Víkurfréttir - 15.03.2012, Side 12
12 FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
›› Heklan – atvinnuþróunarfélag Suðurnesja:
„Börn og unglingar eiga ekki auðvelt í dag, en hvers
vegna er það svo? Eflaust er það vegna þess að við
ætlumst til of mikils af þeim. Ekki eru það börnin
sem eru óþroskuð, heldur eru það við hin fullorðnu
sem þurfum að uppfylla ákveðnar skyldur í uppeldi
og þroska barna. Andlegur og sálrænn þroski barna
og ungmenna er mjög mikilvægur þáttur í öllu upp-
eldi. Mikilvægt er að búa þau sem best undir fram-
tíðina. Foreldrum ber að senda þeim skýr skilaboð
þannig að „nei“ í dag þýði ekki „já“ á morgun. Nái
þau góðum árangri í daglegu lífi, til dæmis í sam-
skiptum við jafnaldra og fullorðna eða málnotkun,
eru þau sjálfkrafa hvött til þess að læra meira og
mynda enn sterkari löngun til þess að vera góð í því
sem þau taka að sér. Einnig ber kennurum að hugsa
betur um velferð barna, sérstaklega þeirra sem eru
„eftir á“. Þeir eiga að bjóða tækifæri sem efla sjálfs-
traust í gegnum námsárangur og brýna fyrir börnum
að gefast ekki upp of snemma. Nemendur sem eiga
í námserfiðleikum geta ekki fylgt hraða bekkjar-
ins. Það hefur óneitanlega áhrif á sjálfsálit þeirra
með þeim afleiðingum að þau upplifa sig útundan,
einangruð og óverðskulduð.
Þessi börn fá oft ekki tækifæri
til að þroskast. Það er á ábyrgð
kennarans og fölskyldunnar að
sjá um að allir nemendur fái
menntun við hæfi. Hlutverk
hans er því einkar mikilvægt
í hversdagslífi barna og fyrir
framtíð þeirra“.
Þjóðfélagið okkar er ekki nógu fjölskylduvænt. Full-
orðið fólk vill fá að njóta samvista við börnin sín
eftir að venjulegum vinnudegi lýkur öðruvísi en
að vera dauðuppgefið og útslitið og eiga svo auk
allra annarra verka, sem bíða, eftir að hjálpa til við
heimanám. Þarna þurfa skólarnir að koma inn með
meiri þjónustu svo fjölskyldur geti notið samvista í
frítímum sínum á uppbyggjandi og skemmtilegan
hátt. Öruggt og ástríkt heimili og skilningsríkir for-
eldrar eru öllu ungviði mikilvæg. Þú skalt vera góð
fyrirmynd.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Þú skalt vera góð fyrirmynd
Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar
Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hefur tekið yfir
rekstur á Eldey frumkvöðlasetri
en þar hafa ráðgjafar hennar jafn-
framt aðsetur.
Heklan hóf formlega starfsemi sl.
haust en starfsmenn eru Berglind
Kristinsdóttir framkvæmdastjóri,
María Lóa Friðjónsdóttir, Dagný
Gísladóttir og Björk Guðjónsdóttir.
Heklan styður við atvinnuþróun
og nýsköpun á Suðurnesjum í sam-
starfi við einstaklinga, fyrirtæki,
samtök, sveitarfélög og aðra hags-
munaaðila og skipa bæjarstjórar
sveitarfélaganna á Suðurnesjum
stjórn auk fulltrúa frá Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar og Samtökum
atvinnurekenda á Reykjanesi.
Verkefni félagsins eru fjölbreytt, á
sviði atvinnu og byggðaþróunar auk
verkefna á sviði nýsköpunar. Þar má
nefna Vaxtarsamning Suðurnesja
og Menningarsamningur Suður-
nesja, stuðning við frumkvöðla
og starfandi fyrirtæki í nýsköpun,
markaðssetningu svæðisins sem og
þróunarverkefni og stefnumótun
fyrir svæðið í heild sinni.
