Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 16

Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 16
Franskir dagar - Les jours fran^ais Stefna Alcoa Fjarðaáls er aö fjárfesta til framtíðar í öflugu þekkingarsamfélagi bæði innan og utan fyrirtækisins. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt um 140 milljónir króna til samfélagsmála. Slík fjár- festing skilar sér í verðmætum mannauði sem aftur styrkir samfélagið enn frekar. Starfsmenn eru hvattir til að sinna samfélagsmálum og Fjarðaál greiðir styrki með þeim starfsmönnum sem vinna i þágu góögerðarsamtaka. Þannig á samfélagið allt að njóta góðs af. Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjaröar. Þjálfun starfsmanna getur veriö margþætt. Sálfræðingurinn og fræðslustjórinn, Steinþór Þórðarson, er hér ásamt leiðbeinanda á reykköfunaræfingu í Kanada. Aðalheiður Vilbergsdóttir með son sinn, Birki Inga óskarsson. Aðalheiöur stýrir skrifstofu Fjarðaáls á Reyöarfirði. Menntun og reynsla Margvísleg og spennandi störf verða í boði hjá Fjarðaáli. Við ætlum að mynda sam- hentan hóp fólks með fjölbreytta menntun og reynslu. Tæplega 40% starfs- manna verða með háskóla- menntun eða iðnmenntun. Öll störf í fyrirtækinu verða góð störf. Kyn og aldur Starfsmenn Fjarðaáls eiga aö endurspegla og efla samfélagið. Æskilegt er að kynjahlutfall verði sem jafnast og öll störf í álverinu hentajafnt konum sem körlum. Jafnframt er stefnt að góðri aldursdreifingu og eðlilegri endurnýjun í fyrirtækinu. Hluti af mannauðs- og samfélagsteyminu, við Upplýsingamiðstöð Fjaröaráls, með álverið I baksýn. Ferli og teymi í álverinu í Fjarðabyggð verður unnið samkvæmt verkferlum í sjálfstýrðum teymum meö víðtæk verksvið. í teym- unum verða leiðtogar sem styðja liðs- menn og sjá til þess að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu. Kjarnateymum verður skipt upp í álframleiöslu, málm- vinnslu og framleiðsluþróun. Stoðteymi og þekkingarsetur veita kjarnateymum stuðning. Stöðugt verður leitast við að styrkja teymin og bæta verkferlin. Teymin munu sjálf koma að ráðningu nýrra liðsmanna þegar störf losna. Fjölbreytni og fjölhæfni Öll störf í álverinu eru fjölbreytt og munu allir starfsmenn takast á við ólík viðfangs- efni. Að auki verður árlega boðið upp á nokkur starfsþjálfunartækifæri, þar sem áhugasamir starfsmenn fá þjálfun og reynslu á nýjum starfsvettvangi í 1 2 mánuði. Slík starfsþjálfun verður til dæmis á sviði öryggis-, umhverfis, mannauðs- og gæðamála.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.