Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2012, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 15.03.2012, Blaðsíða 14
14 FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Elías Már Ómarsson er k nattspy rnumaður úr Keflavík en hann er 17 ára gamall og leikur nú með 2. flokki hjá Keflavík. Elías er framherji, en getur spilað báða kantana og leikið fremstur á miðju vallarins. Elías er einn af fjölmörgum efnilegum ungum leikmönnum hjá Keflavík en á dögunum hélt hann til æfinga hjá Íslendingaliðinu Reading sem leikur í ensku 1. deildinni. „Þetta kom þannig til að ég er með umboðsmann og hann er í einhverjum samskiptum reglu- lega við Reading og hann kom þessu í kring. Ég dvaldi þarna í 9 daga ásamt Kristjáni Flóka Finn- bogasyni úr FH og mér leist mjög vel á klúbbinn og allir strákarnir þarna hjálpuðu manni og voru heiðarlegir og skemmtilegir,“ segir Elías sem fór á æfingar með unglingaliðinu og spilaði leik með þeim þar sem honum tókst m.a. að leggja upp mark. Hann fór einnig á æfingar með varaliðinu og svo eina æfingu þar sem varaliðið og aðalliðið æfðu saman. „Ég náði alveg að skora á æfingunum og þetta gekk bara mjög vel verð ég að segja.“ Áður hafði Elías fengið nasaþef- inn af stóru klúbbunum í Eng- landi en hann æfði um stund með Bolton þegar hann var 14 ára gamall en hann vakti þá at- hygli þjálfara í Bobby Charlton knattspyrnuskólanum. Hvernig gekk hjá Reading? „Þetta gekk bara mjög vel. Þeir sögðu m.a. við Ólaf umboðsmann minn að ég hefði staðið mig mjög vel og væri með getuna knatt- spyrnulega séð. Þjálfarinn líkti mér m.a. við Ole Gunnar Sol- skjær,“ segir Elías en það verður að teljast ágætis hrós enda Sol- skjær fyrir löngu orðinn goðsögn hjá stórliði Manchester United. Elías er sammála því að það sé mikið hrós þótt hann sé sjálfur stuðningsmaður Liverpool. Elías er þessa stundina að undir- búa sig undir leiki með undir 17 ára landsliði Íslands en liðið leikur í milliriðli Evrópukeppn- innar sem fram fer í Skotlandi dagana 20.-25. mars. Sigurvegari riðilsins tryggir sér sæti í úrslita- keppninni sem leikin verður í Slóveníu og hefst 4. maí. Elías hefur reynslu af því að leika með yngri landsliðum Íslands en hann lék einmitt með íslenska U-17 ára liðinu sem varð Norðurlanda- meistari síðasta sumar og liðið náði einnig að vinna sér sæti í milliriðlum með því að vinna undanriðilinn sem leikinn var í Ísrael síðastliðið haust. Liðið er því greinilega feikilega öflugt. „Þeir hjá Reading tjáðu okkur að þeir ætluðu að fylgjast með okkur í Skotlandi og eftir það verður bara að koma í ljós hvort ég fari aftur til Reading eða ekki,“ segir Elías. Hann hefur verið að æfa aðeins með meistaraflokki Keflavíkur á undirbúningstíma- bilinu og það er því aldrei að vita hvort þessi efnilegi sóknarmaður fái tækifæri hjá Zoran Ljubicic í sumar. ÝMISLEGT Búslóðaflutningar og allur al- mennur flutningur. Er með 20 rúmmetra sendibíl/kassabíl með lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi. Tek að mér allskonar viðgerð- ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað- ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567. TIL SÖLU Svefnsófi til sölu. Uppl. í síma 899 6539. Borðstofuborð úr beiki, ísskápur og uppþvottavél. Uppl. í síma 865 1922. ÞJÓNUSTA Glæsilegt vetrartilboð sem enginn má missa af! Bónstöð Ragga í Garði kynnir al- þrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á sætum og gólfi á aðeins 8.500 kr. fyrir fólksbíl og 9.000 kr. fyrir jeppann. Frekari verð og þjónustu er að finna á vefsíðu. Myndir af árangri þrifanna er að finna í albúmi á vefsíðu. Staðsetning: Klapparbraut 8 í Garðinum á Suðurnesjum. Sími: 772-1554 Vefsíða: www.facebook.com/bonstodragga Endilega gerist vinir á Facebook. 