs og Sædísar Jónatansdóttur, deildarstjóra félagsþjónustu sveitarfélagsins. „Á árinu 2013 hafa 53 einstakl- ingar fengið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu, 25 karlar og 28 konur,“ segir í greinargerð með beiðninni. Flestir umsækjend- anna eru einhleypir eða 37. Þar af eru tíu einstæðar mæður. Í fjárhagsáætlun ársins var gert ráð fyrir 9 milljónum króna í fjárhagsaðstoð og var þá miðað við að fjórir einstaklingar þyrftu á fullri aðstoð að halda allt árið. Að auki var gert ráð fyrir að des- ember aðstoðin yrði hærri á hvern einstakling eða kr. 144.041. Í greinargerðinni kemur fram að fjárheimildin sé að klárast og ástæður þess megi helst rekja til þess að nú séu einstaklingar sem hafa fullnýtt rétt sinn hjá Vinnu- málastofnun, komnir í fjárhags- aðstoð. Þá hafi ungt fólk á atvinnu og án réttar til atvinnuleysisbóta, sótt um aðstoð sem og einstakl- ingar sem glíma við fíkniefna- og áfengisvandamál. Hækka heimild til fjárhagsaðstoðar Ísafjarðarbær hefur ákveðið að hækka fjárframlög til fjárhags- aðstoðar um allt að þrjár milljónir króna. Ástæðan fyrir hækkuninni er meðal annars tilkomin vegna aukins fjölda einstaklinga sem hafa fullnýtt rétt sinn hjá Vinnu- málastofnun, og hafa því sótt um fjárhagsaðstoð. „Það sama er að gerast hér, fjárhagsleg aðstoð hefur hækkað um 100% frá því sem áætlað var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Við munum gera ráð fyrir hækkun í þeim mála- flokki fyrir næsta ár,“ segir Ómar Már Jónsson sveitarstjóri Súða- víkurhrepps. Sveitarfélögum er skylt að veita íbúum sínum þjónustu og aðstoð sé þörf á því. Því geta einstakl- ingar undir ákveðnum viðmiðun- armörkum eða einstaklingar án framfærslu átt rétt á því að sækja um fjárhagsaðstoð hjá sínu sveit- arfélagi. Fjárhagsaðstoð sveitar- félaga er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglum hvers sveitarfélags fyrir sig, en sveitarfélög skulu setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð skal ávalt veitt til þess að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að ein- staklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Fjárhagsleg aðstoð hefur hækk- að um 100% hjá Súðavíkurhreppi

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.