Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 29

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 29
UPPHAF UPPGÖTVUNAR-HUGMYNDA Eigin reynsla og menntun einstaklingsins 46% Persónuleg sambönd einstaklings utan fyrirtækis 3% Persónuleg sambönd einstaklings innan fyrirtækis ......... 4% Prentuð rit 7% Rannsóknir og þróunarvinna 30% Sambland af framansögðu 10% Ég vona að eftir þennan inngang skiljist betur, hvers vegna ráð voru tekin til þess að koma á fót uppgötvaraskrifstofunni í Danmörku. Það kom í Ijós, að frumkvæðið átti rétt á sér. Skrifstofan tekur árlega við um 600 uppgötvunum, sem er helmingi meira en búist var við, þar eð í fyrstu var gert ráð fyrir um 350 á ári. Var sú áætlun byggð á reynslu uppgötvaraskrifstofa á hinum Norðurlöndunum. Hér fylgja með tvö stöplarit, sem sýna skiptingu uppgötvana á ýmsa aldurshópa og starfshópa. Starfsemin er fjármögnuð að tækniráðinu og þró- unarsjóðnum á þann hátt, að fjárhagsaðstoð er veitt sem starfsstyrkur og eins aðstoðar skrifstofan við sölu á einkaleyfinu sem sérleyfi. Framlag upp- götvarans er það, að lítill hundraðshluti af einka- leyfistekjunum er endurgreiddur til þess að styðja framhaldsrekstur skrifstofunnar. Ef það kemur í Ijós við frekari vinnu við uppgötvunina að hún dug- ar ekki til þess sem vænst var, eða selst ekki, þá verður uppgötvarinn ekki fyrir fjárútlátum. Hér gild- ir gamla kínverska máltækið: „engin lækning - engin borgun“. Styrkurinn er sem sé veittur á því stigi, sem við köllum „örlagamark uppgötvunarinn- ar“, það er að segja, til þess að afla þeirra upplýs- inga og skjala, sem nægja til þess að sanna gildi uppgötvunarinnar. IÐNAÐARMÁL 23

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.