Víkurfréttir - 12.04.2012, Side 12
12 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
„Ég hef heyrt það utan af mér að það séu
margir sem halda að þessar skuldir hafi allt í
einu poppað upp í ár því þær hafa verið mikið
í umræðunni síðustu mánuði. Þessi staða
hefur hins vegar verið kunn í nokkurn tíma
og er ekki tilkomin á þessu kjörtímabili,“
segir Ólafur Þór í samtali við Víkurfréttir.
„Þegar hrunið varð 2008, þá var ljóst að
skuldastaða bæjarins versnaði til muna. Í
kosningabaráttunni 2010 talaði ekkert fram-
boðanna um að skuldavandinn væri ekki
til staðar. Menn lögðu hins vegar mis mikla
áherslu á vandann.
Ljóst að verkefnið var mun þyngra
Þegar við setjumst í meirihlutann eftir kosn-
ingar þá kemur hins vegar í ljós að verkefnið
er mun þyngra en menn gerðu sér grein fyrir.
Ástæðan fyrir því að umræðan um skulda-
vandann er svona sterk núna er m.a. vegna
þess að við erum að vinna markvisst að því
að taka á vandanum“.
Í ljósi nýrra sveitarstjórnarlaga er ekki í
boði að vera með 405% skuldir af árstekjum
sveitarfélagsins. Það stenst ekki lög og bæjar-
stjórn Sandgerðis því neydd til að taka á
vandanum.
„Þar fyrir utan vann Haraldur Líndal Har-
aldsson skýrslu fyrir okkur og veitti okkur
ráðgjöf sem við höfum verið að fara eftir
í fjárhagsvinnu okkar. Við héldum opinn
kynningarfund á innihaldi þeirrar skýrslu nú
í vetur og í kjölfar þeirrar kynningar hefur
verið mikil umræða í bæjarfélaginu“.
Eins og hjá alkóhólistanum
Ólafur Þór er ekkert að skafa af lýsingum
sínum á ástandinu: „Ég hef stundum lýst
þessu þannig að staðan sé eins og hjá alkó-
hólistanum sem ekki getur annað en horfst í
augu við vandamál sín. Raunveruleikinn er sá
að við skuldum, reksturinn er of bólginn, það
er staðan og við verðum að taka á henni“.
- Hvað skóp þennan vanda?
„Rót vandans eru mjög miklar framkvæmdir
á árunum 2002 til 2009. Síðasta stóra fram-
kvæmdin er viðbygging við skólann sem
kostaði einn milljarð króna.
Ef við skoðum hvernig staðan var í Sandgerði
árið 2000 og síðan 2010 þá er ýmislegt búið
að gerast á þessum tíma. Sandgerði fer inn í
Fasteign árið 2004. Það mál hefur verið heitt
í pólitíkinni í Sandgerði frá upphafi. Fast-
eign á skólann, sundlaugina, íþróttahúsið
og samkomuhúsið í Sandgerði og einnig
áhorfendastúkuna við knattspyrnuvöllinn.
Síðan Sandgerði fór inn í Fasteign hefur
verið samið við fyrirtækið um uppbyggingu
á íþróttamannvirkjum og stækkun skólans.
Þá var ráðist í byggingu á Vörðunni, þar
sem bæjarskrifstofur og önnur þjónusta eru
til húsa, auk íbúða. Einnig hefur verið farið
í uppbyggingu á tveimur nýjum hverfum í
›› Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, í viðtali við Víkurfréttir:
Sandgerði, Lækjamótahverfi og því sem við
köllum Hólahverfi. Allar þessar miklu fram-
kvæmdir eru rótin að skuldavanda sveitar-
félagsins“.
Gengisáhætta í samningum við
Fasteign
Í samstarfi Sandgerðisbæjar við Fasteign var
mikil gengisáhætta til staðar og sú áhætta
varð öllum sýnileg við hrunið, því þá fer hún
að hafa veruleg áhrif, segir Ólafur Þór við
Víkurfréttir. Skuldbinding í lánasamningum
við Fasteign sjást ekki í ársreikningum
sveitarfélagsins fyrr en árið 2009 þegar gert
var upp eftir nýjum reglum. Sveitarfélagið
hafði því verið að skuldbinda sig án þess
að það sæist í tölum sveitarfélagsins. Þegar
lögum um reikningsskil sveitarfélaga var
breytt, þá fóru þessar tölur að koma í ljós.
