Iðnaðarmál - 01.03.1957, Qupperneq 2
f3reytitigcir á stjórn og starfsreglum
IMSÍ
Hinn 29. maí gaf Iðnaðarmála-
ráðuneytið út nýjar starfsreglur fyr-
ir Iðnaðarmálastofnun Islands jafn-
framl því, sem það veitti þeim Páli
S. Pálssyni hrl. og Kristjóni Krist-
jónssyni framkvstj. lausn frá störfum
í stjórn stofnunarinnar.
Er nú stjórnin þannig, eins og iðn-
aðarmálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason,
hefur skipað hana:
Axel Kristjánsson frkvstj., formað-
ur, skipaður án tilnefningar,
Björgvin Frederiksen frkvstj., í
samræmi við tillögu Landssambands
iðnaðarmanna,
Harry Frederiksen frkvstj., í sam-
ræmi við tillögu Sambands íslenzkra
samvinnufélaga,
Magnús Brynjólfsson kaupm., í
samræmi við tillögu Verzlunarráðs
Islands,
Oskar Hallgrímsson rafvirki, í
samræmi við tillögu Iðnsveinaráðs
A.S.Í. og
Sveinn Guðmundsson frkvstj., í
samræmi við tillögu Félags íslenzkra
iðnrekenda.
Samkvæmt þessu tekur Axel sæti
Páls í stjórninni sem formaður, en
Harry sæti Kristjóns. Aðrir stjórnar-
menn voru fyrir.
Þeir Páll S. Pálsson og Kristjón
Kristjónsson hafa átt s, eti í stjórn
stofnunarinnar frá upphafi, en þeir
höfðu ásamt Þorsteini Gíslasyni
verkfræðingi verið skipaðir í nefnd
í desember 1951 af þáverandi iðnað-
armálaráðherra, Birni Ölafssyni, „til
að gera tillögur urn framtíðarskipan
iðnaðarmála“. Leiddu störf þessarar
nefndar til stofnunar Iðnaðarmála-
stofnunar Islands síðla árs 1953.
Þeim Páli og Kristjóni fylgja hug-
heilar þakkir samstjórnarmanna og
starfsliðs fyrir ánægjulegt samstarf
á liðnum árum.
Hér fara á eftir starfsreglur stofn-
unarinnar, eins og þær eru nú.
r
Starfsreglur fyrir Iðnaðarmálastofnun Islands
1. gr.
Stofnunin skal heita Iðnaðarmálastofnun Islands,
skammstafað IMSÍ.
2. gr.
Markmið stofnunarinnar er að efla framfarir í íslenzk-
um iðnaði og korna á hagkvæmari vinnubrögðum í iðn-
aðarframleiðslu og vörudreifingu, m. a. með því að:
11 Fylgjast með tæknilegum nýjungum og veita þeim,
er iðnað stunda og við vörudreifingu fást, leiðbeiningar,
er miði að auknum afköstum, verknýtingu og vöruvönd-
un, m. a. með leiðbeiningum um endurbætur á vélum,
húsakynnum, vinnutilhögun og meðferð hráefna.
2) Rannsaka afköst í einstökum greinum iðnaðar og
kynna niðurstöðurnar, svo að notum komi fyrir iðn-
fyrirtæki og tæknifræðslu í landinu. Enn fremur skal
stofnunin gera athuganir til endurbóta á hinum ýmsu
sviðum iðnaðar og vörudreifingar.
31 Starfrækja tæknilegt bókasafn, annast útgáfu tíma-
rits um tæknileg efni og gangast fyrir námskeiðum, fyrir-
lestrum og kvikmyndasýningum um vinnuvísindi og
tækni.
4l Hafa samband og samstarf við hliðstæðar erlendar
tæknistofnanir og eiga aðild að alþjóðlegum samtökuni
slíkra stofnana.
Stofnunin skal stuðla að því, að hérlendir menn, sem
starfa í þágu íslenzks iðnaðar og vörudreifingar, komist
til framhaldsnáms erlendis í vísindalegum, tæknilegum
og verklegum greinum og að erlendir kunnáttumenn á
þessum sviðum heimsæki Island, m. a. fyrir milligöngu
Efnahagssamvinnustofnunarinnar og annarrar alþióð-
legrar starfsemi og með aðild að Framleiðniráði Evrópu
(EPA).
Avallt skal þó nýta þekkingu og starfskrafta innlendra
sérfræðinga, eftir því sem kostur er á.
Framh. á 59. bls.
42
IÐNAÐARMAL