Iðnaðarmál - 01.02.1971, Side 39
Þrívíðar teikningar
Nú getur arkitektinn stungið teikn-
ingu sinni inn í reiknivél, sett upp
höfuðbúnaS og séð þrívíðar teikn-
ingu af húsinu fyrir framan sig.
Teikningin virðist alveg kyrrstæð,
meðan hann hreyfir sig umhverfis
húsið og — ef hann óskar þess —
inn um aðaldyrnar. Vilji hann gera
breytingar, getur hann matað raf-
reikninn á ný og reynt aftur.
Tæknibúnaður þessi var gerður í
Háskólanum í Utah, og er hann sýnd-
ur á 1. mynd. Hann er samsettur af
skynjara (sensor) á höfðinu, reikni-
vél, aukaminni, stækkara og öðru til-
heyrandi, ásamt sýningarbúnaði, sem
komið er fyrir á höfðinu. Höfuðbún-
aðurinn er stilltur á vélrænan hátt.
Myndin er stækkuð, og með hjálp
1. mynd.
2. mynd.
rafreiknis má fá lýsingu á hlutnum,
eins og sýnt er á 2. mynd.
Hluturinn, eða öllu heldur húsið,
virðist standa kyrrt, meðan áhorfand-
inn hreyfir sig umhverfis það. Það,
sem fram kemur, er mynd af húsinu
frá því sjónarhorni, sem maður skoð-
ar það.
Tæki þetta er enn á tilraunastigi,
en svo virðist sem það muni láta
draum arkitekta og annarra bygg-
ingamanna rætast.
Úr ,.Ajour“ (372) nr. 4, 1971.
Uppblásinn, kældur vöru-
skáli
Uppblásnar vörugeymslur geta
leyst margan vandann nú á dögum.
Bandarískt fyrirtæki hefur framleitl
nýja gerð vöruskála, þar sem kostur
er á kældu andrúmslofti fyrir l. d.
geymslu ávaxta í allt að 9 mánuði.
Skáli þessi er talinn fljótreistur og
ódýr í gerð og þolir vel óstöðugt veð-
urfar. Nælonhúð er þakin neopren
að innan, en gulu gervigúmi að utan.
A myndinni má sjá einn hluta hins
uppblásna vöruskála. A og B sýna
dúkinn, sem hefur fengið sérstaka
meðhöndlun að utan- og innanverðu.
Tækið C er notað til að dæla inn til-
búnu andrúmslofti og viðhalda réttu
hitastigi yfir kælitímabilið. D er
frystitækið, og E sýnir hinn tvöfalda
inngang. Skálinn hefur staðizt vind-
hraða 140 km/klst. um lengri tíma
og hita frá -1- 8°C til + 30°C án
þess að bíða tjón.
Úr „Ajour“ (397) nr. 4, 1971.
IÐNAÐARMAL
67