Iðnaðarmál - 01.01.1978, Side 23

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Side 23
Hektor Sigurðsson verksmiðjustj. stendur hér við vélina, sem vefur utan um blýið og býr til blýteina- tógið. niður í 60 tonn úr 220, þegar best var, en nú er hún komin upp í 155 tonn. Stækkandi möskvar í vörpu- netum vegna friðunaraðgerða hafa einnig haft sín áhrif. Við erum nýbúnir að fá geysistóra netahnýt- ingavél frá Japan, sem hnýtir stóra möskva úr tvö- földu sveru garni. Þetta er einhver stærsta og full- komnasta hnýtingavél, sem fáanleg er, og ákaflega afkastamikil. Með tilkomu hennar getum við full- komlega uppfyllt óskir íslenskra skipstjórnarmanna, um styrkleika stórriðinnar vörpu. Mjög mikil aukning hefur orðið í netaframleiðslunni hjá okkur undanfar- in ár. 1975 framleiddum við 240 tonn, 340 tonn árið 1976, 450 tonn í fyrra og í ár ætlum við að framleiða nær 570 tonn. Við leggjum mikla áherslu á að framleiðsla okkar sé sterk og ávallt fyrirliggjandi. Það er ekki síður áríðandi en verðið. Veiðarfærakostnaður togara er svona 7-8% af heildarkostnaðinum og þar af er netakostnaður ekki nema helmingur, svo allir sjá að það skiptir höfuðmáli að þau séu sem best, svo frá- tafir verði litlar. En jafnframt því sem við aðlögum framleiðslu okkar kröfum skipstjórnarmanna stóru togaranna, þá reynum við einnig að hasla okkur völl annars staðar. Við höfum verið að fikra okkur áfram með fíngerðara efni, bæði fyrir rækju- og spærlings- vörpu, og höfum nú náð góðum tökum á því. — Nú eruð þið að hefja framleiðslu á nýjum teg- undum netateina. — Já, og það má segja, að með því verði ein stökkbreytingin enn í framleiðslu okkar. Og nú verður Hektor Sigurðsson, verksmiðju- stjóri, fyrir svörum. — Við byrjuðum að undirbúa þessa framleiðslu í fyrrasumar, en þá voru blýteinar komnir á markað í Noregi. Það gefur auga leið hvert hagræði það er fyrir sjómenn að losna við að „steina niður“ netin og hve miklu þægilegri þau eru þá í meðförum. Það tók okkur nokkurn tíma að fá gott blý, en upp úr áramótunum gerðum við tilraunir með að tvinna blýþátt inn í kaðlana. Til þess að gera hann þjálli er blýið höggið niður í litla búta, um 7 mm langa. Við settum okkur í samband við mann í Keflavík, sem setur upp mikið af netum og ræddum við nokkra skipstjórnarmenn. Einn þeirra tók af okkur net með blýteini til reynslu. Við gerðum síðan nokkrar breyt- ingar samkvæmt hans fyrirsögn. Skemmst er frá því að segja, að þessi teinn vakti mikla hrifningu. Eftir- spurn eftir honum er geysimikil og líklega verður ekki öðruvísi teinatóg notað í neðri tein framvegis en blýteinn. Hann liggur mjög vel við leirbotn. Við Á þessari mynd sést blýþráðurinn sjálfur. Glögglega má sjá hina litlu býta, sem blýið er höggið i, svo tógið verði þjálla. IÐNAÐARMÁL 17

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.