Franskir dagar - 01.07.2006, Side 16
Franskir dagar - Les jours fran^ais
Stefna Alcoa Fjarðaáls er aö fjárfesta til framtíðar
í öflugu þekkingarsamfélagi bæði innan og utan
fyrirtækisins. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt um
140 milljónir króna til samfélagsmála. Slík fjár-
festing skilar sér í verðmætum mannauði sem
aftur styrkir samfélagið enn frekar. Starfsmenn
eru hvattir til að sinna samfélagsmálum og
Fjarðaál greiðir styrki með þeim starfsmönnum
sem vinna i þágu góögerðarsamtaka. Þannig á
samfélagið allt að njóta góðs af.
Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjaröar.
Þjálfun starfsmanna getur veriö margþætt.
Sálfræðingurinn og fræðslustjórinn, Steinþór Þórðarson,
er hér ásamt leiðbeinanda á reykköfunaræfingu í Kanada.
Aðalheiður Vilbergsdóttir með son sinn, Birki Inga óskarsson.
Aðalheiöur stýrir skrifstofu Fjarðaáls á Reyöarfirði.
Menntun og reynsla
Margvísleg og spennandi
störf verða í boði hjá
Fjarðaáli. Við ætlum
að mynda sam-
hentan hóp fólks
með fjölbreytta
menntun og
reynslu.
Tæplega 40%
starfs-
manna verða
með háskóla-
menntun eða
iðnmenntun.
Öll störf í
fyrirtækinu
verða góð
störf.
Kyn og aldur
Starfsmenn Fjarðaáls eiga aö endurspegla
og efla samfélagið. Æskilegt er að
kynjahlutfall verði sem jafnast og
öll störf í álverinu hentajafnt
konum sem körlum. Jafnframt er
stefnt að góðri aldursdreifingu og
eðlilegri endurnýjun í fyrirtækinu.
Hluti af mannauðs- og samfélagsteyminu, við
Upplýsingamiðstöð Fjaröaráls, með álverið I baksýn.
Ferli og teymi
í álverinu í Fjarðabyggð verður unnið
samkvæmt verkferlum í sjálfstýrðum
teymum meö víðtæk verksvið. í teym-
unum verða leiðtogar sem styðja liðs-
menn og sjá til þess að þeir búi yfir
nauðsynlegri þekkingu. Kjarnateymum
verður skipt upp í álframleiöslu, málm-
vinnslu og framleiðsluþróun. Stoðteymi
og þekkingarsetur veita kjarnateymum
stuðning. Stöðugt verður leitast við að
styrkja teymin og bæta verkferlin.
Teymin munu sjálf koma að ráðningu
nýrra liðsmanna þegar störf losna.
Fjölbreytni og fjölhæfni
Öll störf í álverinu eru fjölbreytt og munu
allir starfsmenn takast á við ólík viðfangs-
efni. Að auki verður árlega boðið upp á
nokkur starfsþjálfunartækifæri, þar sem
áhugasamir starfsmenn fá þjálfun og
reynslu á nýjum starfsvettvangi í 1 2
mánuði. Slík starfsþjálfun verður til
dæmis á sviði öryggis-, umhverfis,
mannauðs- og gæðamála.