Franskir dagar - 01.07.2011, Síða 8

Franskir dagar - 01.07.2011, Síða 8
Franskir dagar - Les jours franqais Brattahlíð nýbyggð, 1952. Myndasmiður: Sigurður Haraldsson. QQP* son, faðir Huldu kenndi þeim. „Fyrst fór hann með okkur inn á Leirur. Þar kenndi hann okkur grunnhandtökin við aksturinn. Að því loknu fór hann að spjalla við einhvern og skildi okkur eftir og þar áttum við að æfa okkur. Kalli lagði mikla áherslu á að bakka upp bratta og helst í beygju. Þetta gerðum við á vörubílnum í prófinu. Einhvern veginn gekk þetta nú allt og ég á öku- skírteini númer 68. Það var svo ekki fyrr en ég fór að keyra fólksbíl að mér þótti það eins og að keyra hjólbörur. Allt svo þægilegt og auðvelt." Til að fá útrás fyrir bíladelluna réð Hrefna sig í sumarvinnu hjá Kaupfélaginu að keyra her- trukk sem ávallt var kallaður Herjólfur. Hún flutti timbur og keyrði út slóg á melinn fyrir innan Krossana. Bíllinn var á undanþágu því brems- urnar voru mjög lélegar. „Baldur bróðir hund- skammaði mig fyrir að keyra á bremsulausum bílnum. Eitt sinn var ég að koma frá því að keyra slóg þegar Baldur beið mín og sagði að ég mundi ekki keyra þennan bíl oftar í þessu ásigkomulagi. Hann hafði fengið staðfestingu hjá sýslumanni að bíllinn væri ólöglegur í umferðinni og þvertók fyrir að ég keyrði hann oftar." Og svo varð Hrefna fullorðin Hrefna giftist Sigurði Har- aldssyni, syni HaraldarSig- urðssonar sem var læknir á Fáskrúðsfirði. Haraldurog Lita kona hans, sem var dönsk, komu meðsvokall- aðri Petsamóferð til ís- lands. Esjan flutti um 300 íslendinga frá Petsamó i Finnlandi árið 1940. Um þetta leyti unnu Haraldur og Lita sem læknar í Dan- mörku en þurftu að koma sértil Finnlands í vegfyrir skipið. Allir bæjarbúar tóku á móti ungu læknis- hjónunum, eins og alsiða var - oft var fjölmenni á bryggjunni. Sigurður og Ragna voru börn Haraldar af fyrra hjónabandi. Þegar Haraldur og Lita komu hafði verið læknislaust í um ár eftir að Snorri Ólafsson fór. Á undan Snorra var Guðmundur Guð- finnsson „hið mesta ljúfmenni."Guðmundurskar þó nokkra upp við botnlanga og fór um allt Austurland sem augnlæknir sem var hans sér- grein. Hann gerði augnskurði á skurðstofunni á efri hæðinni í Læknishúsinu og þótti afarfær. Þarna var hvorki röntgentæki né hjúkrunarkona til aðstoðar. Eiginkona hans, Margrét Lárus- dóttir, aðstoðaði hann. Guð- mundurvarð bráðkvaddur eftir fjögurárá Fáskrúðsfirði, öllum harmdauði. Á meðan læknis- laust var útdeildi Björn kaup- félagsstjóri asperíni, verk- og vindeyðandi ogfleiri nauðsynlegum lyfjum. Hrefna og Sigurður hófu sinn búskap hjá Baldri bróður hennar á loftinu í Kaupvangi. Ungu hjónin byggðu síðar Brattahlíð og fluttu þangað árið 1952 en fluttu suður 1957 og bjuggu lengst af í Kópavogi. Börn þeirra eru Birna f. 1951, Guðný María f. 1954, Haraldurf. 1956 og Hrafn sem fæddist tveimur vikum eftir að þau komu til Reykjavíkur. Björn Daníelsson flutti með þeim suður en fór öll sumur austur og var hjá Baldri og Valborgu í Kaupvangi. „Ég hætti á símanum rétt áður en ég átti Birnu. Var heimavinnandi i 22 ár en dreif mig á vél- ritunarnámskeið og fékk í framhaldinu vinnu á elliheimilinu Grund. Þar var mér mjög vel tekið og reyndar finnst mér það hafi verið ein mín mesta gæfa í lífinu að fá vinnu þar." Hrefna og Sigurður skildu. Hún giftist síðar Sig- urði Guðmundssyni frá Akureyri og saman fluttu þautil Grindavíkur árið 1978. Þarsetti Hrefna, í samstarfi við tengdason sinn, upp úra- og skart- gripaverslun og rak hana á meðan hún bjó í Grindavík. Sigurðurvann hjá Loftleiðum ogsíðar Flugleiðum en starfaði áður á millilandaskipum og var á Goðafossi þegar skipið var skotið niður í seinni heimsstyrjöldinni. í Grindavík bjuggu Hrefna og Sigurður í tvo áratugi en búa nú í vesturbæ Reykjavíkur. Hrefna vinnur nú aftur á Grund og sér ásamt öðrum um „morgunstund" (sem er afþreying fyrir heimilisfólkið) og ýmis- legtfleira. Hrefna með börnin sín og afa þeirra. F.v. Björn Daníelssson, Guðný María, Hrafn, Hrefna, Birna og Haraldur. Myndasmiður: Sigurður Haraldsson. TilboðumFranskadaga. Frönsklauksúpa Hamborgaratilboð • Pizzatilboð Pylsutilboð • Réttur dagsins Áprentaðirboliro.fl. SÖLUSKÁLI S.J. FÁSKRÚÐSFIRÐI & 475 1490 SKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGA 8

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.