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS TIL LEIGU Ýmsar stærðir og gerðir af her- bergjum, með eða án húsgagna, með sameiginlegu eldhúsi og bað- herbergi eða sér eldhús og bað, með eða án húsgagna. Aðgangur að gufubaði og borðtennisborði. Internet og orka innifalin og all- ur sameiginlegur kostnaður. Góð staðsetning og hagstætt leiguverð. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909. Íbúð í Sandgerði til leigu 4ra herb. 104m2 íbúð á jarðhæð í tvíbýli til leigu. Rafm. og hiti inni- falið. 120.000 á mánuði. Gæludýr leyfð. Nánari upplýsingar síma 771 6674 Martin Íbúð til leigu í Garði Tveggja herbergja íbúð til leigu. Laus strax. Sími 848 8445. Herbergi til leigu. 14 m2 rúmgóð og snyrtileg herbergi til leigu í Vogunum með klósetti og sturtu, aðgangur að þráðlausu neti mögulegur. 50 þús. á mánuði. s: 865 3883. Til leigu góð tveggja herbergja íbúð í Garði. Íbúðin er 60m2 með sér inngangi. Uppl. í síma 777 4200 eftir kl. 18:00. Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 14. - 21. mars nk. • Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi • Dansleikfimi • Jóga á boltum • Hádegismatur • Síðdegiskaffi • Tölvuklúbbur FEBS Léttur föstudagur föstudagur 16. mars kl. 14:00 Anna Lóa Ólafsdóttir fjallar um hamingjuna Nánari upplýsingar í síma 420 3400 www.vf.IS 896 0364 Bói Rafvirki raf-ras.is Eydís B. Eyjólfsdóttir, Hafsteinn Guðnason, Elínrós B. Eyjólfsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Guðrún B. Eyjólfsdóttir, Þórarinn B. Eyjólfsson, Ólöf Ásgeirsdóttir, Anna María Eyjólfsdóttir, Ólafur Ingi Reynisson, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir. Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, María Sigríður Hermannsdóttir, Smáratúni 20, Keflavík, andaðist að kvöldi dags 10. mars á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlévangi í Keflavík. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13:00. Júlíus H. Valgeirsson, Ásgerður Þorgeirsdóttir, Guðrún Bergmann Valgeirsdóttir, Sigfús R. Eysteinsson, Leifur Gunnlaugsson, Erla Valgeirsdóttir, Guðni Grétarsson, Einar Valgeirsson, Unnur M. Magnadóttir, Susan A. Wilson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýju, samúð og fallegar kveðjur við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, Valgeirs Ólafs Helgasonar, Reykjanesvegi 12, Njarðvík. Við framleiðum sorp daglega en viljum síðan helst ekk- er t v i ta af þv í meir. Ruslakarl- arnir fara bara með það og láta það hverfa. Eða ekki? Við vitum að hvorki sorphirðar né töframenn búa yfir kröftum sem láta hluti hverfa í alvörunni. Sorpið hverfur ekki heldur breyt- ist úr einu efni í annað; verður að ösku og gufu. Loka eða selja Sorpmálin á Suðurnesjum hafa sjaldan fengið ítarlega umfjöllun. Nú er hins vegar hávær umræða í gangi varðandi hugsanlega sölu á sorpbrennslustöðinni Kölku, til er- lendra aðila. Kalka er ein fullkomn- asta sorpbrennslustöð landsins en rekstur hennar hefur verið mjög þungur frá upphafi (opnuð 2004) og nú er stöðin mjög skuldsett. Ástæða þessarar miklu skuldsetn- ingar er sú að í raun settu sveitar- félögin ekki krónu í uppbyggingu Kölku heldu var hún að mestu leyti byggð fyrir lánsfé. Hvað skal gjöra? Selja og taka við „útlensku sorpi“ og treysta á eftirlit opinberra aðila sem hefur hingað til ekki verið mjög traustvekjandi? Loka stöðinni og urða allt saman? Ég veit það ekki enda er engin töfralausn í boði. Hvers vegna endurvinnsla En það sem ég veit hins vegar er að við verðum að móta okkur framtíðarsýn í sorpmálum hér á svæðinu og finna heildrænar lausnir. Við getum