Iðnaðarmál - 01.02.1971, Síða 18

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Síða 18
um á þér, þegar eitthvað eða einhver angrar þig eða veldur þér óþægind- um. Vertu ekki taugaspennt eða æst, þegar allt gengur öðruvísi en þú hafðir hugsað þér. Sjólfstraust er raunverulega andstæðan við það að hafa vantrú á sjálfri sér. Þú veizt, að þú ert gædd ákveðnum eiginleik- um og hæfni. Beittu þeim á jákvæð- an hátt við allar aðstæður og vanda- mál, sem verða á vegi þínum. Vissulega verður þú að temja þér góða siði í viðskiptalífinu, engu síð- ur en í samkvæmislífinu. Vertu ávallt háttvís í samskiptum þínum við sam- starfsfólk þitt, og þá mun þér veitast auðvelt að sýna gestum framkvæmda- stjóra þíns fulla kurteisi. Góðir siðir kosta litla áreynslu og enn minni tíma. Oft þarf ekki annað en skjóta inn orðum eins og „gjörið svo vel“ eða „þakka yður fyrir“ á réttum stöðum í samtalinu. Málfar þitt og tungutak er einnig mikilvægt. Þú ættir aldrei að tala óþarflega hátt, en talaðu heldur ekki svo lágt, að áheyrandinn þurfi að leggja eyrun að hverju orði. Radd- blærinn endurómar afstöðu þína. Ef „gjörið svo vel“ hljómar eins og skipun, væri betra að láta þau orð ótöluð. Til viðbótar við hæfilega tón- hæð og viðfelldinn raddblæ skaltu tileinka þér fjölbreyttan orðaforða og málfræðilega rétt tal. Slíkt ber vott um þá góðu menntun, sem gert er ráð fyrir, að þú hafir. En hafðu nú gát á sjálfri þér. Er það nú víst, að gallinn sé hjá hinum, eða ert þú að þjaka einhverja af starfsliðinu með of mikilli heimtu- frekju? I stað þess að skipa sölu- deildinni að leggja fram síðustu vikuskýrslu kl. 11:30 fyrir hádegis- verðarfundinn, mætti þá ekki frekar spvria á þessa leið: „Við vildum gjarnan leggja skýrslu yðar um met- söluvikuna fyrir fund nú í hádeginu. Gætuð þér haft allar tölur tilbúnar handa okkur kl. 11:30?“ Skoðaðu hug þinn vandlega, ef verið gæti, að þú værir haldin einhverjum hleypi- dómum, sem hindruðu snurðulaus samskipti. Oþarft er að ganga fram- hjá aðstoðarmanni og beint til „æðsta manns“, ef þú þarft á ein- hverjum upplýsingum að halda. Hafðu hugfast, að aðstoðarmannin- um er einmitt ætlað að létta slíkum tímafrekum viðvikum af fram- kvæmdastjóranum. Tíminn er stund- um dýrmætari gæði en hráefnið, sem fyrirtæki þitt framleiðir vörur sínar úr — farðu því vel með tíma ann- arra. Vertu ekki uppnæm gagnvart hugsanlegum brögðum og undirferli — það gæti verið misskilningur af þinni hálfu. Ef þér finnst, að sam- skipti þín við aðra séu orðin eitt- hvað leiðinlegri en þau áður voru, þá hafðu góða gát á öllu og leitaðu að orsökinni. Hugsazt gæti, að þú hefðir látið tilfinningarnar fremur en skynsemina ráða í skiptum þínum við aðra. Haltu vöku þinni A flestum skrifstofum er um fleiri aðferðir að ræða til að vinna sama verkið. Haltu ekki með þrjózku í gömlu aðferðina, sem þú telur bezta. Fjöldi nýrra hugmynda hefur þróazt við skrifstofustörf, og margar þeirra geta flýtt fyrir. Vertu vakandi og reyndu nýjar leiðir. Segðu ekki „nei“ við öllu. Segðu heldur: „Gott og vel, ég skal reyna þetta. Ef til vill er nýja aðferðin betri.“ Taktu nýju hug- myndunum með velvilja og prófaðu þær á heiðarlegan hátt. Aðhæfðu þig aðferðum fyrirtækisins Þegar þú ræður þig til starfa hjá nýju fyrirtæki, ertu raunar að segja: „Ég skal vinna eftir aðferðum fyrir- tækisins, hvort sem þær eru réttar eða rangar.“ Vera má, að þú sjáir sitt af hverju athugavert við vinnu- brögðin, en það er mikilvægt, að þú fylgir leikreglunum, sem fyrirtækið hefur sett. Ef þú hefur ástæðu til að ætla, að hugmyndir þínar geti bætt vinnubrögðin, þá gættu þess að ræða um þær við framkvæmdastjóra þinn, áður en þú gerir nokkrar breytingar. Útskýrðu fyrir honum gildi hug- mynda þinna. Taktu gagnrýni með jafnaðargeði Sumir framkvæmdastjórar geta fundið að á þann hátt, að manni finnst gagnrýni þeirra réttlát og heið- arleg. A hinn bóginn eru til fram- kvæmdastjórar, sem geta verið kald- hæðnir og ruddalegir í gagnrýni sinni. Það er mikilvægt fyrir þig að taka gagnrýninni með ró. Það er mikið álag á framkvæmdastjórann að sjá um, að verkin séu leyst af hendi bæði fljótt og vel. Honum finnst hann hafa fullan rétt til að gagnrýna vinnu þína og hegðun. Við skulum vona, að hann geri það af háttvísi og heiðarleika. En ef það skyldi bregðast, verður þú samt að geta tekið gagnrýninni með jafnaðargeði 48 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.