Víkurfréttir - 12.04.2012, Side 14
14 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Flugstöð Leifs Eiríkssonar fagnar aldarfjórðungsafmæli
laugardaginn 14. apríl nk. Stöðin
var opnuð formlega að við-
stöddum þrjú þúsund gestum sem
fylltu hana eins og sjá má á einni
myndinni sem tekin var í vígsl-
unni. Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Íslands vígði stöðina og
gaf henni nafnið Flugstöð Leifs
Eiríkssonar en í seinni tíð hafa
ansi margir stytt það í Leifsstöð.
Við vígsluna afhjúpaði frú Vigdís
lágmynd af Leifi Eiríkssyni.
Meðal þrjú þúsund gesta við vígsl-
una voru flest fyrirmenni landsins,
ráðherrar, þingmenn og fleiri. Í frétt
í Víkurfréttum daginn eftir vígsluna
kemur fram að með tilkomu nýju
flugstöðvarinnar hafi loks verið
aðskilið farþegaflug frá herflugi á
Keflavíkurflugvelli. Þannig lauk
þeim kafla í sögu Keflavíkurflug-
vallar að flugfarþegar þurftu að aka
bílum sínum í gegnum herhliðið.
Stöðin var alger bylting og talin
mjög tæknivædd, jafnvel sú tækni-
væddasta. Kostnaður var um 2
milljarðar. Íslenskir iðnaðarmenn
byggðu stöðina og margir Suður-
nesjamenn komu þar að verki.
Meðal annars sameinuðust rafverk-
takar frá mörgum fyrirtækjum á
svæðinu í eitt og unnu raflagna-
vinnuna við bygginguna.
Flugstöðin í
aldarfjórðung
Myndirnar efst tók Oddgeir Karlsson, ljósmyndari og sýna vel umfang
flugstöðvarinnar ári eftir stækkun hennar. Hér að ofan er mynd sem var
tekin á byggingartíma stöðvarinnar sem var frá 1983 til 1987. Til hliðar sést
inn í aðalsal flugstöðvarinnar við vígsluna 14. apríl 1987.
Hundruð tonna af hellum voru lagðar í kringum flugstöðina. Þessi mynd er frá
byggingartímanum. Myndin til hliðar sýnir umhverfið sem blasti við skammt
frá stöðinni eftir opnun hennar. Það var lagað fljótlega en allt kapp var lagt á
að opna stöðina sem fyrst. VF-myndir/pket og hbb.