Franskir dagar - 01.07.2009, Qupperneq 10
Franskir dagar - Les jours fran^ais
Þemunes um 1940. Húsiö var byggt af Kristjáni Indriöasyni og Lukku Friöriksdóttur áriö 1916.
Eins og áöur segir má lesa um framfarir á
ýmsum sviðum í dagbókum Þorsteins og þar
er til að mynda aö finna þessa frásögn frá
laugardeginum 22. maí 1943: „Gottveður.
Var talsvert næturfrost, og hvít Hafranes-
Qaran í morgun, af ísreki. Símamennirnir
unnu hér í dag, lögðu línuna hér heim. Kl.
hálf fimm var komiö simasamband hér heim,
og talaði ég bæði við Eyri og Berunes. í
kvöld smöluðum við ekki fénu og liggja
ærnar því úti í fyrsta sinn í nótt.“ Og enn
af framförum þann 30. ágúst 1947: „Dálítill
framan vindur fyrst i morgun, sem ekkert
varð svo úr. Sólskin öðru hvoru og sæmi-
legur þurrkur. Ekki hirtum við þó nema 9
bagga. Sá atburður gerðist hér í dag, að ég
fékk í fyrsta sinn vörur á bílum hér heim í
hlað. Komu tveir bilar frá Kaupfél. á F.f. með
kol og maís, hér heim að kjallaradyrum. Var
það áreiðanlega mikill munur, móts við það
að fá vörurnar á bát hér að Sandinum."
Þorsteinn var alla tíð mikill göngu- og
íþróttamaður. Hann fór hratt yfir og skrapp
í kaupstað eða á milli bæja fótgangandi
án þess að það væri nokkuð tiltökumál.
Jóhanna dóttir hans minnist þess einnig
að hann hafi einhverju sinni brugöið á leik
með börnunum og staðið á haus, þá kominn
hátt á sextugsaldur.
Hjónin sungu bæöi í kirkjukór Kolfreyju-
staðarkirkju og einnig var Þorsteinn safn-
aðarfulltrúi til margra ára og sinnti hlutverki
sínu sem slíkur af alúð. Sönginn æfði hann
ekki aðeins þegar kórinn kom saman heldur
mátti oft og tíðum ganga að honum syngj-
andi við vinnu, meðal annars í fjósinu. Þor-
steinn gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína, m.a. bólusetti hann við garnaveiki
á sinni byggð í 25 ár, var í hreppsnefnd og í
yfirkjörstjóm Fáskrúðsfjarðarhrepps.
Bömin hjálpuðu til við bústörfin eftir getu
og smám saman tók elsti sonurinn Bjöm við
ásamt eiginkonu sinni Sigríði Steinsdóttur
frá Dölum, en Þorsteinn vann á búinu meðan
kraftar leyföu. Lovisa lést árið 1973, en Þor-
steinn lést árið 1991, á 82. aldursári.
Nýgift, Þorsteinn og Lovísa i Vopnafiröi.
Þorsteinn í herbergi sinu á Þernunesi
Heyi ýtt að hlööunni á Þernunesi, Þorsteinn stjórnar ýtunni, Jens Olsen
vinnumaöur togar i hestinn og Björn Þorsteinsson heldur á heyinu.
10
Á