Skuldugasta sveitarfélagið á landinu
„Það er ekkert hjá því komist að horfa á
það að við erum skuldugasta sveitarfélagið
í landinu. Það hlýtur einnig að segja okkur
að ekki hafi verið farið skynsamlega í allar
framkvæmdir og að meira hafi verið gert en
við höfðum efni á“.
- Hver er megin punktur þeirrar skýrslu sem
Haraldur Líndal vinnur fyrir ykkur?
„Aðal málið er að hann greinir stöðuna eins
og hún er núna og þá er horft í skuldavanda
Sandgerðis. Hann bendir á að ekki er nóg að
taka til í rekstrinum eins og gert hefur verið
2009, 2010 og 2011. Sveitarfélagið verður
að hafa rekstrarniðurstöðu sem nýtist til að
greiða niður lán.
Fyrst núna í harkalegar aðgerðir
Fyrst núna erum við hins vegar að fara í
frekar harkalegar aðgerðir sem fólk finnur
fyrir. Við erum með samfélag þar sem hvergi
er eins mikið atvinnuleysi og í Sandgerði. Það
þolir því illa auknar álögur. Sveitarfélagið er
neytt til þess að fara með allar álögur í topp
til þess að eiga rétt á greiðslum frá t.a.m.
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, svo dæmi séu
tekin. Það er það fyrsta sem lánastofnanir
eða eigendur skulda benda á þegar reynt er
að semja, hvort ekki sé verið að nýta skatt-
stofna til fulls,“ segir Ólafur Þór.
Ekkert formlegt inngrip eftirlits-
nefndar
Sandgerðisbær er eitt af nokkrum sveitar-
félögum á landinu sem er undir skoðun hjá
eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga. Staðan
í dag er að aðeins er um eftirlit að ræða en
ekkert formlegt inngrip í rekstur sveitar-
félagsins. Skýrslan sem Haraldur vann fyrir
Sandgerði er gerð í kjölfar þess að nefndin
beindi því vinsamlega til sveitarfélagsins að
leita ráðgjafar til að fara ítarlega ofan í og
greina vanda sveitarfélagsins. Kostnaður við
þá vinnu sem Haraldur vann er að stærstum
hluta greiddur úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga. Ólafur segir að yfir Sandgerði vofi að
ef menn standi sig ekki í fjármálum sveitar-
félagins, þá verði fjármálastjórnin tekin af
sveitarfélaginu.
Bæði skuldasúpa og gullpottur
- Nú er staða Sandgerðisbæjar nokkuð sér-
stök. Á aðra hönd eruð þið að glíma við
erfiða skuldasúpu á meðan þið hafið gullpott
á hina höndina sem kallast Velferðarsjóður
Sandgerðis upp á rúmlega 1100 milljónir
króna.
„Það liggur fyrir vilji bæjarstjórnar og allir
sammála um það að þessir peningar verða
nýttir til að ná niður skuldum Sandgerðis-
bæjar“.
Ólafur segir það vandasamt verk, enda
skuldbindingar Sandgerðis flóknar. Þær eru
bæði við Fasteign og einnig Lánasjóð sveitar-
félaga.
„Þetta er flóknara ferli en svo að maður geti
mætt með peningana í tösku og greitt lánin.
Skuldir Sandgerðisbæjar hafa verið talsvert í
umræðunni á síðustu vikum. Það ætti engan að
undra því skuldirnar eru þær hæstu sem nokk-
urt sveitarfélag glímir við á Íslandi í dag. Ólafur
Þór Ólafsson leiðir bæjarstjórn Sandgerðisbæjar
í þeirri vinnu að rétta við rekstur bæjarins.
Ólafur Þór er forseti bæjarstjórnar. Víkurfréttir
tóku hann í viðtal um stöðuna í Sandgerði og
nánustu framtíð í sveitarfélaginu.
ViðtaL oG myndir: HiLmar BraGi BárðarSon
Það er ekkert hjá því komist að horfa á það að
við erum skuldugasta sveitarfélagið í landinu.
Það hlýtur einnig að segja okkur að ekki hafi
verið farið skynsamlega í allar framkvæmdir og
að meira hafi verið gert en við höfðum efni á.