Iðnaðarmál - 01.02.1971, Page 20
ara og hraðritara er fyrst og fremst
fólginn í áhuga og hæfni hins fyrr-
nefnda til að geta sér til um þarfir
framkvæmdastjóra síns.“ Bíddu ekki
eftir sérstakri fyrirskipun, þegar þú
veizt, að leysa þarf ákveðið verk af
hendi. Gerðu það ótilkvödd.
Starfaðu án eftirlits
Framkvæmdastjóri nútímans er
maður á ferð og flugi. Hann þarf
e. t. v. í hnattferð til að heimsækja
útibú fyrirtækisins um víða veröld.
Þegar hann er í borginni, er hann
önnum kafinn á fundum hjá verzlun-
ar- eða iðnfyrirtækjum, opinberum
stofnunum eða launþegafélögum.
Það er því höfuðnauðsyn, að þú sért
fær um að vinna sjálfstætt, án stöð-
ugs eftirlits og tilsagnar. Ræddu við
framkvæmdastjóra þinn til að á-
kvarða ábyrgð þína og valdsvið. Þeg-
ar hann er fjarri skrifstofu sinni, ert
þú fær um að ráða fram úr aðkall-
andi vandamálum innan þessa af-
markaða sviðs. Aðeins þau málefni,
sem krefjast íhugunar hans og á-
kvörðunar, þurfa þá að bíða komu
hans.
Vertu viðbragðsfljót
Þegar framkvæmdastjóri þinn ger-
ir hlé á upplestri sínum, þá gefðu
þig ekki á vald dagdrauma þinna.
Einbeittu huganum að því, sem hann
hefur verið að segja, og vel getur
verið, að þú getir hjálpað honum um
töluna eða dagsetninguna, sem hann
vantaði. Þegar mikilvægur viðskipta-
vinur hringir vegna innheimtu, þá
dragðu fram skjölin með verð- og
afgreiðsluskilmálunum og láttu þau
á borð framkvæmdastjórans. Rösk-
leg vinnubrögð þín geta sparað deild
þinni símtölin. Vertu vakandi gagn-
vart smáatriðum, þegar pósturinn
kemur á skrifborð þitt. Stuðlaðu að
því að koma í veg fyrir villur og
vektu athygli á atriðum, sem fylgja
þarf eftir.
Hugleiddu starfið
Hvernig fellur starf þitt inn í
heildarmynd fyrirtækisins? Ef þú ert
einkaritari forstjóra söludeildar hjá
framleiðanda heimilistækja, gerir sú
staðreynd, að hörð samkeppni ríkir
á þessu viðskiptasviði, alla þína
sparnaðar- og afkastaviðleitni sér-
staklega mikilvæga. Lestu handbæk-
ur fyrirtækisins, bæklinga um að-
ferðir og framkvæmd skrifstofustarfa
og tímarit um verzlunar- og við-
skiptamál til að afla þér upplýsinga,
sem efla munu kunnáttu þína og
hæfni í starfi.
Vertu sómakær
Heilbrigður metnaður eflir per-
sónuleikann. Vertu sómakær, bæði
fyrir þína eigin hönd, framkvæmda-
stjóra þíns og fyrirtækis. Settu þér
markmið, bæði til skamms og langs
tíma, til að vinna eftir. Einhver
mesta starfsgleði, sem vinnandi fólk
telur, að falli sér í skaut, er fólgin
í viðurkenningunni fyrir vel unnið
starf. Stefndu að markinu, sem þú
hefur sett þér — samhæfðu hæfileika
þína, þjálfun og reynslu til öflugra
átaka. Heilbrigður metnaður örvar
hugsunina, vekur hrifningu og stælir
kraftana. Sómakær hegðun leiðir til
vaxandi ábyrgðar og frama. Hún er
sú innri hvöt, sem mun leiða þig yfir
hina óhjákvæmilegu erfiðu hjalla og
hjálpa þér til að halda réttri stefnu.
Vertu heiðarleg
Viðurkenndu mistök þín. Sannaðu
framkvæmdastj óra þínum, að þú liaf-
ir trausta skapgerð og gott siðferði.
Vellíðan og jafnaðargeð fylgja jafn-
an heiðarleika og heilbrigðri tilfinn-
ingu fyrir verðmætum.
Varðveittu heilsu þína
Þér finnst það e. t. v. furðulegt,
en góð heilsa er mikilvægur þáttur í
ánægjulegum persónuleika. Það er
erfitt að vera aðlaðandi og sýna á-
huga og hrifningu, ef þú ert þreytt
og heilsufarið bágborið. Persónu-
leiki þinn ríður við einteyming á
fáki tilfinninganna, ef þú ferð á mis
við góðan svefn, holla fæðu og hreyf-
ingu. Táp og fjör eru meginþættir
í góðri skaphöfn.
Hafðu opin augu fyrir hinu broslega
Kímnigáfa hjálpar þér til að líta
skyggnari augum á lífið. Hólarnir
verða ekki að fjöllum, og áhyggjur
og kvíði hrannast ekki upp í öfga-
fullum myndum. Með þessari stað-
föstu afstöðu mun bátur þinn ekki
haggast, þótt hann verði fyrir ein-
staka vonbrigðaskvettum eða hnútum
persónulegra móðgana. Þú munt
verða fær um að gera hið bezta úr
aðstæðunum og halda þínu striki.
Sýndu öðrum virðingu
Hafðu hugfast, að siðprýði og til-
litssemi í annarra garð fellur aldrei
úr gildi. Sýndu gestum, er koma á
50
IÐNAÐARMÁL