Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 6
FEB í REYKJAVIK:
SkrtfstofaN %tw í FaxafeN 12
Félagsstarfið áfram í Ásgarði, Clæsibæ
Eins og félagar vita keypti FEB í
Reykjavík 1244 fermetra eign í Glæsi-
bæ 1998. Eignin skiptist í tvo eignar-
hluta, annar í 115,2 fermetra og hinn í
1129 fermetra. Eignin hefur reynst fé-
laginu dýr í rekstri. Endurbætur á
henni í upphafi voru dýrar og vænt-
ingar varðandi útleigu og afkomu í
félagsstarfi stóðust ekki. Skuldir hafa
því hlaðist upp.
Samkvæmt samþykkt almenns félags-
fundar 1. ágúst sl. hefur FEB selt eign-
arhlutann 115,2 fm, en það er sá hluti
er hýsir skrifstofuna og hluta af Ölveri.
Kaupandi er Sportbarinn ehf. Jafn-
framt hefur FEB gert samkomulag við
sama aðila um sölu á 163,2 fermetrum
til viðbótar. Það er Ölversplássið við Ás-
garð. Afhending hefur þegar farið fram.
Til þess að hægt verði að selja þessa
163,2 fermetra þarf að fá samþykktan
nýjan eignaskiptasamning á húsnæðinu
og fá veðhafa til að samþykkja aflétt-
Skrifstofan að Faxafeni 12 er á fyrstu
hæð innst í horninu, í sama húsi og 66°
norður.
ingu veða. Samkomulagið felur í sér, að
væntanlegur kaupandi leigir plássið á
meðan félagið er að vinna í málinu.
Leigan gengur síðan upp í kaupverðið. 1
samkomulaginu er reiknað með ákveðn-
um hámarkstíma. Félagið er með þessu
að létta töluvert á greiðslubyrðinni.
Þetta hefur engin áhrif á félagsstarfið
þar sem Ásgarður er enn í eigu félags-
ins.
Félagið hefur tekið á leigu skrif-
stofuhúsnæði að Faxafeni 12. Skrif-
stofan flutti þangað 14. september og
verður opin frá kl. 10 til 16 alla virka
daga. Ráðgjöf ýmiss konar og miðasala
í ferðir og á skemmtanir eru á skrif-
stofunni Faxafeni 12. Silfurlínan
verður einnig þar til húsa.
Félagsstarfið verður áfram í Ás-
garði í Glæsibæ. Sjá meðfylgjandi
dagskrá FEB.
Steþmía' c$jöwisdátWv,
framkvœmdastjóri
Aðstaðan á skrifstofunni í Glæsibæ var
mjög þröng. Starfsfólk þurfti að vinna á
gangvegi og gluggar aðeins við inngang.
í þessu litla herbergi var skrifstofa formanns, aðstaða sjálfboðaliða, Silfurlínu og ritstjóra,
kaffistofa og óformlegt fundarherbergi. Hér fundar Stefanía Björnsdóttir framkvæmdastjóri
með Kristínu Sigurðardóttur gjaldkera og Dagmar Bragadóttur ritara. Starfsfólki FEB í
Reykjavík er óskað til hamingju með stórbætt vinnuskilyrði.
6