Iðnaðarmál - 01.03.1957, Qupperneq 11
búðir úr 2500—3000 smálestum af
pappa og um 150 standördum af
timbri og veitir að staðaldri um 70
manns atvinnu.
í þjóðfélagi nútímaverkaskipting-
ar er mikilsvert fyrir framleiðsluna
og verzlunina, að vörurnar berist
sem skjótast og í sem beztu ástandi í
hendur neytendanna. Til þess að gefa
lesendum Iðnaðarmála dálitla hug-
mynd um þennan iðnað fer hér á eft-
ir lýsing á framleiðslu umbúða í
Kassagerð Reykjavíkur við Skúla-
götu í Reykjavík.
Verksmiðjuhúsið
Verksmiðjuhúsið er um 2500 m2
að gólffleti, og fer framleiðsla um-
búða fram á þrem hæðum. Á fyrstu
hæð eru framleiddir trékassar, á ann-
arri hæð bylgjupappakassar og hinni
þriðju smærri pappaumbúðir. í
miðju hússins er stór móttöku- og af-
greiðslusalur, sem er opinn upp úr,
þannig að flytja má hráefni úr hon-
um á hvaða hæð sem er. Er það
gert með sérstökum lyftitækjum. Á
þriðju hæð eru skrifstofur fyrirtæk-
isins, en kaffistofur fyrir starfsfólkið
eru á hverri hæð. Eru þær mjög vist-
legar.
F ramleiðslulýsing
Trékassar. Framleiðsla þeirra fer
fram á fyrstu hæð, sem að framan
greinir. Hráefnið í kassana, innflutt-
ur viður, er geymt úti í háum stöfl-
um. Þaðan er það flutt á vörubifreið-
um inn í móttökusalinn, þar sem ætíð
er fyrir hendi nægilegt efni til að
vinna úr, en í innri enda hans, inni
undir hluta gólfs annarrar hæðar,
sem gengur út í salinn, er geymslu-
rúm fyrir efnið (viðinn). Úr þessu
geymslurúmi eru plankarnir fluttir
inn í vinnusal, þar sem kassarnir eru
smíðaðir.
Fyrst eru plankarnir færðir að
sögunarvélum, sem sníða þá í hæfi-
lega þykk borð, og eru þau síðan
hefluð í heflivélum. Þegar því er lok-
ið, eru borðin bútuð niður og rist í