Áhersla er lögð á að Eldey frum-
kvöðlasetur verði one stop shop
fyrir nýsköpun og atvinnuþróun á
Suðurnesjum og fyrsti viðkomu-
staður þeirra sem þurfa á stuðningi
og ráðgjöf að halda.
Eldey frumkvöðlasetur
Í Eldey er eitt stærsta og glæsi-
legasta frumkvöðlasetur lands-
ins, sem þjónar frumkvöðlum og
Grunaður fíkniefna-
sali tekinn
Lögreglan á Suður-nesjum stöðvaði
tæplega þrítugan
karlmann tvívegis
um helgina, þar sem
hann var grunaður
um akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Í annað skiptið sem mað-
urinn var stöðvaður voru tveir
farþegar í bílnum hjá honum.
Annar farþeganna, karlmaður,
lá undir rökstuddum grun um
fíkniefnasölu. Farið var í húsleit
heima hjá honum, að fengnum
dómsúrskurði. Þar fannst lítilræði
af kannabisefnum og amfetamíni.
Ölvaður stal póstbíl
og festi í skafli
Póstbíl var stolið þar sem hann stóð í gangi fyrir utan
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
laugardagsmorguninn síðastlið-
inn. Bílstjórinn hafði brugðið sér
inn í Leifsstöð með dagblöð en
þegar hann kom til baka reyndist
bíllinn horfinn. Lögreglunni á
Suðurnesjum var tilkynnt um
atvikið, en skömmu áður hafði
henni verið tilkynnt um leigubíl-
stjóra sem væri í vanda við Leifs-
stöð þar sem erlendur farþegi
hefði tekið bílinn úr miðbæ
Reykjavíkur en neitaði að greiða
farið þegar komið var í Leifsstöð.
Hefði hann verið mjög ölvaður.
Lögregla þurfti ekki lengi að
svipast um eftir póstbílnum áður
en hann fannst fastur í skafli
skammt frá flugstöðinni. Við
stýrið sat maður, sem reyndist
við nánari athugun vera, erlendur
ferðalangur, sá hinn sami og hafði
tekið leigubílinn að Leifsstöð
nokkru áður og neitað að greiða
fargjaldið. Fá þurfti tæki á staðinn
til þess að draga póstbílinn upp.
Ferðalangurinn erlendi var hand-
tekinn og færður á lögreglustöð
þar sem hann var yfirheyrður.
Tveir tólf ára á
skellinöðrum
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning
um tvo unga drengi
sem óku um á skelli-
nöðrum í umdæm-
inu. Við nánari eftir-
grennslan kom í ljós
að piltarnir voru ein-
ungis tólf ára og hjálmlausir ofan
í kaupið. Lögregla hafði samband
við forráðamenn þeirra og gerðar
voru viðeigandi ráðstafanir.
Þá stöðvaði lögreglan á Suður-
nesjum för þriggja fimm-
tán ára pilta, sem óku rétt-
indalausir um á vespum.
Lögregla hvetur foreldra og
forráðamenn til að hafa eftir-
lit með því að hættulegir leikir
af þessu tagi eigi sér ekki stað.
Fíkniefni í skáp
Afskipti lögreglunnar á Suðurnesjum af ökumanni
í vikunni leiddu til þess að fíkni-
efni fundust falin í skáp í íbúð í
umdæminu. Ökumaðurinn, kona
um tvítugt, var stöðvuð, grunuð
um akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Það leiddi til þess að lög-
reglan hélt síðan á heimili hennar
þar sem hún býr ásamt annarri
konu um þrítugt. Að fengnu leyfi
til leitar í íbúðinni fann lögreglan
fíkniefni í neysluskömmtum
falin í svörtu boxi inni í fataskáp.
Auk fyrrnefndu konunnar var
ungur karlmaður stöðvaður við
akstur í umdæminu í vikunni,
einnig grunaður um að aka
undir áhrifum fíkniefna.
