Iðnaðarmál - 01.02.1971, Qupperneq 38

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Qupperneq 38
SútunarverksmiSjan LoS’skinn á Sauð- árkróki tók til starfa á miðju ári 1970. Sl. haust voru keyptar inn 100 þús. gærur og verður sútun þeirra lokið í júlílok. Loðskinnin fara aðallega á Ameríkumarkað og til EFTA-land- anna. (10. júní 71) Útflutningur iðnaðarins jókst um 50% úr 440 í 660 millj. króna árið 1970 miðað við árið á undan og er þá ál og álmelmi undanskilið. Ef ál er tekið með var aukningin úr 939 í 2370 millj. króna. EFTA markaðssvæðið keypti 52,1%, EBE svæðið 33,9%, Bandaríkin 6,1% og Austur-Evrópa 7,3%. (20. júní 71) Basaltverksmiðja á íslandi. I Norges handels- og sjöfartstidende er skýrt frá því, að í undirbúningi sé bygging basaltverksmiðju hér á landi og sé þar byggt á rannsóknum tékkneskra sérfræðinga. Framleiddar yrðu eink- um pípur og gólfflögur. Norræni iðn- þróunarsjóðurinn hafi falið dönsku fyrirtæki að kanna markaðsmögu- leika í Evrópu og Ameríku. Talið er að fjárfesting í þessu skyni muni vera um 500 millj. króna. (20. júní 71) Ne'shúsgögn í Borgamesi er tveggja ára gamalt fyrirtæki. Eigandi er Sig- urður Jóhannsson og hannar hann framleiðsluna sjálfur. Hann hefur fremur einhæfa framleiðslu, einkum skatthol, og seljast þau vel. (20. júní 71) Hin nýja loðsútunarverksmiðja Iðuim- ar á Akureyri var formlega opnuð í dag. Avörp fluttu Erlendur Einars- son forstjóri, Harry Frederiksen frkv- stj., Pentti Lahtonen verkfr. og Jóhann Hafstein ráðherra, en síðan opnaði Jakob Frímannsson, stjómarformaður S. í. S., verksmiðjuna. Verksmiðjan var hönnuð fyrir 300.000 gærur ár- lega, en á að geta unnið úr 450.000 gærum með nokkrum viðbótarvélum og auknu starfsliði. Af gærufram- leiðslu ársins 1970 mxm verksmiðjan vinna úr 350.000 gærum. Starfslið er nú 80 manns, en verður um 120. Verksmiðjan kostaði um 100 millj. króna. (25. júní 71) Gler og postulin er fremur ungt fyrir- tæki, sem flutti nýlega í ný húsa- kynni í Kópavogi. Framkvæmdastjóri þess er Bragi Hinriksson. Fyrirtækið vinnur glervörur og minningarplatta með innbrenndum áletrunum og myndum. (27. júní 71) Vefstofa Guðrúnar Vigfúsdóttur á Isa- firði hefur starfað um 10 ára skeið og framleiðsla hennar aukist að fjöl- breytni og magni með hverju ári, en þar eru ofin og lituð efni úr íslenzkri ull. Ur efnunum er saumaður mjög vel hannaður tízkufatnaður. Fram- leiðsla þessi er eftirsótt bæði hér og erlendis. (27. júní 71) 9 skuttogarar eru nú í smíðum fyrir Islendinga, þar af 4 á Spáni, 2 í Póllandi og 3 hérlendis, og rmdirbún- ingur er hafinn að smíði fleiri skut- togara. (16. júlí 71) Ráðherranefnd EBE hefur samþykkt að bjóða íslendingum, Svíum, Finn- um, Svisslendingum, Austurríkis- mönnum og Portúgölum fríverzlun með iðnaðarvörur og verði vemdar- tollar úr sögunni 1. júlí 1977. (27. júlí 71)

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.