Iðnaðarmál - 01.02.1971, Page 37

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Page 37
Annálsbrot um fslenzkan iðnað April - Júnf 1971 (Dagsetningar vísa til blaðagreina um málin) Álafossverksmiðjan varð 75 ára 1. apríl 1971. Hún var stofnuð veturinn 1894—95 af Birni Þorlákssyni bónda á Varmá. Lengst af var hún í eigu Sigurjóns Péturssonar og fjölskyldu hans, eða um 50 ár. Hún er nú hluta- félag og þar starfa um 150 manns. (4. apríl 71) Bæjarstjóm Siglufjarðar hefur sam- þykkt að stofna félag til að kanna möguleika á að koma þar upp verk- smiðju til að smíða skemmtibáta til útflutnings. (15. apríl 71) Arðþing Félags ísl. iðnrekenda var haldið á Hótel Sögu 1. og 2. apríl s.l. Fyrirtæki í félaginu eru nú 184. (20. apríl 71) Islenzk gullsmíði verður á kaupstefnu í Kaupmannahöfn fyrstu dagana í maí. Sýnendur eru 9 íslenzkir gull- smiðir. (25. apríl 71) M/s Esia var afhent Skipaútgerð rík- isins í gær. Byggingarkostnaður beggja skipanna, Heklu og Esju, varð 196 millj. króna. (10. maí 71) A norrænnu húsgagnakaupstefnunni í Kaupmannahöfn voru pöntuð íslenzk húsgögn fyrir 2 millj. króna. (18. maí 71) Byggingarframkvæmdum Iðngarða hf. við Grensásveg í Reykjavík er nú að ljúka. Um 16 þús. fermetrar eru nú komnir imdir þak. Framkvæmdimar hófust árið 1965. (19. maí 71) Nýlega var haldinn í Ólafsfirði stofn- fundur félags til að reisa þar spóna- verksmiðju. Áætlaður stofnkostnaður ásamt rekstursfé fyrir fyrsta árið er 58 millj. króna. Framleiða á harðvið- arspón fyrir innanlandsmarkað. (26. maí 71) Samningur um smíði tveggja skuttog- ara 1000 tonna í Slippstöðinni hf. á Akureyri voru undirritaðir nýlega. Fyrri togarinn verður afhentur eftir 21 mánuð. (27. maí 71) í Vík í Mýrdal er í undirbúningi stofn- un prjónastofu og er hlutafé áætlað 2 millj. króna. Prjónavélar hafa verið keyptar frá Þýzkalandí. í prjónastof- unni vinna nú 6 manns, en áætlað starfslið er 14 manns. (9. júní 71) í Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi vinna að jafnaði 130—140 manns og oft fleiri á vorin. Launa- greiðslur 1970 námu um 140 millj. króna. Vinnustundafjöldi er um 280 þús. á ári og fer um helmingur í ný- smíði og hinn helmingurinn í við- gerðir. (9. júní 71) Noregsheimsókn 23 fulltrúa íslenzks fataiðnaðar stóð yfir í eina viku í lok aprílmánaðar. Farið var til Álasunds- svæðisins og fjöldi fyrirtækja heim- sóttur. Mesta athygli íslendinganna vakti gott skipulag og hagræðing í verksmiðjunum og hversu sérhæfing verksmiðja og starfsfólks var almenn og mikil og einnig, hve vinnuhraði var sérlega mikill. (9. júní 71) „Iðnþróunaráform — Staða íslenzks iðnaðar — Hugsanleg markmið og leiðir" heitir skýrsla, sem Iðnaðar- ráðuneytið hefur gefið út. Skýrslan er samin af dr. Guðmundi Magnús- syni prófessor og er alhliða athugrm á framtíðarhorfum iðnaðarins. Hún er eins konar framhald af skýrslunni „íslenzkur iðnaður og EFTA", sem ráðuneytið sendi frá sér í nóvember 1969. (9. júní 71) Stálíélagið hí., sem nýlega var stofn- að til að vinna að undirbúningi ís- lenzks stálvers til að vinna steypu- styrktarjcim úr brotajárni, hefur ný- lega lokið fyrstu könnun í málinu. Er þar um að ræða stofnkostnaðar- áætlun og 10 ára rekstursáætlun. Stofnkostnaður er áætlaður 412 millj. króna, þar af hlutafé um 100—120 millj. króna. Áætlunin gerir ráð fyrir að stálbræðslan geti hafið fullan rekstur á miðju ári 1973 og geti skilað um 20 millj. króna nettótekjum árið 1974. Skýrslan er nú í athugun hjá Norræna iðnþróunarsjóðnum. (10. júní 71) Saumastofan Magni í Hveragerði er 31 árs gömul og hefur vaxið ört síð- ustu 8 árin. Framleiðslan er einkum viðlegubúnaður alls konar s. s. svefn- pokar, tjöld, rúmteppi, vattteppi, úlp- ur og vinnufatnaður. Umsetning er 8—9 millj. króna á ári og þar vinna nú 18 stúlkur. (12. júní 71) Norræni iðnþróunarsjóðurinn hefur nú starfað í rúmt ár. Utlán sjóðsins frá stofmm nema um 300 millj. króna, þar af 70 millj. króna til Iðnlánasjóðs, 50 millj. króna til Utflutningslána- sjóðs og 160 millj. króna til fyrirtækja í ýmsum greinum iðnaðarins. (12. júní 71) Rennilásagerðin er lítið fyrirtæki á Hellu. Þar eru framleiddir um 100 metrar rennilása á klukkustund. Árs- veltan er um 4 millj. króna. Eigandi er Rafn Thorarensen. (9. júní 71)

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.