Iðnaðarmál - 01.03.1957, Page 8

Iðnaðarmál - 01.03.1957, Page 8
Ekki eru öll fúavarnarefni til þess nothæf að mála eða lakka yfir þau. Hérlendis hefur raka- og fúavarn- arefnið Woodlife verið notað um tveggja ára skeið með góðum ár- angri í þessum tilgangi. Það inni- heldur pentachlorophenol auk efna, sem hrinda vatni frá timbrinu. Bólgnar því slíkt timbur síður, og málningarhúðin endist lengur á því, og er það því hentugt á glugga o. þ. 1., sem verður fyrir veðuráhrifum. Allar yfirborðshúðanir, svo sem málning og lakk, slitna með tíman- um, og því er nauðsynlegt að endur- nýja þessar húðanir eftir þörfum. Flestum mun vera kunnugt um, hversu illa málning endist hérlendis á tré, sem verður fyrir veðuráhrif- um. Almennt er málningin talin vera höfuðorsök þessa. Vel má vera, að hún sé það í sumum tilfellum, en sterk rök hníga að því, að framar öllu sé orsökin sú, að timbrið hefur verið of rakt í upphafi. Það er stað- reynd, að málning flagnar af timbri, ef raki þess er yfir 18%, hverrar teg- undar svo sem málningin er. Það er engum vafa bundið, að við fslend- ingar eyðum hundruðum þúsunda árlega að óþörfu vegna þess eins, að við notum of rakan við til ýmissa smíða, sem við svo málum eða lökk- um að gagnslausu. Það er þó bót í máli, að sérfræðingar og almenning- ur er farinn að gera sér þetta ljóst. Ýmsar aðferðir má nota til þess að koma fúavarnarefnum inn í timbrið. Þó þarf timbur ávallt að vera meira eða minna þurrt, áður en fúavarnar- efni eru borin í það, svo að þau nái að smjúga inn í timbrið. Beztu að- ferðirnar við fúavörnina eru að þrýsta efnunum inn í viðinn (há- þrýstingur og lágþrýstingur til skipt- is), en til þess þarf allstórvirk og kostnaðarsöm tæki. Onnur einfaldari aðferð, en ekki eins haldgóð, er að dýfa timbrinu ofan í fúavarnarefnið í dálítinn tíma. Þá hefur og mikið verið gert af því að úða efnunum á timbrið eða bera þau á með bursta, en aðferð þessi hefur þær takmark- anir, að efnin smjúga ekki langt inn í viðinn. standa í þessu heita baði í nokkrar klukkustundir. Þá eru þeir teknir upp úr og settir í aðra tunnu með köldu fúavarnarefni í og látnir standa í því nokkrar klukkustundir í viðbót. (Sjá 3. mynd). Kostir þessarar aðferðar eru þeir, að við upphitunina þenst loftið í viðnurn út, en dregst svo saman við kælinguna, og myndast þannig undir- þrýstingur í viðnum, svo að fúavarn- arefnið gengur lengra inn í hann. 3. mynd. Við upphitunina þenst loftið í viðnum út, en dregst svo saman við kæling- una, og myndast þannig undir- þrýstingur í viðnum, svo að fúavarnarefnið gengur lengra inn í hann. Fúavörn staura Ein er sú aðferð, sem er einföld og kostnaðarlítil og auðvelt er fyrir hvern og einn að nota við fúavarnir á girðingarstaurum. Hún er í stuttu máli á þessa leið: Staurunum er stungið niður í tunnu með hæfilega miklu af fúa- varnarefni í. Þá er tunnan hituð yfir eldi, svo að fúavarnarefnið nái um 100°C hita. Staurarnir eru svo látnir Þar sem við íslendingar flytjum inn allan þann við, sem við notum, verður hann að sjálfsögðu dýrari hjá okkur en í flestum öðrum lönd- um, sem framleiða sinn eiginn við. Það er því þeim mun nauðsynlegra fyrir okkur að gera ráðstafanir til þess, að þessi verðmæti nýtist sem bezt, svo sem með nauðsynlegri timburþurrkun og notkun fúavarnar- efna. Sjálfsafgreiðsla 48 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.