Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2012, Page 12

Víkurfréttir - 12.04.2012, Page 12
12 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR „Ég hef heyrt það utan af mér að það séu margir sem halda að þessar skuldir hafi allt í einu poppað upp í ár því þær hafa verið mikið í umræðunni síðustu mánuði. Þessi staða hefur hins vegar verið kunn í nokkurn tíma og er ekki tilkomin á þessu kjörtímabili,“ segir Ólafur Þór í samtali við Víkurfréttir. „Þegar hrunið varð 2008, þá var ljóst að skuldastaða bæjarins versnaði til muna. Í kosningabaráttunni 2010 talaði ekkert fram- boðanna um að skuldavandinn væri ekki til staðar. Menn lögðu hins vegar mis mikla áherslu á vandann. Ljóst að verkefnið var mun þyngra Þegar við setjumst í meirihlutann eftir kosn- ingar þá kemur hins vegar í ljós að verkefnið er mun þyngra en menn gerðu sér grein fyrir. Ástæðan fyrir því að umræðan um skulda- vandann er svona sterk núna er m.a. vegna þess að við erum að vinna markvisst að því að taka á vandanum“. Í ljósi nýrra sveitarstjórnarlaga er ekki í boði að vera með 405% skuldir af árstekjum sveitarfélagsins. Það stenst ekki lög og bæjar- stjórn Sandgerðis því neydd til að taka á vandanum. „Þar fyrir utan vann Haraldur Líndal Har- aldsson skýrslu fyrir okkur og veitti okkur ráðgjöf sem við höfum verið að fara eftir í fjárhagsvinnu okkar. Við héldum opinn kynningarfund á innihaldi þeirrar skýrslu nú í vetur og í kjölfar þeirrar kynningar hefur verið mikil umræða í bæjarfélaginu“. Eins og hjá alkóhólistanum Ólafur Þór er ekkert að skafa af lýsingum sínum á ástandinu: „Ég hef stundum lýst þessu þannig að staðan sé eins og hjá alkó- hólistanum sem ekki getur annað en horfst í augu við vandamál sín. Raunveruleikinn er sá að við skuldum, reksturinn er of bólginn, það er staðan og við verðum að taka á henni“. - Hvað skóp þennan vanda? „Rót vandans eru mjög miklar framkvæmdir á árunum 2002 til 2009. Síðasta stóra fram- kvæmdin er viðbygging við skólann sem kostaði einn milljarð króna. Ef við skoðum hvernig staðan var í Sandgerði árið 2000 og síðan 2010 þá er ýmislegt búið að gerast á þessum tíma. Sandgerði fer inn í Fasteign árið 2004. Það mál hefur verið heitt í pólitíkinni í Sandgerði frá upphafi. Fast- eign á skólann, sundlaugina, íþróttahúsið og samkomuhúsið í Sandgerði og einnig áhorfendastúkuna við knattspyrnuvöllinn. Síðan Sandgerði fór inn í Fasteign hefur verið samið við fyrirtækið um uppbyggingu á íþróttamannvirkjum og stækkun skólans. Þá var ráðist í byggingu á Vörðunni, þar sem bæjarskrifstofur og önnur þjónusta eru til húsa, auk íbúða. Einnig hefur verið farið í uppbyggingu á tveimur nýjum hverfum í ›› Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, í viðtali við Víkurfréttir: Sandgerði, Lækjamótahverfi og því sem við köllum Hólahverfi. Allar þessar miklu fram- kvæmdir eru rótin að skuldavanda sveitar- félagsins“. Gengisáhætta í samningum við Fasteign Í samstarfi Sandgerðisbæjar við Fasteign var mikil gengisáhætta til staðar og sú áhætta varð öllum sýnileg við hrunið, því þá fer hún að hafa veruleg áhrif, segir Ólafur Þór við Víkurfréttir. Skuldbinding í lánasamningum við Fasteign sjást ekki í ársreikningum sveitarfélagsins fyrr en árið 2009 þegar gert var upp eftir nýjum reglum. Sveitarfélagið hafði því verið að skuldbinda sig án þess að það sæist í tölum sveitarfélagsins. Þegar lögum um reikningsskil sveitarfélaga var