›› FRÉTTIR ‹‹
Styður við atvinnuþróun
og nýsköpun á Suðurnesjum
sprotafyrirtækjum, auk starfandi
fyrirtækja sem vilja efla sig með
nýsköpun og vöruþróun. Eldey
býður aðstöðu fyrir frumkvöðla til
að stíga sín fyrstu skref, þróa við-
skiptahugmyndir sínar og koma
sprotafyrirtækjum á legg. Hús-
næðið er í heild 3.300 fermetrar
og skiptist það í kennslu- og fyrir-
lestrarrými, fundaraðstöðu, og
skrifstofu- og smiðjuaðstöðu fyrir
frumkvöðlafyrirtæki.
Stuðningur og þjónusta
Í Eldey býður frumkvöðlasetrið
upp á vinnuaðstöðu á einstakega
hagkvæmu verði fyrir frumkvöðla
og sprotafyrirtæki. Við fögnum
einnig umsóknum um vinnuað-
stöðu frá fólki sem hefur reynslu úr
viðskiptaheiminum sem vill vinna
innan um frumkvöðla og sprota,
byggja upp tengsl við þá og eru
tilbúin til að veita viðskiptavinum
okkar stuðning og ráðgjöf.
Frumkvöðlar geta leigt skrifborð
og læsta hirslu í opnu vinnurými
en einnig er boðið upp á lokuð
skrifstofurými með skrifborði og
hillum. Frír internetaðgangur er í
húsinu.
Í Eldey eru smiðjurými af ýmsum
stærðum til leigu sem hafa verið
mjög vinsæl og eru nú sjö sprota-
fyrirtæki með aðsetur þar og fjögur
eru á biðlista eftir 50 – 100 fm
smiðjum. Stærstu smiðjurnar eru
frá 160 fm – 270 fm.
Leigjendur í Eldey hafa aðgang
að fundarherbergjum og hugar-
flæðisrými sem einnig er hægt að
nota sem fyrirlestrarsal. Einnig
hafa þeir aðgang að ráðgjöf er
snýr að framþróun nýsköpunar-
hugmyndar, gerð viðskiptaáætlana
og styrkumsókna svo eitthvað sé
nefnt. Í húsinu er boðið upp á fjöl-
breytta fræðsludagskrá og tengsla-
viðburði.
Frumkvöðlar hafa jafnframt stuðn-
ing af öðrum frumkvöðlum í frum-
kvöðlasetrinu en það getur verið
gott að fara með hugmyndina frá
eldhúsborðinu heima í skapandi
umhverfi þar sem hægt er að byggja
upp öflugt tengslanet.
Er Eldey eitthvað fyrir þig?
Hafðu samband á eldey@heklan.is í
síma 420 3288 eða líttu við í heim-
sókn. Það er heitt á könnunni.
Útskrifuð af frumkvöðlanámskeiði
Þátttakendur á frumkvöðlanámskeiði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Vinnumálastofnunar útskrifuðust sl.
fimmtudag og héldu af því tilefni kynningu á nýsköpunarhugmyndum sínum fyrir hópi gesta. Slík námskeið
hafa verið haldin í Eldey frumkvöðlasetri við góðar undirtektir og hafa verkefnastjórar Heklunnar, atvinnuþró-
unarfélags Suðurnesja verið hópnum innan handar en nú þegar hafa nokkrir útskriftarnemar fest sér aðstöðu
í húsinu til þess að vinna frekar að verkefnum sínum. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
MYR Design rekur opna vinnustofu
í frumkvöðlasetrinu Eldey á
Ásbrú. Þar var boðið í opið hús á
dögunum þar sem vinsæl fatalína
fyrirtækisins var kynnt og jafnframt
opnuð ný vefsíða MYR Design.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
hófinu. VF-myndir: Hilmar Bragi
Opinn kynn-
ingarfundur
Þriðjudaginn 20. mars kl. 9:30 – 11:00 verður opinn kynn-
ingarfundur í Eldey fyrir frum-
kvöðla á Suðurnesjum. Mark-
miðið er að hitta sem flesta sem
vinna að nýsköpun á svæðinu,
heyra þeirra þarfir og kynna þá
þjónustu sem Heklan býður sem
og húsnæðið í Eldey og námskeið
sem fyrirhuguð eru. Við hvetjum
sem flesta til að mæta – kaffi og
með því.