Víkurfréttir - 12.04.2012, Síða 16
16 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Okkur er ráðlagt að borða a.m.k. 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag samkvæmt
ráðleggingum frá Lýðheilsustöð og
hvað er betra en að nota gómsæta
hristinga stútfulla
af næringu til þess
að uppfylla dags-
þörfina. Auðvitað
reynum við líka að
vera dugleg að borða
grænmeti og ávexti jafnt og þétt yfir
daginn í öðru formi eins og súpum,
salati, niðurskorið sem snakk, sem
álegg, o.fl. Grænir hristingar eru
hins vegar góð aðferð til þess að ná
inn grænu grænmeti sem maður
annars myndi kannski ekki borða
og fínt þegar maður er að byrja að
hafa hlutföllin 50/50 grænmeti á
móti ávöxtum og auka svo hluta
grænmetis smám saman. Hægt er að
bæta og breyta þeim að vild og gott
er t.d. að leggja möndlur í bleyti
yfir nótt og setja 2 msk af möndlum
út í morgunhristinginn eða setja avokadó út í,
gefur meiri fyllingu. Fleiri hugmyndir til þess að
fá annað bragð og önnur næringarefni gætu verið
t.d. að nota fræ, vanilluduft, klettasalat, steinselju,
kókósvatn, döðlur, grænt te í dufti,
o.fl. Frábær leið til að bæta heils-
una okkar og auka inntöku okkar á
grænmeti.
2 b vatn
2 b spínat
½ agúrka
½ grænt epli
1 b frosið mangó
1 appelsína
Smá engiferbiti
-Allt sett í blandara, bæta vökva ef
þörf.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
Grænn oG vænn
hristinGur!
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Flóamarkaður
Föstudaginn 13. apríl nk., verður haldinn
flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8,
Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 - 16:30.
FRAMHALDS
AÐALFUNDUR
Framsóknarfélags Reykjanesbæjar verður haldinn miðvikudaginn
18. apríl kl. 20:30, í félagsheimili Framsóknarmanna Hafnargötu 62.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
Stjórn Framsóknarfélags Reykjanesbæjar.
Raðnaðarfélags Suðurnesja verður haldinn föstudaginn 18. apríl
nk. í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14.
Fundurinn hefst kl. 19:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Aðalfundur
LAGNAÞJÓNUSTA
SUÐURNESJA EHF
Óskar eftir að ráða pípulagningarmeistara,
svein eða mann vanan pípulögnum sem fyrst.
Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið:
lagnaths@simnet.is
Í greinargerð bæjarstjóra Sveitar-félagsins Garðs, vegna ársreikn-
inga 2011 segir hann m.a.: Niður-
staða árseikninga 2011 sýnir að
rekstur sveitarfélagsins er á réttri
leið og nálgast jafnvægi sem er það
markmið sem stefnt er að.
Hið rétta er að ársreikningur sveitarfélagsins Garðs vegna
ársins 2011, er merkilegur fyrir
margra hluta sakir. Fyrir það fyrsta
þá staðfestir eiginfjárstaða sveitar-
félagsins, að sala á hlut þess í Hita-
veitu Suðurnesja og uppgreiðsla
skulda í kjölfarið hefur haft jákvæð
áhrif á afkomu sveitarfélags-
ins. Á síðasta ári voru 444 millj-
ónir færðar úr Framtíðarsjóði til
annarra sjóða og litar sú staðreynd
allan ársreikninginn. Millifærðar
voru 177,4 milljónir til B-hluta
fyrirtækja sem gerir það m.a. að
verkum að liðurinn „Annar kostn-
aður“ er látinn lækka samkvæmt
þeirri bókhaldsaðferð sem notuð
er. Þetta gefur í raun villandi mynd
af rekstrinum og nær hefði verið
að færa slíka millifærslu sem ein-
skiptistekjur þ.e. tekjur sem koma
aðeins einu sinni inn. Á þann hátt á
að vera auðveldara að glöggva sig á
raunverulegum rekstri. Það að nýta
sér slíka lækkun í bókhaldslegri
framsetningu eins og gert er hér, er
auðvitað bara pólitískur loddara-
skapur eins og hann gerist verstur.
Í öðru lagi hlýtur það að vekja athygli og vekja fólk til umhugs-
unar sú staðreynd að u.þ.b. 30%
af tekjum sveitarsjóðs koma frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Tekjur
sveitarsjóðs sjálfs duga því ekki
nema fyrir u.þ.b. helmingi rekstr-
arútgjalda. Á heimasíðu Jöfnunar-
sjóðs kemur fram að 10% tekna
sveitarfélaga að meðaltali koma frá
Jöfnunarsjóði. Sú staðreynd að út-
gjaldareglur Jöfnunarsjóðs taka sí-
felldum breytingum hlýtur að kalla
á umræðu innan bæjarstjórnar, því
að breytingar á þessum reglum geta
haft veruleg áhrif á afkomu bæjar-
sjóðs.
