Iðnaðarmál - 01.03.1957, Qupperneq 12
IPiSÉÉÍ V : V ^ ::
T. h. Bylgjupappa-
kassi brotinn og lagS-
ur saman.
T. v.: Vél, sem brýtur,
leggur og límir saman
bylgjupappakassa. Aj-
köst um 30 þúsund
kassar á dag.
sérstakri bútsög. Fyrst er sagaö á
lengdina og borðunum síðan raðað
saman og þau skorin í ákveðnar
breiddir. Fara þær eftir því, hvaða
afurðir á að geyma eða flytja í köss-
unum, sem verið er að framleiða.
Efninu, tilsniðnu og söguðu, er hlað-
ið á sérstaka palla, sem flytja má í
gaffalvögnum að plægingarvél eða
þeim vélum, sem næst koma í fram-
leiðslurásinni. Þá er efnið plægt sam-
an til að rnynda stærri, samfelldari
flöt í hliðar, gafla, botn eða lok. Ef
eitthvað á að vera letrað á kassana,
er næsta skrefið það, að prentað er
á hina ýmsu hluta hans, en það er
gert í sérstakri prentvél. Að því
loknu eru hliðarnar negldar saman í
neglivélum, en þær eru þrjár, og
gegna hver sínu hlutverki við sam-
setningu kassans. Hin fyrsta er notuð
til að negla okana á gafla kassans, sú
næsta neglir hliðarnar og hin þriðja
botninn. Er þá kassinn tilbúinn til
notkunar.
Bylgjukassar. A annarri hæð eru
bylgjupappakassar framleiddir. Eru
þeir búnir til úr pappa, sem kemur í
mismunandi stórum rúllum eftir því,
hvaða kassastærð á að framleiða.
Stærstu rúllurnar eru allt að smálest.
Framleiðsla kassanna hefst í stórri
vélasamstæðu, sem býr til bylgju-
pappa úr kraftpappír. Er það gert úr
þrem rúllum í einu. Miðlagið er
bylgjað (rifflað) með gufuhituðum
völsum, og ytri byrðin, sem eru úr
sterkari kraftpappír en miðlagið, eru
limd utan á það sitt hvorum rnegin.
Á það sér þannig stað, að vals með
lími á ber á bylgjur miðlagsins, sem
mæta síðan ytri byrðunum, sem lím-
ast fast við, þegar pappinn fer yfir
heitar (gufuhitaðar) pönnur. Síðan
AS límingu lokinni jer
kassinn á milli tveggja
belta, sem pressa lím-
bandiS og jlytja kass-
ann til búntunar.
fer pappalagið, sem myndar sam-
fellda lengd í vélunum, í gegnurn
pressur, sem eru um 20 metrar að
lengd, en þær eiga að tryggja, að
líming sé haldgóð. Fyrir enda þeirra
er hnífur, sem sker pappann niður í
hæfilega langar plötur. Tilskornu
pappaplöturnar eru því næst fluttar
á vögnum að vélknúnum hníf, sem
sker þær í viðeigandi pappakassa-
stærðir og rnótar jafnframt fellingar
í pappann eftir því, sem hann á að
beygjast. Þá fara plöturnar í gegnum
prent- og skurðarvél, þar sem prent-
að er á þær og skorið upp í papp-
ann, til þess að unnt sé að brjóta inn
botnana. Kemur þá að lokastigi
framleiðslunnar, sem er að brjóta,
leggja og líma sarnan kassann á sam-
skeytahorni hans. Er það gert í
geysistórri vél, og eru hámarksafköst
hennar um 30.000 kassar á dag.
Að þessu loknu er kassinn tilbúinn
til notkunar.
Bylgjupappakassar eru aðallega
notaðir utan um hraðfrysta fisk-
pakka, smjör, smjörlíki og ýmiss
konar iðnaðarframleiðslu.
Öskju/ramleiðsla. Á þriðju hæð
eru eingöngu framleiddar öskjur fyr-
ir alls konar matvæli, svo sem fisk-
afurðir til útflutnings og innanlands-
notkunar, landbúnaðarvörur, svo
IÐNAÐARMAL