Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 21
skrifstofuna, óbrigðula kurteisi. Ef útlendingar eru tíðir gestir á skrif- stofunni, þá sýndu þeim vináttu og hjálpsemi og gerðu það, sem í þínu valdi stendur, til að láta þeim líða vel. Fólk hefur mismunandi trúar- skoðanir og siðvenjur, og þú verður að vera umburðarlynd gagnvart sj ón- armiðum, sem eru þér og fram- kvæmdastjóra þínum framandi. Vertu hógvær Hrokafull framkoma mun ekki afla þér eða fyrirtækinu mikilla vinsælda. Þú munt verða þess vís, að því mik- ilvægari persóna sem framkvæmda- stjórinn er, þeim mun meira mun hann leitast við að temja sér aðlað- andi, háttvísa og alþýðlega fram- komu. Hógvær einkaritari mun eiga auðvelt með að stofna til góðrar samvinnu við annað fólk innan fyrir- tækisins. Talaðu aldrei niðrandi um aðra. Þetta á bæði við um samstarfs- og aðkomufólk. Það getur komið þér í koll og einnig bitnað á fram- kvæmdastjóra þínum, ef þú setur þig á háan hest. Með því að koma fram af einlægni við alla — háa sem lága — munt þú afla þér og framkvæmda- stjóra þínum virðingar. Sýndu þakklæti Gjaldkerinn bað ritara sinn að út- vega sér nokkrar tölur frá innkaupa- deildinni, þegar komið var að lokun. Mary vissi, að þetta myndi hafa það í för með sér, að innkaupafulltrúinn og annar af starfsliði hans yrðu að vinna fram yfir vinnutíma til að afla þessara upplýsinga. Næsta morgun útbjó hún skriflega orðsendingu, undirritaða af gjaldkera, þar sem innkaupafulltrúanum var þökkuð að- stoðin við að finna hinar umbeðnu tölur. Sýndu þakklæti — ekki aðeins fyr- ir sjálfa þig, heldur fyrir góða sam- vinnu við þig og framkvæmdastjóra þinn. Vingjarnlegt bros og lítið þakk- aryrði er lykill að góðu samstarfi á skrifstofunni. Skildu vandamál þín eftir heima Á skrifstofunni á að ríkja vin- gjarnlegur blær, en athafnasamur. Þar er enginn staður til að blaðra um „manninn minn“ eða „tengda- mömmu“. Gefðu gott fordæmi til að viðhalda velsæmi og smekkvísi á skrifstofu þinni. Á venjulegum morgni bar það við, að stúlkurnar á skrifstofu nokkurri, þar sem ann- ríki var mikið, byrjuðu sex sinnum, við mismunandi tækifæri, að tala um vandamál sín. I hvert skipti glat- aðist eitthvað af vinnutímanum, stundum allt að 15 mínútur. Og um- ræðurnar héldu vandamálunum vak- andi í hugum þeirra og urðu til að valda villum, þar sem einbeitingu að verkefninu skorti. Vertu aðlaðandi Leyndardómur vel klæddrar konu er fólginn í því, að klæðnaður henn- ar hæfir aðstæðunum. Á skrifstof- unni hæfir hvorki sportklæðnaður skólastúlkunnar né íburðarmikill klæðnaður. Flestum karlmönnum fellur vel einhver aðlaðandi litur á klæðnaði skrifstofustúlkunnar. Falleg hárgreiðsla og hófleg andlitssnyrting fylgir smekklegum búnaði. íburðar- mikil hárgreiðsla og áberandi augn- skuggar hæfa ekki á skrifstofunni. Vertu þjál Hvað er að vera þjál? Að þú hafir hæfileika til aðlögunar. Líttu ekki á breytingar sem ógnun, heldur sem tækifæri til að sýna, hve auðveldlega þú getur aðlagazt. Reglurnar, sem þú lærðir í verzlunarskólanum, eru ekki eitthvað, sem þú verður að fylgja, heldur miklu fremur tillögur um breytni. Ef þær stangast á við þær aðferðir, sem framkvæmdastjóri þinn vill viðhafa, þá skaltu breyta reglunum til samræmis við aðferðir fyrirtækisins eða láta þær sigla sinn sjó. Það er ekki Mid-City verzlunar- skólinn, sem stjórnar þessu fyrirtæki, heldur vinnuveitandi þinn. Ef þú ert nýbyrjuð í starfinu, er ekki óeðlilegt, að þú kennir kvíða eða öryggisleysis. Reyndu þá ekki að hressa við dvínandi sjálfstraust þitt með því að segja öllum, hversu frá- bær vinnubrögðin voru „þar, sem ég var síðast“. Vissulega skaltu notfæra þér fyrri reynslu þína, en reyndu ekki að halda stöðugt fram ágæti XYZ-félagsins — einhver kynni þá að leggja til, að þér væri betra að hverfa þangað aftur. Forðastu „en“-venjuna. Þegar þú ert beðin að vinna sérstakt verk, segðu þá ekki: „En ég þarf að ljúka við skýrsluna í kvöld.“ Taktu fúslega og glaðlega við verkefninu. Ef það á að verða hluti af reglubundnu starfi þínu, mun framkvæmdastj óri þinn hjálpa þér til að endurskipu- leggja einhver af hinum venjubundn- IÐNAÐARMÁL 51

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.