Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 34
Svarthöfði er þakklátur fyr-ir kreppuna. Þetta kann að hljóma undarlega en þannig er að af misjöfnu þrífast börnin best, algild gömul sannindi sem nú eru smám saman að koma á daginn þegar æðis- gengnu hlutabréfapartíi undanfarinna ára er lokið. Góðu hliðarnar á kreppunni eru fjöl- margar. Ein þeirra er minni slysahætta í um- ferðinni. Svarthöfði gerði nefnilega þá uppgötvun á dögunum að það er ódýrara að aka á löglegum hraða en að þenja bifreiðina upp fyrir þriggja stafa tölu. Í hraða und- anfarinna ára skipti bensínið að vísu engu máli þar sem peningar bók- staflega uxu á trjánum og tíminn var mikilvægur í kapphlaupinu um að kaupa réttu hlutabréfin. Nú borgar sig að halda sem mest kyrru fyrir eða læðast í gegnum daginn. Það eru fleiri en Svarthöfði sem átta sig á því að bensínið er eins og blásýra og brennir upp fjárhag fjölskyldna og einstaklinga. Þess vegna hefur hægt á allri umferð og bros milli bíla er algengara en fingurinn upp. Auðvitað er þetta áfall fyrir starfs- mannasjóði lögreglunn- ar sem hermt er að fitni á hraðasektum í einhverjum umdæmum. Og þetta er áfall fyrir lögregluna á Blönduósi sem hefur gert það að sérgrein sinni að liggja fyrir þeim sem stíga of þungt á bensínfótinn. En lykilatriðið er að kreppan leiðir til jafnvægis á veg- um úti og fækkar slysum í umferð- inni. Nú eru það aðeins fífl sem reka bensínið í botn. Tími Bjössa á mjólk- urbílnum sem rak bensínið í botn í fyrsta gír er liðinn, fyrir utan það að flestir bílar eru í dag sjálf- skiptir. Svarthöfði er reyndar fyrrverandi fífl. Á blómatíma hlutabréfanna og ávöxtun- arsjóðanna gerðist hann oft meðvirkur í umferðinni og komst reglulega í tilfinn- ingauppnám ef annar öku- maður gerði eitthvað sem ork- aði tvímælis. Í mesta æsingnum átti Svarthöfði það til að gefa öðrum ökumönnum fingurinn. Hraðbraut- in milli miðborgarinnar og Kópa- vogs átti það til að breytast í átaka- svæði þar sem útistöður spruttu af minnsta tilefni. Eftir þannig daga átti Svarthöfði erfitt með að komast í ró að kveldi. En nú eru breyttir tímar. Fingurinn heldur sig samhliða öðrum og Svarthöfði brosir til annarra öku- manna í stað þess að glotta. Og viti menn. Jafnvægið er næstum al- gjört. Þeir örfáu vitfirring- ar sem enn eru í umferðinni raska ekki jafnaðargeðinu. Ef þeir vilja endilega brenna upp bens- íni með því að þenja ökutæki sín þá mega þeir það án þess að Svarthöfði láti af bensínsparnaði sínum. Hann er að mestu laus við háskann í um- ferðinni og hraðasektir eru liðin tíð. Kreppan hefur sem sagt hægt á öllu gangverki samfélagsins. Í stað hins æðisgengna hraða liðast nú umferðin í hægagangi um landið. Það gefur jafnframt ökumönnum og farþegum færi á að greina fegurð- ina í landslaginu og sjá blómin í stað þess að stara á malbik og hvítar línurnar sem aðskilja akreinar. Kreppan er að gera Íslendinga að betra fólki. Í stað þess að leggja upp í ofsaakstur á Þingvalla- hringnum á sunnudegi til þess eins að skoða gerviapa í Hveragerði þá heldur Svarthöfði sig heima og hlú- ir að gróðri í garði sínum og sinnir fjölskyldunni. Það hvarflar ekki að honum að leggja upp í lengri ökuferðir og styrkja þannig hag samráðsmanna olíufélaganna. Ferð- um á bensínstöðvar sem fela í sér sjálfseyðingu hefur þegar snarfækk- að. Þess í stað er farið í lengri göngutúra og brennslan er aðeins fólgin í þeim mat sem fjölskyldan brennir á göngu sinni. Og þar kemur til enn einn sparnaðurinn því Svarthöfði hefur sagt upp kortinu í líkamsræktarstöð- inni og gengur frítt. Hvaða væl er þetta um að kreppu fylgi svartnætti? Þvert á móti leiðir kreppan til betra mannlífs. föstudagur 13. júní 200834 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson, janus@dv.is fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur Helgason, asi@birtingur.is DrEifingarStjóri: jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Bensínið úr Bot i svarthöfði Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Það er algengt að þeir sem verða valdir að banaslysi hugsi um það á hverjum degi. Manndráp í umferðinni Leiðari DV hefur undanfarnar vikur fjall-að um ofsaakstur ungra manna, sem hefur dregið fólk til dauða. Það er vitað að sumir veigra sér ekki við aksturslagi sem leggur aðra í lífs- hættu, en getuleysi yfirvalda til að taka á því kemur virkilega á óvart. Ökumaður, sem olli slysi þar sem karlmaður og 5 ára stúlka dóu og kornungur bróðir stúlkunn- ar lamaðist fyrir neðan mitti, var tekinn níu sinnum fyrir hraðakstur eftir „slysið“. Hann