Iðnaðarmál - 01.02.1971, Side 29
Frá vettvangi stjórnunarmála
Ástancfl og riorfur I rafreilcnimálum
á Islancfli
Dagana 22. og 23. maí 1971 var
haldin ráðstefna á vegum Stjórnunar-
félags Islands og Skýrslutæknifélags
íslands, þar sem fjallað var um
ástand og horfur í rafreiknimálum á
íslandi.
Jakob Gíslason, formaður Stjórn-
unarfélags íslands, setti ráðstefnuna
og skipaði Hauk Pálmason, verkfræð-
ing, fundarstjóra.
Þá voru flutt stutt erindi frá öllum
þeim fyrirtækjum og stofnunum hér
á landi, sem leigja eða eiga rafreikni,
og meðal annars lýst þeim verkefnum,
sem unnin eru í rafreiknideildum
þeirra. Þeir, sem fluttu erindi, voru:
Ottar Kjartansson frá Skýrsluvélum
ríkis og Reykjavíkurborgar. Gunn-
laugur Björnsson, sem gerði grein
fyrir þeim verkefnum, er unnin eru í
rafreikni Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga. Jakob Sigurðsson, er
lýsti starfsemi rafreiknideildar Slát-
urfélags Suðurlands. Olafur H. Olafs-
son sagði frá þeim verkefnum, er
unnin yrðu í rafreikni þeim, er Is-
lenzka Alfélagið var að fá þá dagana.
Sveinbjörn Egilsson lýsti starfsemi
Skýrsluvéladeildar Landsbanka ís-
lands. Aðalsteinn Júlíusson lýsti þeim
verkefnum, sem Yerzlunarbankinn
vinnur í rafreikni Verzlunarbanka Is-
lands og Eimskipafélagsins. Vilhelm
Andersen talaði fyrir hönd Mjólkur-
samsölunnar og Magnús Magnússon
fyrir Reiknistofnun Háskólans. Sig-
urður Þórðarson ræddi rafreiknimál
Loftleiða hf., og að lokum lýsti Ottó
A. Michelsen starfsemi Skýrslu-
vinnsludeildar IBM á Islandi. sem
auk þess að sjá um venjulega starf-
semi fyrir IBM selur viðskiptavinum
fyrirtækisins afnot af vélunum í fyrir-
fram ákveðinn tíma (Block time).
011 voru þessi erindi fróðleg og
gáfu glögga mynd af þeim verkefnum,
sem unnin eru í rafreiknum hérlendis,
og starfsemi rafreiknideilda þeirra
fyrirtækja, sem hafa þessar vélar.
Síðari dag ráðstefnunnar hélt
Helgi V. Jónsson, borgarendurskoð-
andi, erindi um rafreikni sem stjórn-
unartæki. Hann sagði m. a., að notk-
un rafreikna væri hér aðeins á byrj-
unarstigi, en ræddi þó um margs
konar verkefni, sem unnin væru í
rafreikni af hinu opinbera. Á sviði
viðskipta og iðnaðar væru nokkrir
aðilar, er notuðu rafreikni semstjórn-
unartæki, sérstaklega á bókhaldssvið-
inu og til bókfærslu birgða og eftir-
lits með þeim.
I iðnaði taldi hann að rafreiknir-
inn ætti mikla framtíð fyrir sér sem
stjórnunartæki, þar sem nauðsynlegt
væri að fylgjast nákvæmlega með
framleiðslukostnaði á einingu, taka
ákvarðanir um framleiðslumagn, gera
söluspár o. s. frv. Með aukinni sjálf-
virkni í iðnaðinum yrði stöðugt
meiri þörf fyrir rafreikna, og erlendis
væru nú þegar verksmiðjur, sem al-
gjörlega eða að hluta væri stjórnað
af rafreiknum. Áreiðanlega væri
tímabært fyrir íslenzkan iðnað að
gefa rafreikninum meiri gaum en
verið hefur, ef hann ætti að standast
harðnandi samkeppni.
Að erindi Helga V. Jónssonar
loknu skiptu ráðstefnugestir sér í um-
ræðuhópa, þar sem rætt var um á-
stand og horfur í rafreiknimálum á
Islandi með tilliti til ýmissa atriða,
svo sem framtíðarþróunar í vélabún-
aði og menntunar á rafreiknisvið-
inu.
Þá kom mjög skýrt fram það álit
fundarmanna, að hér þyrfti að koma
upp fáum stórum rafreiknum, sem
veittu möguleika á að tengja við þá
endastöðvar, jafnframt því sem not-
endur gætu starfrækt litlar deildir
sniðnar eftir eigin þörfum.
Það, sem einkum mælir með þess-
ari þróun, er það, að ýmis verkefni
eru fyrirliggjandi hér á landi af
slíkri stærðargráðu, að rafreiknar
þeir, sem fyrir hendi eru nú, ráða
ekki við þau. Notkun stærri rafreikna
yrði líklega einnig ódýrari, þar sem
þeir bjóða upp á betri nýtingu tækja,
mannafla og fjármagns. Þeir nota
þróaðri forritunarmál og auka magn
þeirra hugverka (software), sem að-
gangur er að, og spara því kostnað
við kerfissetningu. Stærri rafreiknar
opna einnig möguleika á stærri
gagnabönkum og meiri upplýsinga-
söfnun en nú er, og með fjarvinnslu-
tækni veita þeir fleiri fyrirtækjum
tækifæri til að hafa aðgang að raf-
reiknum. Þá er einnig mjög nauðsyn-
legt, að fylgjast með hinni öru þróun
í rafreiknimálum, og stærri einingar
eru í samræmi við þróunina erlendis.
Stærri rafreiknar krefjast þó betra
skipulags á öllum sviðum og betur
menntaðs starfsfólks.
Líklegt var talið, að stórir raf-
reiknar yrðu ekki fengnir til landsins
nema með samvinnu einhverra not-
enda, og var í því sambandi bent á,
að nú væri starfandi nefnd milli
bankanna um samvinnu þeirra, og
einnig væri starfandi nefnd milli
Skýrsluvéla rikis og Reykjavíkur-
IÐNAÐARMÁL
59