Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2012, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 15.03.2012, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 Menningarvika í Grindavík 17.-25. mars 2012 Sjá nánar á www.grindavik.is/menningarhátíð Mynd eftir Tolla Gospelveisla Árshátíðarleikrit grunnskólans Tónlistarskólinn Blóðberg The Backstabbing Beatles Páll Óskar Kvartett Einars Scheving Guðbergur Bergsson Tolli Tónlistar- og Myndlistarveisla Ljósmyndasýningar Námskeið Safnahelgi Frásagnir Matur Valgeir Guðjónsson Gunnar Þórðar „Tolli, Valgeir Guðjóns, Gospe- kór Fíladelfíu, Gunni Þórðar, Margrét Eir, Helga Bryndís og Arnþór, Friðarliljurnar og The Backstabbing Beatles, bara til að nefna nokkra af þeim fjölmörgu listamönnum sem koma fram í menningarviku Grindavíkur- bæjar 17.-25. mars nk. Tónleikar, leiksýningar, myndlistarsýningar, ljósmyndasýningar, fyrirlestrar og skemmtanir verða í fyrirrúmi. Ég held að óhætt sé að segja að fjölbreytnin sé í fyrirrúmi og tónlistarskólinn, bókasafnið, grunnskólinn, Kvikan, kaffi- húsin og fleiri aðilar leggja allir sitt af mörkum til eflingar menn- ingar í Grindavík sem blómstrar sem aldrei fyrr,“ segir Þorsteinn Gunnarsson upplýsinga- og þró- unarfulltrúi Grindavíkurbæjar við Víkurfréttir. Menningarvika Grindavíkur er nú haldin í fjórða sinn og hefur aldrei verið fjölbreyttari og veg- legri. Formleg setning hátíðarinnar verður í Grindavíkurkirkju laugar- daginn 17. mars þar sem verða ýmis tónlistaratriði og jafnframt Mánudaginn 19. mars kl. 20:00 verður sannkölluð gospelveisla í Grindavíkurkirkju en þá heldur Gospelkór Fíladelfíu tónleika. Hér er einstakt tækifæri til þess að hlýða á þennan frábæra kór en Gospelkór Fíladelfíu er kirkjukór Fíladelfíukirkjunnar í Reykjavík. Kórinn sér um söng á flestum sunnudagssamkomum þar og heldur þar að auki nokkra tónleika á hverju ári. Þekktir eru hinir ár- legu jólatónleikar sem sjónvarpað hefur verið undanfarin 10 ár á RUV. Að sögn Óskars Einarssonar, stjórnanda kórsins, hefur tónlist ávallt skipað stóran sess í starfi Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu og fallegur og kröftugur söngur og gleði er eflaust það sem mörgum dettur fyrst í hug þegar þeir hugsa um kirkjuna. Aðgangseyrir á tónleika í Grinda- víkurkirkju er 1.000 kr. fyrir full- orðna, 500 kr. fyrir börn 13 – 18 ára. nHinn landsþekkti tónlistar-maður Valgeir Guðjónsson verður með tónleika í Kvikunni sunnudaginn 18. mars kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:30 en aðgangs- eyrir er 1.500 kr. Valgeir hélt sem kunnugt er upp á 60 ára afmæli sitt með pompi og pragt fyrir skömmu með tónleikum í Hörpu sem tókust ljómandi vel og þá hefur hann gefið út safndisk með sínum vinsælustu lögum. Valgeir þarf vart að kynna en verk hans lifa góðu lífi meðal þjóðar- innar, en söngvaskáldið hefur komið víða við á tónlistarferlinum. Góð textagerð hefur oft þótt aðals- merki Valgeirs en í textum hans má skynja léttleika þar sem oft glittir í háð og lævís skírskot. Val- geir hefur löngum verið kenndur við sveitirnar þjóðþekktu Spilverk þjóðanna og Stuðmenn og starfaði hann með þeim hljómsveitum um árabil. Ásamt því að semja texta, samdi hann einnig mörg af þekkt- ustu lögum sveitanna. n Gosepelkór Fíladelfíu í Grindavíkurkirkju Menningin blómstrar í Grindavík í menningarviku verða afhent menningarverðlaun 2012. Menningarvikunni hefur verið vel tekið undanfarin þrjú ár. Allir leggjast á eitt við að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dag- skrá. Ýmisir