Bæjarins besta - 07.11.2013, Page 19
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 19
Lausn á síðustu krossgátu
Sudoku þrautir
Þjónustuauglýsingar
Dregið hefur úr hraðakstri í Bol-
ungarvíkurgöngum. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Snæfellsnesi, sem sér um inn-
heimtu á hraðakstursbrotum,
tóku hraðamyndavélar 417 mynd-
ir frá byrjun árs til loka septem-
ber. Allt árið í fyrra voru mynd-
irnar 537 og 438 miðað við lok
september 2012. Það er því ljóst
að þrátt fyrir að menn viti af
myndavélunum geti þeir ekki allt-
af stillt sig. Nokkuð hefur borið
á því að ökumenn hægi á sér rétt
í kringum hraðamyndavélar, en
gefi vel í þess á milli.
Í Noregi hefur verið tekin upp
aðferð til að komast hjá þessum
áhrifum, en það eru svokallaðar
meðalhraðamyndavélar. Þar er
stuðst við tvær myndavélar á sitt-
hvorum enda vegarkafla, sem
taka myndir af öllum bílum sem
fara hjá, óháð hraða. Þær bera
svo saman tímasetningu sín á
milli, og hafi bíllinn verið fljótari
milli vélanna en hámarkshraði
leyfir er myndin vistuð og send
til kæru, en annars er henni eytt.
Með þessum hætti er hægt að
halda hraða niðri á vegkaflanum
í heild. Ekki hefur verið tekin
afstaða til notkunar slíkra mynda-
véla hér á landi.
Hraðabrotum
fækkar lítillega
Alls veiddust 457 laxar í Langa-
dalsá í Ísafjarðardjúpi í sumar.
Aldrei hafa jafn margir laxar
komið upp úr ánni á einu veiði-
tímabili. Árið 2005 veiddust 444
laxar sem var met. Veiði var yfir
meðallagi í Hvannadalsá og
Laugardalsá. „Yfirhöfuð var
veiðitímabilið bara býsna fínt,“
segir Stefán Sigurðsson, sölu-
stjóri Lax-Ár innanlands, en fé-
lagið hefur árnar þrjár á leigu.
„Hvannadalsá var líka fín og
endaði í 213 löxum, sem er mjög
fínt, þó það sé svolítið frá metinu.
Veiðin var líka ágæt í Laugar-
dalsá. Veiðin var yfir meðaltali í
flestum ám á landinu, svo þetta
var mjög gott ár.“ Eins og fyrr
segir veiddust 457 laxar í Langa-
dalsá í sumar, 404 í Laugardalsá
og 213 í Hvannadalsá.
Metveiði í
Langadalsá