Iðnaðarmál - 01.03.1957, Side 16
NYTSAMAR NYJIJNGAR
1. mynd. Unnið með neglivél. Maðurinn hefur þumalfingur-
inn á „gikknum“, sem stjórnar loftstreymi frá þjöppunni.
Naglarnir berast eftir rennu niður í byssuna.
Loftknúin neglivél
sparar tíma og eykur aiköst
Með loftknúinni neglivél hafa tré-
smiðir þeir, sem starfað liafa við að
leggja þak á geysistórri verksmiðju í
Los Angeles, rekið 100 nagla hver á
mínútu í 1"X6" fjalir og fest 5000
ferfeta þakflöt á 8 klst. vinnudegi.
Hin loftknúna neglivél (sjá 1.
mynd) er aðeins 15 kg að þyngd, og
eru helztu hlutar hennar þessir:
handfang, geymsluhólf fyrir nagla,
naglabyssa og ístað, sem smiðurinn
smeygir fæti í. Geymsluhólfið er flat-
ur kassi með loki á hjörum, og tekur
það 400—600 nagla allt eftir stærð.
Á 2. mynd sésl loftþjappan, sem
framleiðir 12 rúmfet af lofti með um
2. mynd.
Þennan stóra
þakflöt festi
einn maður
með neglivél-
inni.
6þó kg þrýstingi á m2. Frá þjöpp-
unni að handfangi neglivélarinnar
liggur um 30 metra löng slanga.
Smiðurinn heldur vélinni fastri
með fætinum, lyftir handfanginu og
ýtir því síðan niður. Þegar hand-
fanginu er lyft, fellur nagli úr
geymsluhólfinu niður í rennu. Þegar
handfanginu er þrýst niður aftur,
lendir naglinn í byssunni, og rekur
hún hann óðar á kaf.
Vél þessi sparar að sjálfsögðu
bæði tíma og byggingarkostnað, ekki
sízt, ef um stórar verksmiðju- eða
íbúðarbyggingar (t. d. ,,blokkir“)
er að ræða, þótt eigi sé hún eins
heppileg við minni hús.
Úr „Plant Engineering“, jan. 1952, bls.
61: „Compressed Air Takes Hammer out
of Nailing". O.T.S., M.S.A.
56
IÐNAÐARMÁL