viðburðir verða alla dagana á Kvikunni, bókasafninu, Bryggjunni, Salthúsinu, Aðalbraut, Kantinum, Miðgarði, sundlauginni, Grindavíkurkirkju, leikskólunum, Northern Light Inn, grunnskól- unum, á vegum tónlistarskólans, listastofum, verslunarmiðstöð- inni, Sjómannastofunni Vör, hjá handverksfélaginu Greip og fleiri stöðum. Svo gripið sé af handahófi í dag- skrána má einnig sjá dagskrárliði eins og Hugsum fyrst og skjótum svo með Gissuri Sigurðssyni frétta- manni. Bæjarfulltrúar mæta í heitu pottana, Margrét og Ársæll verða með Blóðberg á Bryggjunni, söng- og vísnakvöld verður á vegum bókasafnsins, grunnskólinn frum- sýnir árshátíðarleikrit sitt, sérstakt Guðbergskvöld verður til heiðurs Guðbergi Bergssyni rithöfundi og heiðursborgara Grindavíkur, Möguleikhúsið sýnir Prumpuhól- inn, svo eitthvað sé nefnt. Grindvíkingar, Suðurnesjamenn og reyndar landsmenn allir eru hvattir til þess að nýta sér tækifærið og fjölmenna á menningarviðburðina í Grindavík. Dagskrána í heild sinni má lesa á www.grindavik.is/menningarha- tid. Hún er skipulögð af Kristni J. Reimarssyni sviðsstjóra frístunda- og menningarmála. n Valgeir Guðjóns í Kvikunni Lokun deildar ekki réttlætanleg Bæjarráð Voga hefur sam-þykkt samhljóða tillögu odd- vita L-listans, Kristins Björgvins- sonar, um málefni leikskólans í Vogum. Tillagan er eftirfarandi: „Að vel ígrunduðu máli og samkvæmt upplýsingum frá þeim fagaðilum sem málið varðar er ljóst að sú rekstrarniðurstaða sem fá átti með lokun einnar deildar og breyttum aldursviðmiðum á leikskólanum Suðurvöllum skilar ekki þeirri hag- ræðingu sem reiknað var með fyrr en í fyrsta lagi árið 2014 og þá ekki nema einum þriðja af upprunalegri hagræðingu. Er það nú ljóst að hálfu L-listans að þessi ákvörðun um lokun deildarinnar og breytingu á aldursviðmiði er ekki réttlætanleg og leggur hann til að bæjarstjórn dragi ákvörðun sína til baka og leikskólinn starfi óbreyttur þar til aðrar forsendur koma fram“. Hörður Harðarson lagði fram svofellda breytingartillögu við tillögu Kristins: „Hækkuð verði niðurgreiðsla til dagforeldra í kr. 40.000 á mánuði í við- leitni til að gera starfsgrundvöll þeirra styrkari í Vogunum“. „Sjávarlíf í Garð- sjónum“ á Garð- skaga í sumar Ljósmyndasýningin „Sjávarlíf í Garðsjónum“ undir berum himni við Byggðasafnið á Garð- skaga verður haldin í sumar í samstarfi við Gísla Arnar Guðmundsson og „Dive The North“. Ferða-, safna- og menningarnefnd Garðs fagnar því að fleiri ferðamannaseglar eru að opnast í Garðinum og ljóst að kafarar eru mjög spenntir fyrir því fjölbreytta sjávarlífi sem er hér við ströndina og auðveld aðkoma fyrir kafara. Nefndin hvetur til þess að gerð verði lágmarksaðstaða fyrir kafara og aðra sem nota höfnina í Garði sér til ánægju. Kafarar hafa fyrst og fremst athafnað sig við myndatökur og sjávarlífsskoðun. Hvað kostar upp- sögn tveggja skóla- stjóra á kjörtíma- bilinu? Fulltrúar G-listans í Grindavík hafa lagt fram fyrirspurn um hversu mikinn kostnað Grindavíkurbær hefur þurft að greiða vegna uppsagna tveggja skólastjóra á kjörtímabilinu. „Við fögnum ráðn- ingu Halldóru K. Magnúsdóttur og vonumst eftir að góður skóli verði enn betri með sameiginlegu átaki nemenda, foreldra og Grindavíkur- bæjar,“ segir í fyrirspurn G-listans. Á fundinum kom fram að bæjarstjóri hafði ekki upp- lýsingar á fundinum til að geta svarað fyrirspurninni strax, en mun taka saman upp- lýsingarnar og leggja fram svar á næsta bæjarstjórnarfundi. ›› FRÉTTIR ‹‹

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.