Víkurfréttir - 15.03.2012, Blaðsíða 16
Góða skapið og glasið
Nú veit ég hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Jafnvel þó ég hafi minnkað eilítið frá síðustu mælingu. Mig dreymir um
að búa í norðurhéruðum Spánar eða jafnvel á Ítalíu, enda fólkið
þar í lægri kantinum. Sé lífið fyrir mér á fallegum búgarði, þar
sem tilhlökkunin um ánægjulega kvöldstund, með lystisemdum
vínbænda, yljar kroppinn. Líkt og með manneskjuna, þá þarf að
bera virðingu fyrir öllum vínum til að geta notið fjölbreytileikans.
Þetta eru líka nýir nágrannar eftir allt.
Get eflaust kraflað mig fram úr tungumálinu með íslenskuna að vopni. Býð þeim að gerast ókeypis erlendur vínsmakkari. Vín beint frá bónda veitir eflaust
ómælda ánægju ef maður veit hvað maður er með í höndunum. Það má þó heldur
ekki gera sér of háar hugmyndir fyrirfram, en gæti hins vegar komið skemmtilega
á óvart þegar fram líða stundir. Súrt eða sætt? Þykkt eða þunnt? Þetta vita þeir nátt-
úrulega eins vel og ég!
Að sjálfsögðu keyptu þeir hugmyndina og nú heyri ég nánast snarkið í nauta-steikinni, sem frúin keypti af slátraranum á markaðnum. Best að skella á sig
Armani ilminum og sjarmera mína upp úr skónum. Eftir dýrindis máltíð gríp ég í
vínbiblíuna, fullur eftirvæntingar yfir því sem hafa þarf í huga fyrir smakkara. Mér
fallast hendur. Búinn að gera nánast flest það sem ekki á að gera. Borða of þungan
mat, úða á mig rakspíra og hvað ekki. Það voru aðeins tvö atriði eftir á listanum sem
ég gat hakað við að væru í lagi. Góða skapið og glasið. Bara ekki svo slæmt eftir allt.
Ég afsakaði mig með því að ég væri nú enginn fagmaður. Nýkominn! Sannfærði þó
sjálfan mig um að allra mikilvægasta atriðið á listanum væri góða skapið og af því
ætti ég nóg af. Að smakka vín í slæmu skapi er eins og að... æji, þið vitið hvað ég
á við!
Blessunarlega bjargaði betri helmingurinn hinu atriðinu. Við köllum það „baðkarið“, sem þarf að vera til staðar, óskreytt, óskorið og helst í laginu eins
og túlípani. Já, það eru mikil vísindi á bak við alvöru vínsmökkun. Túlípaninn var
í hendi með guðaveigum. Vakna upp við vænan draum í víkinni grænu, með glas
af dýrindis ítölsku Amarone og tel mig vera miðlungs fagmann í greininni. Lifi þó í
voninni að draumurinn rætist.
vf.is
Fimmtudagurinn 15. mars 2012 • 11. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
Stebbi og Eyfi sendu frá sér geisladiskinn „Fleiri notalegar ábreiður“
fyrir síðustu jól og munu nú á vormánuðum heimsækja landsbyggðina og kynna diskinn með tónleikahaldi. Ásamt því að flytja lög af nýja geisla-
diskinum munu hljóma margar af þeim dægurperlum, sem þeir félagar hafa sent frá sér bæði saman og í sitthvoru lagi, lög eins og „Hjá þér“,
„Líf“, „Undir þínum áhrifum“, „Okkar nótt“, „Álfheiður Björk“, „Dagar“, „Danska lagið“, „Allt búið“, „Ég lifi í draumi“, „Góða ferð“, „Þín innsta þrá“,
„Draumur um Nínu“ o.m.fl. Einnig munu þeir félagar spjalla á léttum nótum við tónleikagesti og segja óborganlegar sögur úr bransanum.
TVEIR VITAR Á BYGGÐASAFNINU GARÐSKAGA
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ, 20. MARS KL. 20:30
MIÐASALA ER VIÐ INNGANG.
KAFFI DUUS, KEFLAVÍK
MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ, 21. MARS KL. 20:30
MIÐASALA ER VIÐ INNGANG.
2012 TÓNLEIKAR
Stebbi og Eyfi
á ferð um Ísland
GEISLADISKURINN „NOKKRAR
NOTALEGAR ÁBREIÐUR“,
SEM KOM ÚT ÁRIÐ 2006 FYLGIR
MEÐ AÐGÖNGUMIÐA, MEÐAN
BIRGÐIR ENDAST.
Söngleikurinn Með allt á hreinu verður frum-sýndur í Frumleikhúsinu föstudaginn 16.
mars kl. 20.00.
Verkið er samstarfsverkefni Leikfélags Keflavíkur
og Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þetta er í annað
sinn sem þessi félög setja verk á svið saman, áður
var það söngleikurinn Slappaðu af í leikstjórn
Valgeirs Skagfjörð. Leikstjóri sýningarinnar er
Oddur Maggi en hann er hámenntaður leikari
sem komið hefur víða við, er búsettur í Sandgerði
og kennir m.a. leiklist í grunnskólanum þar auk
þess sem hann kennir við leiklistarbraut Listahá-
skóla Íslands. Fjölmargir þátttakendur koma að
sýningunni, dansarar, leikarar, hljóð- og tækni-
menn, söngvarar, förðunar- og hárgreiðslufólk svo
eitthvað sé nefnt. Þetta er sýning sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara enda öll flottustu lögin úr
myndinni sem Stuðmenn gerðu ódauðleg fyrir 30
árum síðan flutt í verkinu. Hægt er að panta miða
í síma 4212540 en miðaverð er kr. 2000.
Stjórn LK, VoxArena og NFS
›› leikfélag keflavíkur og leikfélag fs í samstarf:
Með allt á hreinu í Frumleikhúsinu