Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 17

Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 17
Franskir dagar - Les jours fran^ais samfélagi til mannauðs Vinnutilhögun og vinnutími Störf í áliönaði eru örugg og vinnutíminn yfirleitt fyrirsjáanlegur. Álið veröur að fram- leiöa allan sólarhringinn, allt árið um kring. í boði verfta einnig hlutastörf fyrir fólk sem á erfitt meö að vinna á vöktum e&a vera í fullu starfi. Stefán Guðjónsson, kerfisfræðlngur, mun vinna viö eittaf stærstu og öflugustu upp- lýsingakerfum á fslandi. Mannauðs- fræðingurinn, Slgurður ólafsson, í Aflhúsi lceland Spa & Fltnessá Reyðarfirði. Samstarf og samráð Áhersla veröur lögö á aö starfsmenn þekki sem best allar hliöar starfseminnar. Teymin munu hafa meö sér náiö samstarf og samráö um mál sem varöa allt fyrir- tækiö og umhverfi þess. Allt aö fimmt- ungi vinnutíma síns munu framleiöslu- starfsmenn vinna í hópum aö ýmsum sameiginlegum málum, svo sem umhverfis-, samfélags- eöa gæöamálum. Hollusta og heilsuvernd Starfsmönnum Alcoa Fjarðaáls á aö líöa vel í vinnunni. í álverinu verður heilsusetur með hjúkrunarfræöingi og öörum heilbrigðis- sérfræðingum. í mötuneyti verður boðið upp á hollt og gott fæði undir leiösögn næringar- ráðgjafa. Fjaröarál styöur einnig heilsurækt starfsmanna. Jafnvægi vinnu og einkalífs Alcoa FjarÖaál á að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hvaö í pví felst nákvæmlega verður starfsmanna að ákveða í samein- ingu. Hiuti af þjónustu viö starfsmenn mun einnig standa fjölskyldum þeirra til boöa. Rekstrarhagfræðingurinn, Bob Roy, ætlar að miðla starfs- mönnum Fjarðaáls af langri reynslu sinni næstu tvö árin. Þjálfun og fræðsla Fræðslusetur verður starfrækt í álverinu og Blrkir Einar Gunnlaugsson mættur á knatt- spyrnuæfingu í Fjarðabyggöar- höllinni, kannskl fullsnemma. allir starfsmenn fá víðtæka þjálfun og fræðslu. Margir munu fá þjálfun í öðrum álverum Alcoa og um 40 erlendir sérfræð- ingar munu aðstoöa við gangsetninguna. Þekking og starfsþróun Allir starfsmenn Fjarðaáls eiga að fá tækifæri til aö leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni og vaxa og dafna í starfi. Starfsmenn munu öölast verðmæta þekkingu sem á að nýtast til frambúðar bæði innan og utan fyrirtækisins. Kaup og kjör íslenskur áliönaður hefur greitt samkeppnishæf laun og starfsmannavelta í greininni hefur veriö lítil. Sören Kristinsson, sonur Ellenar Sæmundsdóttur, starfsmanns Fjaröaáls. Við tökum vel á móti þér Við leggjum mikið upp úr því að finna rétt fólk í rétt störf. Rétta fólkið getur haft mjög ólíka menntun og reynslu. Menntun getur verið fengin úr skóla lifsins og fólk getur hafa öðlast mikilvæga reynslu í gegnum uppeldis- eða félagsstarf. Ráðningarferlið er staðlað og allir umsækjendur eru boðaðir í viðtal. Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá. Svæðisvinnumiðlun Austurlands aðstoðar umsækjendur á Austurlandi við að gera ferilskrá. Viltu vera í liðinu okkar? Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Fjarðaáli. Fæst okkar hafa starfað áður í álveri. Við tökum öll þátt i að móta nýtt fyrirtæki frá grunni. Við ætlum að vinna saman og læra hvert af öðru. Við ætlum að fara nýjar leiðir í stjórnun og skipulagi. Allir starfsmenn verða í lykilhlut- verki. Styrkur fyrirtækisins verður í liðsheildinni. 0 ALCOA www.alcoa.is Alcoa Fjarðaál

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.