Listin að lifa - 01.10.2001, Page 30
Hjúkrunarheimilið Holtsbúð var vígt 14. janúar 2000. Hér afhendir Ingimundur Sigurpálsson formaður stjórnar Þóru Karls-
dóttur lyklavöldin að Holtsbúð og blómvönd í tilefni dagsins.
Klaustrid í Garðabæ
er nú hjúkrunarheimili
Uppi á holtinu í Carðabae stendur
fögur bygging með níu hvolfþökum,
sem gengur almennt undir nafninu
Klaustrið, enda heimili Sankti Jóseps-
systra í 22 ár. Kaþólska kirkjan byggði
húsið fyrir eldri líknarsystur sem voru
hættar að hjúkra og kenna. í aldarlok
voru svo margar þeirra gengar á vit
feðra sinna að Klaustrinu var lokað.
Þær sem eftir voru fluttu flestar til
Danmerkur árið 1997. Undir hvolfþök-
unum níu fer nú fram annað líknar-
starf. Klaustrið fagra hýsir nú hjúkr-
unar- og dvalarheimili fyrir aldraða.
Hjúkrunarheimilið Holtsbúð var opnað
í janúar 2000 og er búið að starfa í eitt
og hálft ár. í allri umræðunni urn
hjúkrunarheimili er forvitnilegt að
ganga inn um dyrnar á fyrrverandi
klaustri og ræða við framkvæmdastjór-
ann, Þóru Karlsdóttur hjúkrunarfræð-
ing:
- Gefur það heimilisfólkinu eitt-
hvað að búa í fyrrverandi klaustri?
„Vissulega. Margir tala um góðan
anda í húsinu, steindir gluggar og
helgimyndir vitna um fyrri íbúa. Syst-
urnar fylgdust vel með breytingum á
húsinu og færðu okkur krossa í upp-
hafi starfsins. Velvilji þeirra og hlýjar
hugsanir fylgdu okkur úr hlaði. Minn-
ing líknarsystranna mun í heiðri höfð.
Landakotsspítali og St. Jósepsssjúkra-
húsið eru minnisvarðar um fómfúst
starf systranna á Islandi í eina öld.
Synd að þær skyldu yfírgefa landið.“
- Þótt flestum findist húsið sniðið
fyrir hjúkrunarheimili var unnið að
endurbótum í rúmt ár. Hvað þurfti
helst að lagfæra?
„Áður vom teppi á allri hæðinni,
svo að skipta varð um gólfefni. Raf-
lagnir þurfti líka að endurnýja. Sturtur
voru settar í öll baðherbergi og hurða-
búnaði breytt til að auðvelda aðkomu
hjálpartækja eins og hjólastóla og
göngugrinda. Vaktherbergi var komið
fyrir í forstofu. Eldhúsið var búið full-
30