breytt, þá fóru þessar tölur að koma í ljós. Skuldugasta sveitarfélagið á landinu „Það er ekkert hjá því komist að horfa á það að við erum skuldugasta sveitarfélagið í landinu. Það hlýtur einnig að segja okkur að ekki hafi verið farið skynsamlega í allar framkvæmdir og að meira hafi verið gert en við höfðum efni á“. - Hver er megin punktur þeirrar skýrslu sem Haraldur Líndal vinnur fyrir ykkur? „Aðal málið er að hann greinir stöðuna eins og hún er núna og þá er horft í skuldavanda Sandgerðis. Hann bendir á að ekki er nóg að taka til í rekstrinum eins og gert hefur verið 2009, 2010 og 2011. Sveitarfélagið verður að hafa rekstrarniðurstöðu sem nýtist til að greiða niður lán. Fyrst núna í harkalegar aðgerðir Fyrst núna erum við hins vegar að fara í frekar harkalegar aðgerðir sem fólk finnur fyrir. Við erum með samfélag þar sem hvergi er eins mikið atvinnuleysi og í Sandgerði. Það þolir því illa auknar álögur. Sveitarfélagið er neytt til þess að fara með allar álögur í topp til þess að eiga rétt á greiðslum frá t.a.m. Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, svo dæmi séu tekin. Það er það fyrsta sem lánastofnanir eða eigendur skulda benda á þegar reynt er að semja, hvort ekki sé verið að nýta skatt- stofna til fulls,“ segir Ólafur Þór. Ekkert formlegt inngrip eftirlits- nefndar Sandgerðisbær er eitt af nokkrum sveitar- félögum á landinu sem er undir skoðun hjá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga. Staðan í dag er að aðeins er um eftirlit að ræða en ekkert formlegt inngrip í rekstur sveitar- félagsins. Skýrslan sem Haraldur vann fyrir Sandgerði er gerð í kjölfar þess að nefndin beindi því vinsamlega til sveitarfélagsins að leita ráðgjafar til að fara ítarlega ofan í og greina vanda sveitarfélagsins. Kostnaður við þá vinnu sem Haraldur vann er að stærstum hluta greiddur úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga. Ólafur segir að yfir Sandgerði vofi að ef menn standi sig ekki í fjármálum sveitar- félagins, þá verði fjármálastjórnin tekin af sveitarfélaginu. Bæði skuldasúpa og gullpottur - Nú er staða Sandgerðisbæjar nokkuð sér- stök. Á aðra hönd eruð þið að glíma við erfiða skuldasúpu á meðan þið hafið gullpott á hina höndina sem kallast Velferðarsjóður Sandgerðis upp á rúmlega 1100 milljónir króna. „Það liggur fyrir vilji bæjarstjórnar og allir sammála um það að þessir peningar verða nýttir til að ná niður skuldum Sandgerðis- bæjar“. Ólafur segir það vandasamt verk, enda skuldbindingar Sandgerðis flóknar. Þær eru bæði við Fasteign og einnig Lánasjóð sveitar- félaga. „Þetta er flóknara ferli en svo að maður geti mætt með peningana í tösku og greitt lánin. Skuldir Sandgerðisbæjar hafa verið talsvert í umræðunni á síðustu vikum. Það ætti engan að undra því skuldirnar eru þær hæstu sem nokk- urt sveitarfélag glímir við á Íslandi í dag. Ólafur Þór Ólafsson leiðir bæjarstjórn Sandgerðisbæjar í þeirri vinnu að rétta við rekstur bæjarins. Ólafur Þór er forseti bæjarstjórnar. Víkurfréttir tóku hann í viðtal um stöðuna í Sandgerði og nánustu framtíð í sveitarfélaginu. ViðtaL oG myndir: HiLmar BraGi BárðarSon Það er ekkert hjá því komist að horfa á það að við erum skuldugasta sveitarfélagið í landinu. Það hlýtur einnig að segja okkur að ekki hafi verið farið skynsamlega í allar framkvæmdir og að meira hafi verið gert en við höfðum efni á.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.