Víkurfréttir - 15.03.2012, Síða 4
4 FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
www.honda.is
Við hjá Honda leggjum ástríðu okkar í að skoða nýjar slóðir og nýjar hugmyndir. Það er einmitt þar
sem allir nýju möguleikarnir liggja. Þetta er hugmyndin á bakvið nýjan Civic. Hönnuðir okkar vildu
hanna besta Civic frá upphafi, þannig að þeir lögðu af stað í stærsta ferðalag sitt til þessa.
FRUMSÝNUM NÝJAN CIVIC
Laugardag milli kl. 12:00 og 16:00
Frumsýning
Ef Við Hættum Okkur
ALDREI INN Á ÓKUNNAR SLÓÐIR
HVERNIG UPPGÖTVUM VIÐ ÞÁ NÝJAR?
Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is
›› Póstkassinn:
Á þessum árstíma þegar kvef
og flensur herja á okkur er ekki
úr vegi að nýta
okkur einföld
og náttúruleg
ráð til þess að
fyrirbyggja eða
reyna að vinna
bug á þessum
árlegu pestum.
Ónæmiskerfi okkar er upp á
sitt besta ef við fáum nægan
svefn, borðum fjölbreytta fæðu,
hreyfum okkur og þegar við
erum jákvæð og bjartsýn á
lífið. Einnig er mikilvægt að
hafa stjórn á streitu og álagi í
kringum okkur en streituhorm-
ónin geta haft hamlandi áhrif
á starfsemi ónæmiskerfisins og
gert okkur móttækilegri fyrir
ýmsum sýkingum. Nýlega hefur
komið í ljós að heilbrigð þarmaf-
lóra í meltingarvegi eigi einnig
þátt í heilbrigðu ónæmiskerfi.
Eftirfarandi ráð eru talin gagnleg
gegn kvef og flensupestum.
Nauðsynlegt að drekka nægan
vökva og þá sérstaklega
hreint vatn og góð te
Tíður og almennur hand-
þvottur mikilvægur til þess
að koma í veg fyrir smit
Neyta fæðu sem inniheldur
mikilvæg næringarefni fyrir
ónæmiskerfið s.s. gulrætur,
appelsínur, dökk ber, rauðrófur,
laukar, paprikur, feitur fiskur
og omega 3 fitusýrur, fræ og
hnetur, hreint jógúrt sem
inniheldur góða meltingargerla
Gott að borða ríkulega af
grænmeti og ávöxtum og nota
heitar grænmetissúpur
Heitt bað með ilmkjarnaolíum
s.s. eucalyptus eða tee tree olíu
Fjölmargar lækningajurtir
eru áhrifaríkar gegn kvefi
og flensum s.s. ætihvönn,
engifer, blóðberg, cayenne
pipar, lakkrísrót, vallhumall,
hvítlaukur, sólhattur, ólífulauf
Heimagerð kvefblanda:
5 sneiðar fersk engiferrót
2-3 hvítlauksrif
¼ - ½ tsk cayenne pipar
1 kreist sítróna
Smá hunang ef vill
Setjið í 1 L sjóðandi vatn
og látið standa í 20 mín
Sigtið frá og bætið við
sítrónu og hunangi
Drekka reglulega yfir daginn
Heilsukveðja,
Ásdís grasalæknir.
T ILBOÐ
FÖSTUDAG TIL SUNNUDAGS
DJÚPSTEIKTUR
FISKUR
PASTA MEÐ
KJÚLING OG
HVÍTLAUKS-
BRAUÐI
KJÚLINGUR
Í PLUMSÓSUkr . 1250,-
kr . 1250,-
kr . 1250,-
KLÚBBSAMLOKA
OG 0.5L COKE
STEIKARSAMLOKA
OG 0.5L COKEkr . 800,- kr . 800,-
BIG USA SPECIAL HAMBORGARI OG 0.5L COKEKR. 800,-
›› Bláa lónið:
Enn eitt húsið bætist við á athafnasvæði Bláa lónsins
á vormánuðum. Byggt verður
þjónustuhús við bílastæðin við
baðhúsið.
Reynslan hefur sýnt að mikil þörf
er á betri aðstöðu við bílastæði Bláa
lónsins.
Í húsinu, sem verður 120 fermetrar
að flatarmáli, verður töskugeymsla
og snyrtingar, jafnvel hægt að fá
kaffi.
Frá bílastæðunum er gengið um 200
metra göngugjá að baðstaðnum.
Við stæðin hefur undanfarin sumar
verið bráðabirgðahús þar sem fólk
hefur getað geymt töskur sínar á
meðan það heimsækir baðstaðinn.
Leitað var tilboða hjá nokkrum
góðum byggingaverktökum á
Suðurnesjum en fyrirtækið taldi
mikilvægt að verkið yrði unnið
af heimafyrirtæki, segir Magnea
Guðmundsdóttir, kynningarstjóri
Bláa lónsins við Víkurfréttir.
Leitað var t i l HH verktaka,
Grindarinnar og Húsagerðarinnar
og áttu HH verktakar í Grindavík
besta tilboðið í verkefnið. Vonast
er til að framkvæmdir hefjist innan
tveggja vikna og að húsið verði
tekið í notkun um miðjan júní.
Heimamenn byggja þjónustuhús
Vertu í góðu
sambandi við
Víkurfréttir!
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000
Leikskólinn Suðurvellir í Vog-unum á Vatnsleysuströnd er
4 deilda leikskóli og hefur inn-
tökualdurinn miðast við 1 árs.
