Iðnaðarmál - 01.02.1971, Síða 11

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Síða 11
inn er mat veðurathugunarmanna. Greinargerð Veðurstofunnar fylgir hér á eftir sem fylgiskjal, og vísast til hennar um nánari upplýsingar í þessu sambandi. Af 1. mynd má sjá í stórum dráttum, hverjar líkur eru á hvassviðrum (10 vindstigum eða meira) í hinum ýmsu landshlutum. Greinilegt er, að við suðurströnd landsins eru hvassviðri tíðust. A 10 —25 km breiðu belti við suðurströnd- ina virðist mega vænta 10—12 daga að meðaltali á hverju ári, þar sem veðurhæð nær 10 vindstigum eða meira. A Stórhöfða í Vestmannaeyj- um mælast hvassviðri oftast, með um 80 daga á ári, sem veðurhæð nær 10 vindstigum eða meira. Á norðan- verðum Vestfjörðum er einnig mjög hvassviðrasamt, og eru 10 vindstig eða meira að jafnaði áætluð 16 sinn- um á Hornbjargi og 22 sinnum í Æðey á Isafjarðardjúpi. í innsveitum er yfirleitt lygnara. Eins og 1. mynd sýnir, er varla um staði að ræða á landinu, sem liggja 25 km frá strönd eða meira, með fleiri en 5—6 rokdaga (10 vindstig eða meira), fyrr en komið er inn á hálendi landsins. Á Hveravöllum í 642 m hæð yfir sjó mælast hins vegar 17 rokdagar, en nánari vitneskja um tíðni hvassviðra svo fjarri byggð er ekki fyrir hendi. Þótt tíðni storma sé í aðalatriðum sú, er ofan greinir, er vel kunnugt, að á vissum svæðum eru óvenju mik- 11 hvassviðri, og ber að gefa þeim sérstakan gaum. Væri ekki óeðlilegt, að byggingaryfirvöld gerðu þar sér- stakar kröfur um frágang mann- virkja. 4. Staðalkröfur Til þessa hafa engir íslenzkir staðl- ar verið gerðir um vindálag. íslenzkir verkfræðingar hafa flest- ir sótt menntun sína til annarraþjóða. Fyrrum voru íslenzkir verkfræðingar að mestu menntaðir í Danmörku, en á síðari árum hefur þetta breytzt all- verulega, og hafa nú fjölmargir verk- fræðingar lokið námi í hinum ýmsu löndum Vestur-Evrópu og Bandaríkj- unum. Greinarhöfundum þótti rétt að kanna meðal starfandi verkfræðinga, hvaða álagsgildi vinds þeir notuðu við hönnun mannvirkja. Var sendur út spurningalisti og menn beðnir að tilkynna, hvaða álag þeir notuðu við útreikninga, og var könnunin látin ná yfir bæði vindálag, snjóálag og jarðskjálftaálag. Svör bárust frá 19 aðilum, og eins og við má búast, urðu þau margvísleg. Niðurstöður, er varða vindálag, má flokka eins og sýnt er í töflu IV. Um helmingur þeirra, er svöruðu, nota norræna vindstaðla í einhverri mynd, en all- margir nota strangari kröfur en Norð- urlandastaðlar gera. Allmargir styðj- ast við DIN, margir þó með harðari kröfum. TAFLA IV Könnun meðal íslenzkra verkfrœðinga á notuðum álagsgildum fyrir vindálag Grunngildi vindálags í 10 m hæð, kg/m2 Fjöldi 110 og minna 12 120—150 6 160—180 1 19 Vindstaðlar hinna Norðurlanda- þjóðanna eru nokkuð líkir innbyrðis, og er í sænskum stöðlum t. d. miðað við vindhraðann 40 m/sek. við strönd (100 kg/m2) og 36 m/sek. í innsveitum (80 kg/m2) sem 50 ára viðmiðunargildi í 10 m hæð. I töflu II eru sýnd hæstu hviðugildi, sem mælzt hafa í Reykjavík á árunum 1948 til 1970, og má sjá, að 9 sinnum hefur hviðugildi vindhraða farið yf- ir 40 m/sek. á því tímabili. Ljóst er því, að kröfur sænsku vindstaðlanna eru ekki nógu strangar við þær að- stæður. í greinargerð Veðurstofunn- ar er sú ágizkun sett fram, að mesti vindhraði, sem vænta megi einu sinni á 50 árum, sé um 100 hnútar við ströndina (51,5 m/sek., samsvarandi 166 kg/m2) og um 90 hnútar í inn- sveitum (46,3 m/sek., samsvarandi 134 kg/m2). Ekki verður á þessum vettvangi tekin endanleg afstaða til þessa. 5. Lokaorð Augljóst er, að forsenda fyrir regl- um um vindálag við útreikninga á mannvirkjum eru niðurstöður lang- tímamælinga á vindhraða. Nágrannaþjóðir hafa lagt siaukna áherzlu á vindhraðamælingar á und- anförnum árum, bæði vegna mann- virkjagerðar og í öðrum tilgangi. Þetta hefur haft í för með sér endur- skoðun á vindstöðlum margra þjóða, t. d. Breta (6) og Þjóðverja. Endur- skoðun Breta á vindálagsstöðlum var gerð á síðastliðnu ári, og hefur hinn nýi staðall töluverðar breytingar í för með sér á vindálagsreikningum mannvirkja. Nauðsyn er á því, að 41 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.