Iðnaðarmál - 01.02.1971, Side 17
í tengslum við framkvæmdastjóra
þinn, heldur engu síður við hitt
starfsfólkið og almenning. Athygli er
stöðugt heint að persónulegum eig-
inleikum þínum. Við skulum aðgæta,
hvernig aðrir líta á þig og hvers þeir
vænta af þér á skrifstofunni.
Gott samkomulag við annað fólk
A flestum skrifstofum starfar
einkaritarinn ekki aðeins með fram-
kvæmdastjóranum, heldur einnig
með öðrum stúlkum, sem vinna ým-
iss konar skrifstofustörf, svo sem vél-
ritun, bókfærslu o. fl. Það er mikil-
vægt, að þú eigir góð samskipti við
hvern og einn innan fyrirtækisins.
Samstarf er hið trausta bjarg, sem
gott samkomulag á skrifstofunni hvíl-
ir á. Líttu á sjálfa þig sem félaga í
flokki. Til þess er ætlazt, að þú skilir
góðu verki innan flokksins. Þetta
felur ekki í sér, að þú verðir að ger-
ast svo náinn vinur þeirra, sem þú
vinnur með, að þú eyðir með þeim
kvöldunum eða helgunum. En þú
verður að fella þig við samstarfsfólk
þitt og eiga góð samskipti við það.
Það er ekki auðvelt að halda jafn-
vægi á miðjunni á skopparakringlu
— né heldur að halda jafnvægi í
tengslum þínum og samskiptum við
fólkið, sem þú vinnur með. Hvernig
ferðu að því að vísa á bug hnýsni og
nærgöngulum spurningum um trún-
aðarmál en viðhalda samt hinum
góða félagsanda, sem er svo nauð-
synlegur, ef þú átt að geta veitt fram-
kvæmdastjóra þínum góða þjónustu?
Mikilvægast af öllu er e. t. v. að
hafa það hugfast, að þú getur ekki
skipað neinum að hafa við þig gott
samstarf — það verður að koma af
frjálsum vilja. Settu sjálfa þig í spor
hins aðilans, og þá mun þér verða
ljóst, hvernig þú getur öðlazt það
samstarf, sem þú óskar þér. Taktu
frumkvæðið í þínar hendur og hjálp-
aðu öðrum á skrifstofunni. Ef þú
hefur búið til lista yfir tækniorð og
hugtök, sem snerta starfið sérstak-
lega, þá láttu stúlkurnar í vélritunar-
deildinni fá afrit af honum. Ef þú
lest yfirlitsgrein um markaðsmál í
nýju viðskiptatímariti, þá sýndu rit-
ara sölustjórans það, svo að hún geti
vakið athygli hans á því. Þú mátt
gjarnan koma með sumarblóm úr
garðinum þínum og setja þau á skrif-
borðið hjá stúlkunni í móttökuher-
berginu. Með því að lífga þannig
umhverfi hennar, stuðlar þú einnig
að því, að gestir þeir, sem eiga er-
indi við framkvæmdastj óra þinn,
verði fyrir þægilegum áhrifum við
komuna. Sýndu sérstaka aðgæzlu í
samskiptum við þá persónu, sem aðr-
ir á skrifstofunni telja „erfiða“. Hún
er e. t. v. aðeins að biðja um skiln-
ing. Þú getur afvopnað hana með
lipurri framkomu þinni og samstarfs-
vilja. Þú þarft ekki að láta þér líka
allt vel í fari þeirra, sem þú vinnur
með, en þú verður að kunna að líta
framhjá því, sem þér fellur miður.
Svo getur farið, að þú verðir einnig
undrandi á að finna grundvöll að
sameiginlegum áhugamálum með
þeim, sem þú taldir daufgerðar leið-
indaskjóður. T. d. gæti sameiginleg-
ur áhugi á að fækka þeim eyðublaða-
formum, sem notuð eru á skrifstof-
unni, orðið til þess, að þú kynntist
einkaritara skrifstofustjórans betur
og þið réðuzt síðan í að leysa vanda-
málið saman.
En þótt þú verðir að læra að um-
bera veikleika annarra, skaltu samt
varast að tileinka þér hegðun siða-
meistara gagnvart samstarfsfólki
þínu. Þér finnst þú e. t. v. vita lausn-
ina á skrifstofuvandamálum ungfrú
Smiths, en það er ekki í þínum verka-
hring að segja henni það. Tillögum
er stundum tekið fegins hendi, en
ekki skaltu samt verða undrandi, þótt
þeim sé tekið kuldalega.
Sýndu öðrum tillitssemi
Þetta á ekki aðeins við um sam-
starfsfólkið, heldur einnig þá gesti,
sem ber að garði í fyrirtæki þínu.
Ef einhver kemur til að hitta fram-
kvæmdastjóra þinn, þá gættu þess,
að vel fari um hann. Taktu við hatti
hans. og frakka og bjóddu honum
sæti, meðan hann bíður. Sýndu öðr-
um háttvísi, en geymdu sjálf þín
vandamál. Fáir hafa raunverulegan
áhuga á þeim. Vertu ekki kvörtunar-
gjör. Fólk vill gjarnan umgangast
glaðvært og hressilegt fólk.
Stillileg framkoma, siðvenjur og
málfar, allt á þetta sinn mikilvæga
þátt í hæfni þinni til að sýna öðrum
tillitssemi.
Hin stillilega framkoma er fyrst
og fremst fólgin í þeim eiginleika að
geta aðlagazt nýju fólki og aðstæð-
um, fljótt og eðlilega, án þess að
missa jafnaðargeð sitt. Þetta krefst
allmikils þroska, því að þú verður
að sýna bæði sjálfsstjórn og sjálfs-
traust. Hið fyrra felur í sér, að þú
ættir aldrei að láta geðshræringar ná
valdi á þér. Láttu ekki reiðina ná tök-
IÐNAÐARMÁL
/
47