ekki frestað vandanum endalaust. Ég er mjög hlynnt aukinni endurvinnslu. Það er ekki LAUSNIN á vandamálum Kölku, en kannski partur af stærri heild sem gæti fleytt okkur í rétta átt. Ein leið er að taka stefnuna á umhverfisvottun, líkt og nokkur sveitarfélög á Snæfellsnesi hafa gert. Þar hafa góðir hlutir verið að gerast og ég tel að við getum nýtt okkur reynslu þessara bæjarfélaga til að bæta umgengni við náttúruna hér á svæðinu og bæta um leið ímynd okkar út á við. Í vottunarferlinu er tekið á sorphirðu sem og öðrum umhverfismálum. En hver eru helstu rökin fyrir aukinni endur- vinnslu? 1. Lykilatriði er að minnka sorp sem þarf að eyða: Rannsóknir hafa sýnt að sorp minnkar gríðarlega þegar heimilin fara að endurvinna. Tvennt kemur til; hluti úrgangsins verður endurvinnanlegur heima- fyrir, t.d. lífrænt sorp og hitt er að fólk fer að huga meira að umfangi umbúða þegar það verslar til heim- ilisins. 2. Við nýtum betur auðlindir jarðar. 3. Endurvinnsla er hagkvæmari kostur en sorpbrennsla. Sorp- brennsla er dýrasta förgunarleiðin. 4. Minnkar rekstrarkostnað þar sem greitt er fyrir sumar gerðir sorps. Tökum börnin okkar til fyrirmyndar Grunn- og leikskólar Reykjanes- bæjar eru með mjög öfluga um- hverfisfræðslu. Börnin okkar eru umhverfisvæn og hafa góða þekk- ingu á endurvinnslu og hvernig við getum gengið betur um jörðina. Þessa má geta að af 10 leikskólum bæjarins eru þrír komnir með Grænfánann og þrír til viðbótar eru á Grænni grein. Fjölbrautaskólinn okkar er einnig á Grænni grein. Tveir grunnskólar eru komnir með Grænfánann. Af hverju nýtum við okkur ekki þessa góðu vinnu og höldum boltanum á lofti? Það er eitthvað skakkt við það þegar börnin koma heim, uppfull af visku um umhverfið, að við, fullorðna fólkið, hendum bara öllu í ruslið og brennum því svo. Við hljótum að geta gert betur. Íslenskt sorp-já takk Eitt þarf ekki að útiloka annað. Sorpbrennsla og endurvinnsla geta vel farið saman. Taka það besta frá báðum leiðum. Sumt sorp er betra að brenna t.d. sýkt dýr og þess háttar. En það sem þarf hins vegar að gera núna, er að leysa rekstrar- vanda Kölku. Einn möguleiki er að loka stöðinni, eins og Húsvíkingar hafa tekið ákvörðun um að gera við sína brennslustöð þar sem hún var of dýr í rekstri. Annar möguleiki er að auka tekjur stöðvarinnar með einhverjum hætti. Við hljótum að geta aukið afköst stöðvarinnar t.d. með því að taka á móti sorpi frá öðrum bæjarfélögum á Íslandi. Við þurfum ekkert endilega að taka við iðnaðarúrgangi frá útlöndum til að bjarga rekstrinum. Mörg bæjar- félög hér á landi eru í vandræðum með sorpið sitt. Hefur sú leið t.d. verið skoðuð og rædd formlega, þ.e. að Kalka brenni sorp frá öðrum bæjarfélögum? Kalka, er eins og fyrr segir, mjög fullkomin brennslustöð og það er hægt að auka brennsluhitastigið töluvert sem myndi gera brunann betri. Það sem maður setur samt sem áður stórt spurningamerki við, ekki bara við sorpbrennslu, heldur sorpeyðingu almennt, er eftir- litið sem hefur brugðist nokkrum sinnum (sbr. nýleg dæmi frá Ísa- firði, Kirkjubæjarklaustri og Vest- mannaeyjum). En það er kannski efni í aðra grein. Ég læt þessar hug- leiðingar nægja í bili og vona að bæjarstjórn leggi nú hugann í bleyti, hugsi út fyrir boxið og komi fram með ásættanlegar framtíðaráætl- anir sem fela í sér heildarlausnir fyrir komandi kynslóðir. Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsókn Reykjanesbæ Harry Potter býr ekki hér Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir! n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000 Líkt við Ole Gunnar Solskjær Elías Már Ómarsson:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.