sýndi enga iðrun. Bílslys er í rauninni í flestum tilfellum rangnefni. Hægt er að greina niður bílslys eftir orsakaþáttum, sem eru á ábyrgð öku- mannsins. Oft er aðeins stigsmunur á því hversu mikil ábyrgð ökumannsins er. Fyrrnefndur ökumaður, sem olli dauða tveggja og lömun ungs drengs, hafði þrisvar verið staðinn að ofsaakstri áður en hann leiddi fólk til dauða. Slíkan mann verður að meta óforbetranlegan og það ætti að vera löngu búið að taka hann úr umferð. Flest fólk er gætt samvisku. Það er algengt að þeir sem verða valdir að banaslysi hugsi um það á hverjum degi. Samviskubit- ið, með réttu eða röngu, sligar fólk og eyðileggur jafnvel líf þess. Þetta þurfa ungir ökumenn að vita. Það eru sjálfsögð mannréttindi fólks að ökumenn valdi því ekki lífshættu. Jafnvel þótt ökuníðingar valdi ekki líkamlegu tjóni valda þeir sálrænu tjóni með því að svipta aðra öryggistilfinningunni. Einn ökuníð- ingur eyðileggur í besta falli daginn fyrir fjölda fólks í umferðinni, en í versta falli drepur hann einhvern, eins og við höfum séð. Eða eins og Ragnheiður Davíðsdóttir hjá Vátryggingafélaginu segir í samtali við DV: Hraðakstur er ofbeldi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, tók af skarið í herferðinni gegn ökuníðingum. Við þurfum fleiri menn eins og hann í kerfið. Hann hefur óhikað sent menn fyrir dómstóla fyr- ir að valda öðrum skaða í umferðinni. Það er mikilvægt að öku- níðingar og aðrir í umferðinni fái þessi skilaboð. Og það er líka mikilvægt að mögulegir ökuníðingar geti lesið um það í blöðum hvernig þeirra líkum reiðir af. Ofsaakstur veldur gerandanum ekki bara sjálfum sér og öðrum lífsháska, heldur hættir hann á að lifa lífinu kvalinn af víti samviskubitsins. Umfjöllunin um þetta er hluti af forvarnarstarfinu og sjálfsögð þjónusta við al- menning. DómstóLL götunnar Gerir þú eitthvað til að draGa úr bensínkostnaði? „vera bara heima og labba á þá staði sem ég þarf að komast á.“ Haukur Sigurbjörnsson, 23 ára og vinnur við kvikmyndagerð „Það er nú voða lítið. Ég keyri alveg jafnmikið þótt bensínið sé orðið svona dýrt.“ Steinþór Bjarnason, 17 ára og vinnur hjá Verktækni „nei, ég geri ekki neitt sérstakt.“ Jón Þór Friðgeirsson, 40 ára matreiðslumaður „Ég hef reynt að minnka það eins og hægt er, til dæmis labba ég eða hleyp á æfingar. Ég bý í Hafnarfirði en vinn í reykjavík og að keyra í vinnuna er rándýrt. Bensínverðið er fáránlega hátt í dag.“ Haukur Óskarsson, 17 ára og vinnur í MotorMax sanDkorn n Málaferli fjölskyldu Jón- ínu Bjartmarz, fyrrverandi ráðherra, gegn Kasljóssfólki stendur nú sem hæst. Jónína vill fá Kastljós dæmt vegna umfjöllunar um ríkisborg- ararétt tengdadóttur hennar. Jónas Kristjánsson er ekki í vafa um að dómarar undirrétt- ar muni dæma Jón- ínu í hag. „Þeir munu sleikja tærnar á ósvífnu fjölskyldunni, sem telur sig vera yfir annað fólk hafna,“ bloggar Jónas. n Ein dularfyllsta bók seinni tíma er um Jón Ásgeir Jó- hannesson, stjórnarformann Baugs, skráð af blaðamönn- unum Jonathan Edwards og Ian Griffiths. Að vísu vita fæstir hvort handritið er yfir- leitt til. Á eyjan.is er vitnað í Edwards sem segir að útgáfu bókarinnar hafi verið frestað fram yfir dóm í Baugsmálinu. Bókin ku heita „The Ice Man Cometh“. Á vef Amazon í Bret- landi er þó hermt að „bókin“ hafi verið útgefin í febrúar á þessu ári. Verðmiðinn er um 140 pund eða 21.000 krónur. n Í vikunni voru tveir ritstjór- ar dæmdir til að greiða 400 þúsund annars vegar og 500 þúsund krónur hins vegar í sekt vegna áfengisauglýs- inga. Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri Mann- lífs og núverandi ritstjóri DV, var dæmdur vegna auglýs- inga árið 2005 en hins vegar var Benjamín Axel Árna- son, ritstjóri fótboltatímarits, dæmdur fyrir svipaðar sakir. Mogginn sýndi báðum þá til- litssemi að nafnleyna þeim en sagði þó „ritstjóri Mannlífs“ og kveikti þann grun að hinn dæmdi væri hugsanlega Sig- urjón M. Egilsson, núverandi ritstjóri, eða Þórarinn Þór- arinsson eða Gerður Kristný sem eru bæði blásaklausir fyrrverandi ritstjórar Mann- lífs . n Björn Bjarnason dóms- mála-ráðherra er að missa mesta móðinn á bloggi sínu. Fáséð er að bloggarinn Björn færi ekki daglega inn á heima- síðu sína en eftir hádegi í gær hafði hann ekki blogg- að síðan á laugardag. Hart hefur verið sótt að ráð- herranum vegna hler- unarmála og Baugsmálsins og hugsan- legt að hann kjósi þess vegna að hafa sig lítið í frammi. Margir bíða þess reyndar að hann tilkynni brotthvarf sitt af ráðherrastóli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.