Í nóvember á síðasta ári kom sú
yfirlýsing frá bæjarstjórn Voga að
skera þyrfti niður á leikskólanum
Suðurvöllum, og það átti að gera
með því að loka einni deild og
hækka inntökualdurinn í 2ja
ára. Með þessari hagræðingu var
fullyrt af hálfu meirihluta bæjar-
stjórnar að það myndu sparast
rúmar 15 milljónir í rekstri leik-
skólans.
Margir íbúar voru mjög óánægðir
með þessa ákvörðun, sérstaklega
þar sem það eru engin önnur úr-
ræði fyrir barnafólk og að á biðl-
istanum voru þegar um 20 börn.
Með þessari breytingu var útséð
að næsta barn færi ekki inn fyrr en
haustið 2013.
Þessu mótmæltu margir íbúar og
á bæjarstjórnarfundi 30. nóvember
2011 var ákveðið að fresta þessari
breytingu um 1 ár til þess að geta
tæmt biðlistann á leikskólanum og
ekki yrðu þá tekin inn börn undir
2ja ára.
Fannst mörgum eins og verið væri
að slá vandanum á frest og vildi fólk
berjast fyrir því að leikskólinn yrði
áfram rekinn í þeirri mynd sem
hann hafði verið rekinn. Nokkrir
foreldrar tóku sig saman og söfn-
uðu undirskriftum með von um
að það yrði haldin íbúakosning um
þessi mál og var almennt mjög vel
tekið í þá söfnun, þessum undir-
skriftarlista var ekki skilað inn
vegna breyttra forsenda. Margir
íbúar voru tilbúnir að gera allt til
þess að þessi ákvörðun yrði ekki að
veruleika.
Á sama tíma og þetta er allt að
gerast er verið að ræða launahækk-
anir hjá nefndum og stjórnum í
bæjarfélaginu, og það varð síðar
raunin að þær hækkanir voru all
verulegar. Til dæmis hækka laun
forseta bæjarstjórnar um 100%
eða um 660.000 kr á ári. Það þóttu
einkennilegar áherslur hjá nýjum
meirihluta að hækka laun hjá
sjálfum sér um leið og verið var að
skera niður þjónustu við barnafólk.
Þann 22. janúar 2012 skrifar forseti
bæjarstjórnar grein á smugan.is,
og þar segir meðal annars: "Þegar
spilltir stjórnmálamenn komast
til valda gera þeir allt til að skapa
sjálfum sér og félögum sínum for-
skot, byggja undir öfl sem eru þeim
sjálfum hliðholl og draga peninga
og feitar stöður til sín. Allt til að
halda völdum til að tryggja eigin
yfirburði." En hvað var nýbúið að
gerast? Á bæjarstjórnarfundi 28.
desember 2011 var launahækkunin
samþykkt hjá meirihlutanum.
Eftir bæjarstjórnarfund þann 25.
janúar 2012, var mikil umræða
um þessi leikskólamál þar sem
fulltrúar meirihlutans ræddu við
fólkið og þar er fullyrt af forseta
bæjarstjórnar að ekki verði fallið
frá þessari ákvörðun.
Þann 30. janúar 2012 bauð E-
listi (minnihluti) til fundar þar
sem þeir sýndu útreikninga sína
á raunsparnaði með þessari hag-
ræðingu. Þegar búið var að telja
alla þætti saman var sparnaðurinn
alls ekki rúmar 15 milljónir eins
og kynnt hafði verið af H-listan-
um, heldur var hann kominn
niður fyrir 4 milljónir. Í ljósi þessa
leggur E-listi fram tillögu á bæjar-
ráðsfundi þann 1. febrúar, sem í
mjög grófum dráttum fjallar um
það að þessi hagræðing verði aftur-
kölluð þar til önnur úrræði verði til
staðar fyrir barnafólk, fjármagna
megi tillöguna með því að draga
til baka launahækkun bæjarfull-
rúa. Fundargerðina má lesa inni á
Vogar.is sem og aðrar fundargerðir.
Formaður bæjarráðs leggur til að
afgreiðsla þessa máls verði frestað
til næsta fundar.
Í kjölfarið var fenginn fagaðili til að
reikna þessi mál alveg frá grunni,
og í ljós kom að rekstrarniðurstaða
sem fá átti með lokun einnar deildar
og breyttum aldursviðmiðunum á
leikskólanum Suðurvöllum mundi
ekki skila þeirri hagræðingu sem
reiknað var með fyrr en í fyrsta lagi
árið 2014 og þá ekki nema einum
þriðja af upprunalegri hagræðingu.
Á bæjarstjórnarfundi 29. febrúar
2012 er tillaga formanns bæjar-
ráðs um að falla frá breytingum á
leikskólanum og ein af tillögum E-
listans um hækkun niðurgreiðslu til
dagforeldra samþykkt samhljóða.
Niðurgreiðsla með barni til dag-
foreldra hækkaði þá úr 31.000,- í
40.000,- á mánuði.
Hvað launamálin varðar þá er
búið að greiða út laun á þessu ári
þrátt fyrir að í reglum standi að
laun skulu vera greidd út tvisvar á
ári eða í maí og desember. Er það
leyfilegt?
Við erum mjög þakklát fyrir að það
hafi verið hlustað á okkur og þessi
mál skoðuð ítarlega í kjölfarið.
Viljum við þá færa sérstakar þakkir
til E- og L-lista fyrir nýjar tillögur
um afturköllun fyrri ákvörðunar.
Eins og staðan er í dag verður
leikskólinn rekinn áfram eins og
undanfarin ár þar til annað kemur
í ljós.
Hera, Sæunn, Steinunn,
Sigrún, Davíð og Kristinn.
1-0 fyrir fólkinu
STYRKJUM
VARNIR LÍKAMANS
HEILSUSAMLEGA