Iðnaðarmál - 01.02.1971, Síða 2
Tæring og tæringarvarnir á heitavatnslögnum
Nýtt pit frá Rannsóknastofnun iönaöarins
í 1. tölublaði Iðnaðarmála 1971
birtist grein eftir Asbjörn Einarsson
og Gunnlaug Elísson um tæringu eir-
röra í kaldavatnslögnum. I framhaldi
af þessari grein hefur Rannsókna-
stofnun iðnaðarins nú gefið út fjöl-
ritað hefti um málmtæringu í lögnum
fyrir súrefnisríkt heitt vatn.
í fjölriti þessu er tæringu járns
lýst í einföldum dráttum og getið um
ýmsar aðstæður, t. d. vatnshita, sem
áhrif liafa á tæringarhraðann. Rætl
er um tæringarviðnám mismunandi
rörategunda, þ. e. a. s. svartra járn-
röra, galvaníseraðra stálröra, eirröra
og ryðfrírra stálröra, og hvað helzt
beri að varast í sambandi við notkun
þeirra. Mest áherzla er lögð á efnis-
val og tæringarhættu í vatnslögnum,
þar sem gormhitageymir eða svipað
kerfi er notað til að hita upp kalt
vatn, eins og sýnt er á 1. mynd.
þessar lagnir eru nú einkum notuð
galvaníseruð stálrör hér á landi, en í
þeim er mjög hætt við pyttatæringu,
2. mynd.
ef hitastig vatnsins fer yfir 60—65°C
og vatnið er súrefnisríkt. Hafa víða
orðið tæringarskaðar af þessum völd-
um, og sýnir 2. mynd hluta af gal-
vaníseruðu röri, sem tærzt hefur
vegna þess, að vatnshitinn var of hár.
Einnig er getið um, hvers vegna gal-
vanísering á rörum kemur einkum að
gagni í hörðu vatni, en síður í mjúku
vatni, eins og hér á landi. Breytt efn-
isval getur oft haft úrslitaþýðingu við
ofangreindar aðstæður, og eru í rit-
inu settar fram tillögur um notkun
eirröra eða ryðfrírra stálröra í slík
kerfi og kostir þeirra og gallar rædd-
ir.
Getið er þeirra aðferða, sem notað-
ar eru erlendis á gormhitakerfum,
þar sem galvaníseruð rör eru þegar
farin að tærast að nokkru. Þessi úr-
ræði, t. d. notkun álskautsstraum-
varnar, eru þó venjulega ekki talin
nothæf hér á landi vegna þess hve
hátt viðnám vatnsins er, en athugun
á þessu máli er fyrirhuguð hjá Rann-
sóknastofnun iðnaðarins.
Stuttlega er rætt um miðstöðvar-
lagnir og hitaveitur, einkum með til-
Framh. á 45. bls.
heitt neyzluvatn Eldhús
1. mynd. Lögn fyrir heitt neyzluvatn, þegar spíralhitadunkur (eða forhitari) er notaður.
(Opið kerfi).
34
IÐNAÐARMÁL