Iðnaðarmál - 01.02.1971, Side 15

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Side 15
Ekki er hægt að búast við því, að mesti vindhraði, sem vænta má, t. d. einu sinni á 50 árum, sé í beinu hlut- falli við tíðleika storma á hverjum stað, en áætla má markið heldur lægra á stöðum með lága storma- tíðni. Niðurstaða Miðað við þær mælingar, sem til- tækar eru og í aðalatriðum hefur ver- ið greint frá hér að framan, er hugs- anlegt að setja fram þá ágizkun, að mesti vindhraði, sem vœnta má einu sinni á 50 árum, sé um 100 hnútar í 10 m hœð yjir jörðu víðast hvar við strendur landsins og á liálendinu, en þar sem staðhœttir eru sérstaklega til þess fallnir að magna vind, eigi að miða við 110 lmúta eða meiri vind- liraða. A skjólsœlum stöðum má hins vegar sennilega fœra markið niður í um 90 hnúta. Þar sem áætlun þessi er byggð á mj ög strj álum mælingum, getur verið mikill stuðningur að sam- anburði við erlendar niðurstöður frá löndum, þar sem ætla má, að aðstæð- ur séu að ýmsu leyti svipaðar. Slíkan samanburð er að finna á korti, sem fylgir greininni „The Assessment of Wind Loads“ í „Building Research Station Digest“, júlí 1970. Þar kem- ur fram, að í Skotlandi er vindhraði, sem vænta má einu sinni á 50 árum, áætlaður milli 46 m/s og 56 m/s, lægstur syðst, en hækkandi til norð- urs og vesturs. Samsvarar hærri talan einmitt um 109 hnútum, en sú lægri 89 hnútum. Er því ekki ástæða til að ætla, að um of háa áætlun sé að ræða fyrir Island. Reykjavík, 17. marz 1971. Adda Bára Sigfúsdóttir Flosi Hrafn Sigurðsson Tæring og tæringarvarnir Framh. a£ 34. bls. liti til samanburðar á tæringarhættu í þeim og í ofannefndu kerfi (1. mynd). Ritið nefnist „Tæring og tæringar- varnir í heitavatnslögnum. Súrefnis- ríkt heitt vatn“. Er það skrifað af Ásbirni Einarssyni og skiptist í eftir- farandi kafla: 1) Inngangur. 2) Tæring járns í súrefnisríku vatni. 3) Áhrif hitastigs á súrefnisinni- hald vatns og tæringarhraða. 4) Tæring á svörtum járnrörum. 5) Tæring á galvaníseruðum stál- rörum. 6) Aðrar rörategundir. 7) Varnir gegn súrefnistæringu. 8) Lokuð miðstöðvarkerfi. 9) Niðurlag. Fjölritið má fá hjá Rannsókna- stofnun iðnaðarins, Keldnaholti, sími 8-54-00. Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands 1971 var haldinn 27. maí s.l. Heildar- innlán bankans um síðastliðin áramót námu 970 milljónum króna og heild- arútlán 861 milljón króna. Innláns- aukning árið 1970 var 150 milljónir króna og útlánsaukning 158 milljónir króna. Bundin innstæða í Seðlabank- anum var í árslok 193.6 millj. krónur. Úr Iðnlánasjóði voru veitt 285 ný lán á árinu, samtals að fjárhæð 177.5 milljónir króna, og eigið fé sjóðsins var í árslok 289.1 milljónir króna. Tekjuafgangur bankans án af- skrifta var 5.2 milljónir króna. Sam- þykkt var að greiða hluthöfum 7% arð fyrir árið 1970. í bankaráð voru kjörnir: Sveinn B. Valfells, forstjóri, Vigfús Sigurðs- son, húsasmíðameistari, og Haukur Eggertsson, framkvæmdastjóri, og varamenn Bragi Olafsson, verkfræð- ingur, Ingólfur Finnbogason, liúsa- smíðameistari, og Kristinn Guðjóns- son, forstjóri. Endurskoðendur voru kjörnir: Haukur Björnsson, fram- kvæmdastjóri, og Otto Schopka, framkvæmdastj óri. Iðnaðarráðherra skipaði í banka- ráðið Eyþór H. Tómasson, forstjóra, og Guðmund R. Oddsson, forstjóra, og varamenn Guðmund Guðmunds- son, forstjóra, og Sigurodd Magnús- son, rafvirkjameistara. IÐNAÐARMÁL 45

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.