Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 12

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 12
LISTIÐNAÐUR design IÐNHÖNNUN RAFSI íslensk frumsmíði á rafmagnsbíl Það vakti verðskuldaða athygli fyrir nokkrum árum þegar ungur íslendingur, Steinn Sigurðsson, varð hlutskarpastur í samkeppni um hönnun útlits og yfirbyggingar rafmagnsbíls, sem hið þekkta tímarit Popular Mechanics gekkst fyrir. Það er vissulega athyglisvert að af 599 tillögum sem bárust í áðurnefndri samkeppni skuli hin valda úrlausn koma frá landi þar sem framleiðsla bíla hefur þótt fjarlægur möguleiki fram að þessu. Á hinn bóginn vekur þetta spurningu um það að hve miklu leyti íslendingar gætu að hluta fullunnið eða haft áhrif á gerð minni farartækja er hentuðu íslenskum aðstæðum eða sérhæfðum verkefnum við framleiðslustörf og þá með frekari nýtingu raf- orkunnar í huga. Höfundur Rafsa, Steinn Sigurðsson, er skrifvéla- virki að mennt, en starfar nú sem sölumaður við Masda-umboðið i Reykjavík. Steinn hefur í fleiri tilfellum vakið athygli fyrir tillögur að bílgerðum, t. d. hefur hann hlotið viðurkenningu í hugmynda- samkeppni sem Volvo bifreiðaverksmiðjurnar efndu til fyrir nokkrum árum. - S. S. 6 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.