Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 19

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 19
og breytt eftir henni. Mundu, að upp- byggileg gagnrýni er til góðs, og þar sem ekkert okkar er fullkomið, er það veigamikið atriði, að þú snúir gagnrýninni til góðs og bætir sjálfa þig. Tilfinningasemi á ekki við í samskiptum þínum við framkvæmda- stjórann. Gerðu alltaf eins og þú bezt getur Leggðu metnað þinn í verk þín, svo að þau verði þér og framkvæmda- stjóra þínum til sóma. Rannsóknir hafa sýnt, að metnaður þinn í starfi og stolt vegna framkvæmdastjóra þíns og fyrirtækis hefur greinileg áhrif á starfsárangur þinn og starfs- gleði. Það er vissulega rétt, að önnur myndi leysa starf þitt af hendi, ef þú værir ekki þarna. Velgengni þín er fyrst og fremst háð hugarfari þínu gagnvart starfinu og þeirri alúð, sem þú leggur við það. Að gera eins og þú bezt getur þarf ekki endilega að vera hið sama og að strita — hin ágætu nýju tæki, eins og rafmagns- ritvélin, gera þér auðvelt að auka afköst þín. Búðu þig undir starfsam- an dag á skrifstofunni með átta stunda nætursvefni, hollri fæðu og reglulegum líkamsæfingum. Ung og vel gefin stúlka, sem ég þekki, fer jafnan úr strætisvagninum þremur viðkomustöðum frá skrifstofunni og kemur þangað rjóð í kinnum og létt í spori eftir hressandi morgungöngu. Raðaðu daglegum störfum þínum á þann hátt, að þú getir ráðizt í erfið- asta verkefnið, þegar þú ert bezt fyr- ir kölluð. Samkeppni er alltaf spenn- andi — og hvers vegna ekki að keppa við sjálfa sig og sjá, hvort unnt sé að bæta eigin afköst? Reyndu að skrifa 12 bréf á sama tíma og það tók þig að skrifa tíu áður, og eftir nokkurn tíma verður þetta orðin eðli- leg afkastageta þín. Framkoma Framkoma þín ræður að miklu leyti þeirri mynd, sem aðrir gera sér af framkvæmdastjóra þínum, því að auðvitað gera menn ráð fyrir, að þú starfir undir leiðsögn hans. Þótt ekki sé nauðsynlegt, að skrifstofa þín heyi persónuleikasamkeppni innan fyrir- tækisins, er samt mikilvægt, að vin- gjarnlegur viðskiptablær sé yfir sam- skiptum þínum við aðra einstaklinga. Þér finnst það e. t. v. furðulegt, en 75 -—90% þeirra, er missa stöðu sína, gera það vegna vankanta á persónu- leika fremur en vankunnáttu í starfi. Persónulegur árekstur milli einstak- linga er þannig helzta einstök orsök uppsagnar eða brottrekstrar. Vertu glaðleg Flestum okkar finnst auðvelt að setja upp glaðlegt bros, þegar vel gengur. En hvað gerist þegar fram- kvæmdastjóri þinn er úrillur, óleyst verkefni hrúgast upp og allt virðist ganga öfugt? Þá fyrst er geðprýði þín og glaðværð raunverulega mikils virði. Framkvæmdastjóri nokkur lét þessi orð falla um fyrrverandi einka- ritara sinn: „Súa var mjög aðlað- andi starfskraftur fyrir skrifstofu mína — nema þegar mikið álag var — þá kom býflugnaeðlið í ljós.“ Hjálpaðu framkvæmdastjóra þín- um með því að vera jafnan geðprúð og glaðvær. Vertu reiðubúin að taka óbyrgð á herðar þér Flestir framkvæmdastjórar hafa mætur á einkaritara, sem hefur hug á að taka að sér erfiðari viðfangs- efni. Sölustjóri nokkur hafði þessi orð um einkaritara sinn á ráðstefnu: „Betty var vel undir starfið húin, þegar hún kom til mín. Hún var full- komin í vélritun og hraðritun, en það, sem ég met allra mest, er þó áhugi hennar á að læra viðskiptin. Sumar spurningar hennar um sölu- áætlanirnar koma mér í sólskinsskap — þær eru svo skarplegar. Og nú gerir hún allar söluáætlanir fyrir úti- búið okkar, sem ég varð áður að gera sjálfur.“ Þegar þú tekur að þér ábyrgðar- starf — og það er mikilvægt fyrir alla einkaritara — þá gættu þess vandlega að ganga ekki lengra en þér er heimilt. Stundum getur verið erfitt að greina takmörk ábyrgðar þinnar, en þú verður að þroska dóm- greind þina. Fullkomin þekking á eigin starfi og á skyldum fram- kvæmdastjóra þíns er nauðsynleg, áður en þú getur ákveðið takmörk ábyrgðar þinnar. Beittu eigin irumkvæði Hafðu vald á hinum einstöku at- riðum starfs þíns og rannsakaðu þau með hliðsjón af skyldustörfum fram- kvæmdastjóra þíns. Hvar getur þú bætt eigin afköst? Hvernig getur þú sparað tíma og hvernig má nota þann tímasparnað til að létta einstökum störfum af framkvæmdastjóra þín- um? Þekktur maður komst svo að orði: „Greinarmunurinn á einkarit- IÐNAÐARMÁL 49

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.