Iðnaðarmál - 01.02.1971, Qupperneq 34

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Qupperneq 34
Nýjung í hitalögnum Notkun jDolypropylensröra í hita- lagnir fer ört vaxandi í Vestur-Þýzka- landi. Meðfylgjandi mynd sýnir notk- un polypropylenröra í geislahitun. Úr „Modern Plastics", apríl 1971 Þurrt vatn Svíar hafa fundið nýtt slökkviefni, svonefnt þurrt vatn. Sé efni þetta notað í stað venjulegs vatns, er sagt, að draga megi verulega úr vatns- skaða við slökkvistörf, en eins og kunnugt er, er vatnsskaði o. fl. jafn- mikill eða meiri en eldskaðinn. Þetta nýja efni er venjulegt vatn, sem í hefur verið bætt nokkrum pró- sentum af lilaujrmyndandi efnum. Þurrvatnið má nota bæði í litlar handdælur og stórar slökkvidælur, það leggst sem þurrt lag yfir þann hlut, sem sprautað er á. Þurrt vatn dregur meira úr útbreiðslu elds en venjulegt vatn, vegna þess að upp- gufun þess er hægari, t. d. tekur það 2—5 sinnum lengri tíma að kveikja í hlut, er sprautaður hefur verið með þurrvatni, en ef hluturinn hefði verið sprautaður með venjulegu vatni. Annar mikilvægur eiginleiki þurr- vatns er, að því má skófla í burt, þegar slökkvistarfi er lokið, án þess að það hafi valdið hliðstæðum skemmdum og venjulegt vatn. Þurrt vatn hefur verið þekkt um nokkurt skeið, en tæknilegir erfið- leikar hafa verið á sjálfvirkni íblönd- unar hleypiefnanna í brunaslöngur samfara því, að eiginleikar vatns- geislans frá brunaslöngunum hafa breytzt. Sænskur verkfræðingur, Mats Lindgren, hefur nú leyst þessi tækni- legu vandamál, og sala efnisins er hafin í Svíþjóð. Fyrirtækið Gelco Projects Lind- gren & Co. í Svíþjóð hefur söluum- hoð fyrir þurrt vatn. Mottuvog Nýtt vogarkerfi er nú að ryðja sér rúms. Með þessari tegund voga má vega hvað sem er, ef undirstaðan er föst. Það eru aðeins tvær einingar í þessu kerfi, þrýstingsnæm motta og rafeindalesari, sem gefur beinan af- lestur. Þykkt hinnar loftfylltu mottu breytisl eftir þvi hvaða þungi er lagður á mottuna og mælir rafeinda- lesari mismun á þykkt. Þessa mottu má nota til þess að vega allt að 25 tonna þunga, en von er á nýrri gerð af mottum, er nota má til þess að vega allt að 100 tonna þunga. Meðfylgjandi mynd sýnir tækið í notkun. Úr „Mechanical Handling“ í marz 1971. 64 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.