Franskir dagar - 01.07.2009, Page 28

Franskir dagar - 01.07.2009, Page 28
Franskir dagar - Les jours fran^ais Texti: Albert Eiríksson myndir: úr einkasafni Sigsteinn í Tungu „Ég heflifað ákaflegafarsœlu lifi og er þakklátur forsjóninni fyrir það sem hún hefur úthlutað mér. Maður verður að takaþvísem að manni er rétt. Því verður ekki á móti mœlt að sterkar taugar liggja til þess staðar þar sem maður eyðir ungdómsárunum, lengi vel saknaði ég mikið fjallanna fyrir austan og oft er ég búinn aðfara á œskuslóðirnar,” segir hinn 104 ára Sigsteinn Pálssonfrá Tungu í Fáskrúðsfirði sem nú dvelur á Dvalarheimilinu Hlaðhömrumum í Mosfellsbœ. Foreldrar Sigsteins voru Páll Þorsteinsson (1863-1951) frá Víðivallagerði í Fljótsdal og Elínborg Stefánsdóttir (1876-1951) frá Þóreyjamúpi í Vestur-Húnavatnssýslu. Þau bjuggu fyrstu fjögur árin á Víðiiæk í Skrið- dal og eftir það í átta ár í Þingmúla í sömu sveit. Ungu hjónin urðu fyrir mikiu áfalli íyrir sláturtíð síðasta haustið þar, þá fennti fé til dauða og a.m.k'. eitt hross. „Móðir mín hafði áhuga að komast nálægt sjó til að fá nýmeti handa bömunum.” Páll og Elínborg fluttu í Tungu árið 1898 með sjö börn en þangað áttu þau ekki bein tengsl. Þar var þá þríbýli, þau tóku yfir öll býlin og eftir það var búið á einum stað. Fyrstu árin vom öll hús frekar léleg í Tungu, skárst vom húsin i Tunguhóli (þar sem lista- maðurinn Rikharður Jónsson fæddist). Þar vom geymd matvæli og fleira sem ekki mátti verða íyrir skemmdum. Sigsteinn heyrði þá sögu að Jónasi presti á Kolfreyjustað hafi ekki litist á blikuna þegar von var á ungum hjónum með svo mörg böm í sveitina. Þetta var óþarfa ótti því eftir tvö ár í Tungu var Páll orðinn hreppstjóri og gegndi því fram yfír 1930 er Gunnar sonur hans tók við. „Það var allmikið starf að vera hreppstjóri og enn meira þegar fjörðurinn var einn hreppur. Faöir minn var því mikið að heiman.” Ungu hjónin byggðu sér hús árið 1905 og munu hafi verið skuldlaus um haustið. Hluti af íbúðarhúsinu Sævarborg á Sæv- arendaströnd var notað í Tunguhúsið. Þaö var timburhús með kjallara og portbyggt með tveimur kvistum. Húsið þótti höll í sam- anburði við kofana sem fólkið bjó í á þeim ámm. Öll uppvaxtarár Sigsteins var fjölmennt í Tungu, mest voru þar 21 í heimili. Sigsteinn hændist mikið aö vinnukonu sem þar var og Björg hét. Það kom að því að hún hætti í vinnumennskunni og fór frá Tungu. Aöspurð sagði hún Sigsteini að hún væri að fara út í veröldina. Saman fóm þau að Gestsstöðum til að kveðja og er þau komu niður undir Dals- ána sagði hann; „Er þetta veröldin?” „Þetta er það fyrsta sem ég man raunveralega eftir mér,” segir Sigsteinn. „Eg ólst að mestu upp með systram mínurn, Qórar era eldri en ég og tvær yngri. Bræö- urnir vora enn eldri. Jónína Benediktsdóttir frá Geirólfsstöðum í Skriðdal kenndi okkur einn vetur þegar ég var sex ára, einnig kenndi hún systrum mínum aö sauma og baka. Eg gekk á eftir mömmu til að fá taupjötlu til Hjónin á Blikastöðum í Mosfellssveit; Helga Magnúsdóttir og Sigsteinn Pálsson. að sauma úr eins og stelpurnar. Hún fann léreft sem Jónína teiknaði á og ég saum- aði. Af þessu hafði ég gaman enda allur i kvennaverkunum og frábitinn sveitastörfum á þeim aldri. Þegar systur mínar vora famar að heiman þá lentu sum af þessum kven- mannsverkum á mér. Eg kunni til dæmis á prjónavél, ég prjónaði sokka og nærföt. Ég prjónaði og prjónaði heima í Tungu. Jónína varð seinna kennslukona á Búðum en flutti aftur i Skriðdalinn og giftist Helga Finns- syni nágranna sínum. Þá var ort: Þau hafa leitaö langt yfir skammt lífið stundum fundist rammt þau era bæði úr sömu sveit sameinuð í eftirleit.” Börnin í Tungu fóra í ýmsa leiki sér til afþreyingar. “ Við fórum í þakbolta og slag- bolta. Einn útileikur var t.d. fuglaleikur. Þá voram við skírð fuglanöfnum í laumi, þar var staðið í hóp og sá sem var úti átti að giska upp á nöfnum fuglanna. Þegar hann gat upp á réttu nafni hljóp sá fuglinn af stað og við áttum að ná honum. Svo var líka skessuleikur og líka stórfiskaleikur. Að vetrinum var svell oft á nesinu fyrir neðan túnbrekkuna. Eldra fólkið lagði sig í rökkrinu en við krakkarnir máttum fara út og leika 28

x

Franskir dagar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.