Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.01.2008, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 24.01.2008, Blaðsíða 14
14 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR Leiðangur manna á vegum Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja hf. var gerður í Eldey á sunnudag. Tilgangur leiðangursins var að setja upp sjónvarpsmyndavél í eyjunni sem mun senda út mynd í hágæða upplausn allan sólarhringinn, allan ársins hring. Þessi útvörður Reykjanessins rís 77 metra úr sæ um 14,4 kílómetra frá landi. Gróðurfar í eyjunni er ekkert. Þar er eingöngu klöpp og skítur, já og það djúpur skítur. Ef ekki hefði verið frost þegar leiðangurinn var farinn í Eldey sl. sunnudag, þá hefðu leiðangursmenn þurft að vaða skít a.m.k. upp á miðja kálfa og fullyrt er að sumsstaðar á eyjunni háu sé gúanóið undir bælum súlunnar allt að metri á dýpt. Árni Johnsen, alþingismaður, var á meðal leiðangursmanna. Hann er sá einstaklingur sem oftast hefur komið í Eldey. Tvívegis hefur hann klifið eyjuna, þverhníptan sextugan hamarinn þar sem hann er lægstur. Tvívegis hefur Árni farið í eyjuna með þyrlu, en það var einmitt farkosturinn sem notast var við í þessari ferð. Njarðvíkingurinn Jakob Ólafsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, fór fyrir áhöfn þyrlunnar Steinríks, sem flutti leiðangurinn, átta manns út í Eldey. Blaðamaður Víkurfrétta var þar á meðal og er þar með kominn í hóp þeirra u.þ.b. tuttugu einstaklinga sem komið hafa í Eldey frá því hún var fyrst klifin árið 1896. Síðast var farið í Eldey 1982, þannig að þessi stærsta súlubyggð í heimi getur ekki sagt að hún hafi orð á sér fyrir að verða fyrir átroðningi ferðamanna. Ferðamenn munu hins vegar verða tíðir gestir í eyjunni um ókomin ár. Nú verður nefnilega hægt að heimsækja Eldey í gegnum Internetið Eldeyjarsúlur í beinni útsendingu og fylgjast með fuglalífinu þar í beinni útsendingu. Tilhugalíf súlunnar, varpið og ungarnir eiga örugglega eftir að verða tíðir gestir á tölvuskjám út um allan heim. Sett hefur verið upp sjónvarpsmyndavél í Eldey og hún tengd við öflugan sjónvarpssendi sem sendir lifandi myndir úr eynni upp á fasta landið. Móttakari er við Reykjanesvirkjun og þaðan verður myndefninu miðlað áfram inn á Internetið. Útsendinguna úr Eldey verður innan tíðar hægt að nálgast á vefsvæðum Reykjanesbæjar, Hitaveitu Suðurnesja og á ferðamálavefnum Reykjanes.is, svo einhverjir vefir séu nefndir. Hugmyndin um vefmynda- vélina er ekki ný af nálinni. Þorsteinn Erlingsson, bæjarfulltrúi og fyrrum skipsstjóri hefur í mörg ár látið sig dreyma um að gera súluna í Eldey aðgengilega á þennan máta. Það hefur Árni Johnsen, alþingismaður og fjórfaldur Eldeyjarfari, einnig gert. Það var því seint á síðasta ári sem haft var samband við Sigurð Harðarson, sem hefur mikla reynslu af því að setja upp fjarskiptabúnað við erfiðar aðstæður. Hann hefur komið upp endurvörpum fyrir fjarskipti í hæstu tindum og á stöðum sem eru gjörsamlega ófærir öðruvísi en með þyrlu. Verkefnið í Eldey er reyndar fyrsta verkið sem Sigurður vinnur sem felst í að senda út sjónvarpsefni. Smíðað var sérstakt hús utanum myndavélina og sendibúnaðinn. Húsið er með mjög bröttu þaki sem á að koma í veg fyrir að súlan geti sest á þakið. Myndavélin er í kvistglugga sem er einnig með þannig halla að drit úr fuglinum á ekki að geta sest á glerið. Þá er í húsinu sjónvarpssendir og annar fjarskiptabúnaður fyrir myndavélina. Myndavélin og sendirinn eru síðan drifin áfram með rafgeymum sem sólarorkuspeglar sjá um að hlaða. Gert er ráð fyrir að endurnýja þurfi rafgeymana eftir um fimm ár. Að ári vilja aðstandendur verkefnisins koma fyrir annarri myndavél í húsinu í Eldey, auk þess sem hljóðnemi verður þá settur upp sem mun koma garginu í súlunni um heimsbyggðina alla. Útsendingar myndavélarinnar í Eldey verður hægt að nálgast á næstunni en unnið er að því að koma útsendingunni inn á Internetið. Meðal annars þarf að auka bandvídd á netsambandi við Reykjanesvirkjun. Farið í Eldey í fyrsta skiptið í tæpa þrjá áratugi: Eldeyjarfarar 2008. Frá vinstri: Hilmar Bragi Bárðarson, Árni Johnsen, Árni Sigfússon, Viðar Oddgeirsson, Sigurður Harðarson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Geir Sigurðsson. Þorgrímur St. Árnason var einnig í ferðinni en hann smellti af þessari hópmynd. „Sjónvarpsstöðin“ komin á sinn stað í Eldey og unnið að lokafrágangi. Myndavélin er á þeirri hlið sem er á móti sjó á þessari mynd og tekur mynd niður hrygg á Eldey. Þar er hreiður við hreiður og sjónarhornið glæsilegt. Árni Johnsen, fjórfaldur Eldeyjarfari, ásamt Þorgrími St. Árnasyni frá Hitaveitu Suðurnesja. Veðrið í Eldey sl. sunnudag var eins og best verður á kosið eins og sjá má á myndinni. Þyrlan Steinríkur flutti myndavélabúnaðinn út í Eldey. Þarna á eftir að stilla húsið af en myndavélinni er beint yfir þessa hlíð og hrygginn efst. Þarna er þétt súlubyggð og ákjósanlegt sjónarhorn. Myndavélin sér í átt til Reykjaness. Fleiri myndir úr ferðalaginu í Eldey ásamt vefsjónvarpi með viðtölum eru á vef Víkurfrétta, vf.is Súlubyggðin í Eldey eins og hún gerðist þéttust síðasta sumar þegar Hilmar Bragi flaug yfir eyjuna með norska hernum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.