Franskir dagar - 01.07.2011, Side 7
Franskir dagar - Les jours franqais
Lýðveldisdagurinn 1944, hátíðahöld á Búðagrund. Hliðið og áhorfendur í baksýn.
Mýndasmiður: Baldur Björnsson.
Lýðveldisdagurinn 1944, fimleikasýning á Búðagrund, fimleikaflokkurinn I sérsaumuðum fötum með
Leiknismerkinu framaná. Myndasmiður: Baldur Björnsson.
flasið á Frönsurunum. Okkur var um og ó og þutum
upp klettana þarna fyrir ofan. Þeir skemmtu sér
yfir þessu og veltust um af hlátri. Svo komu alltaf
franskar „korvettur" (lítil eftirlitsskip) á hverju
vori, sjómennirnir fóru í Franska grafreitinn og
löguðu krossana og dittuðu að. Þegar stríðið byrj-
aði og Frakkarnir hættu að koma, tókum við stelp-
urnar að okkur þeirra hlutverk. Ég man vel eftir
perlukrönsunum sem voru á leiðunum.
Um borð I frönsku korvettunum voru skipshundar.
Okkur þóttu þeir hafa dimmt gelt sem barst um
allan fjörð. Áður fyrr prjónuðu allmargir heima-
menn fyrir Frakkana sem keyptu af þeim ferskt
kjöt ogfleira. Þeir notuðu einnig rauðvín í vöru-
skiptunum. í einu húsi í þorpinu var húsbóndinn
duglegur að sanka að sér rauðvíninu og sagan
segir að svo mikið hefði verið til af því að það
hafi verið notað í sætsúpu með rúsínum."
íþróttir
Mikil skemmtun var 17. júní á Búðagrund árið
1944, þar voru sýndar íþróttir, sungið og haldnar
ræður. Um kvöldið var fjölmenn veisla í barna-
skólanum, dansað var í leikfimisalnum og veit-
ingar bornar fram í skólastofunum. Dásamlegt
veður var og tæplega 20 stiga hiti. Hrefna segir
að þá nótt hafi margir verið úti að ganga eftir
ballið.
„Þó ég hafi verið nokkuð í íþróttum, tók ég ekki
þátt í íþróttasýningunni 17. júní. Þá var ég ekki
komin með gleraugu og nærsýnin háði mér í
útiíþróttum. En ég æfði töluvert handbolta,
innbæingar og útbæingar kepptu oft i hand-
boltaleikjum," segir Hrefna og bætir við brosandi
að hún hafi verið orðin tvítug þegar hún fékk
gleraugun „og þá var ég orðin svo pjöttuð að ég
gat helst ekki látið sjá mig með þau, notaði þau
aðallega innandyra til að byrja með."
Hrefna lærði á skíði hjá Gunnari Ólafssyni kenn-
ara „sem var frábær maður og gaf okkur krökk-
unum ómældan tíma". Gunnar stóð að stofnun
Skíðafélagsins Svans á Fáskrúðsfirði. „Þegar ég
var 15 ára fórum við upp frá Bakka, innan við
Innri-Búðir, lengst upp í fjall og ég brunaði niður.
Ég var nýbúin að kaupa mér leðurskó á skíðin
sem voru með gormabindingum. Ég vará mikilli
ferð í góðu færi, allt í einu lenti ég í lausamjöll,
tókst við það á loft, fór margar kolIsteypur og
vankaðist. Þegar ég rankaði við mér voru krakk-
arnir að stumra yfir mér. Annað skíðið var langt
fyrir ofan mig í brekkunni, hafði stungist þar
niður í snjóinn en hitt við hliðina á mér. Eitthvað
mikið gerðist í hnénu á mér og ég grét af kvölum
um nóttina. Pabbi fékk blývatn hjá lækninum og
bar á stokkbólgið hnéð til að ná út mari. Ég átti
þó nokkuð lengi í þessu."
Björn, faðir Hrefnu og Stefán Jakobsson voru
góðir vinir, þeir stofnuðu glímufélag á Búðum
ásamt Eyjólfi Sigurðssyni í Ásgarði og Jóni Stef-
ánssyni verslunarmanni. Þeirfóru um Austurland
og kepptu meðal annars á Eskifirði, Loðmundar-
firði, Mjóafirði og Seyðisfirði. Þessir fjórir voru
aðaldriffjaðrirnar í glímufélaginu. Þeir æfðu og
kenndu glímu í skólanum. Auk glímunnar stund-
aði Björn sjósund reglulega.
„Þess má geta að Stefán rak Stefánsbúð sem
ég man aðeins eftir, en af öðrum verslunum á
Búðum í mínum uppvexti má nefna Kaupfélagið
og Kompaníið. Einnig man ég eftir að Kristinn
Bjarnason verslaði með metravöru ogfleira í
Merkúr. í Pétursborg var verslun með álnavöru
og sælgæti sem rekin var af Ingu (Ingibjörgu
Sveinsdóttur) og móður hennar sem þar bjuggu.
Á Bergi var verslun sem Björn og Lára ráku, ég
man lítið eftir þeirri búð. Svo verslaði Brynjólfur
Jónsson á loftinu í Kaupvangi og Páll Benedikts-
son var með verslun niðri í Valhöll. Einnig man
ég örlítið eftir verslun í Stangelandshúsinu. Hún
var þó nokkuð stór og gengið var inn af götunni.
Framkaupstaðarbúðinni man ég ekki eftir."
Bíladella
Sumarið 1948 tóku Hrefna og Hulda Kalla bílpróf,
fyrstar kvenna á Fáskrúðsfirði. Karl Jóhanns-
Kaupfélagsbryggjan 1952. Myndin tekin af efra þilfari Heklu við komu til Fáskrúðsljarðar. Fremst sést vörublllinn Herjólfur sem sagt er frá I
texta. Á bryggjunni eru m.a. Haraldur Sigurðsson, læknir og Lita kona hans. Einnig Jóhanna Stefánsdóttir I Ásbrú.
Myndasmiður: Andreas Bohn Ipsen - tengdafaðir Haraldar læknis tók myndina úr Heklu við komu þeirra hjóna til dóttur sinnar (Litu) og
tengdasonar.
7