Í þriðja lagi vekur það athygli að meirihlutinn talar nú um
verulegan árangur í fjármálastjórn
þegar það liggur fyrir að breytingar
á skuldastöðu eru einvörðungu
tilkomnar vegna sölu eigna. Ekki
verður séð að einhver árangur hafi
náðst í að minnka útgjöld sveitar-
félagsins þrátt fyrir fullyrðingar
bæjarstjóra. Einvörðungu er um
að ræða leik að tölum eins og bent
hefur verið á hér á undan. Gjöld
bæjarsjóðs voru veruleg og um-
fram tekjur á síðasta ári eins og
þau voru árið 2010. Handbært fé
frá rekstri sveitarsjóðs er neikvætt
um tæpar 100 milljónir og það var
einnig neikvætt á árinu 2010.
Samkvæmt ársreikningi er hand-bært fé 675 milljónir í árslok
2011 en það var 2,4 milljarðar í árs-
lok 2008. Ekki er hægt að gera ráð
fyrir því að það muni aukast í ljósi
þeirrar staðreyndar að eiginlegur
rekstur sveitarfélagsins stendur ekki
undir sér. Þess má vænta að launa-
greiðslur sveitarfélagsins hækki á
þessu ári þar sem launaskerðingar
þær sem ákveðnir starfsmenn tóku
á sig á síðasta ári eru væntanlega að
ganga til baka á þessu ári. Einnig
má reikna með að launahækkanir
sem áttu sér stað á almennum
vinnumarkaði í febrúar sl. komi til
með að auka launagreiðslur sveitar-
félagsins.
Taka verður með í reikninginn að þegar tekjur sveitarfélags-
ins aukast þá lækkar framlag Jöfn-
unarsjóðs þannig að veruleg óvissa
verður á rekstri sveitarfélagsins.
Rekstraráætlun sem skilar jákvæðri
niðurstöðu breytir þar engu. Sé
einhver vilji til þess meðal meiri-
hluta bæjarfulltrúa að koma rekstri
sveitarfélagsins í jafnvægi hljóta
þeir að leggja fram raunhæfar til-
lögur um hvernig skera megi niður
í rekstri þannig að tekjur dugi fyrir
útgjöldum. Annars er hætt við að
handbært fé sveitarfélagsins verði
uppurið innan fárra ára og sveitar-
félagið fari að safna skuldum á
nýjan leik.
Fyrir hönd N-listans,
Jónína Holm.
Lögreglunni á Suðurnesjum var í liðinni viku tilkynnt um
mjög ölvaðan erlendan ferðalang
á hóteli í umdæminu. Hann var
sagður hafa tæmt minibarinn þar
en ekki átt peninga til að borga.
Maðurinn var fluttur á lögreglu-
stöð, að eigin beiðni, þar sem
hann fékk að sofa úr sér.
Tveimur dögum síðar, var svo lög-
reglunni tilkynnt um gest á öðru
hóteli, sem væri þar ofurölvi eftir
að hafa drukkið mikið á barnum
án þess að geta borgað. Þegar lög-
reglumenn komu á staðinn reynd-
ist vera um að ræða sama mann
og tæmt hafði minibarinn á fyrra
hótelinu. Hann var aftur fluttur í
klefa og látinn sofa úr sér.
Um miðjan dag daginn eftir var
lögreglu svo tilkynnt um ofurölvi
mann sem væri að borða súkkulaði
af afgreiðsluborði á veitingasölu í
umdæminu. Enn reyndist þar vera
hinn erlendi ferðamaður á ferðinni
og í þriðja sinn fékk hann að gista
fangaklefa. Maðurinn var sendur
úr landi á eigin vegum síðdegis
degi síðar. Ekki er allt sem sýnist
Drykkfelldur ferðalangur
gisti ítrekað á Hótel Löggu Nonni minn þín er sárt saknað og ekki síst
af mér sem hefur verið vinur þinn frá sex ára
aldri. Leiðir okkar hafa legið saman síðan
þá. Við vorum fermingarbræður og alla tíð
sem fóstbræður.
Söngurinn styrkti tengslin á milli okkar enn
betur. Þú hafðir þessa hljómþýðu bassarödd
sem naut sín vel bæði í einsöng og samsöng.
Við vorum stofnfélagar í Karlakór Keflavíkur árið
1953 og þar sungum við saman í um 50 ár.
Á 10 ára afmæli kórsins vorum við valdir í kvartett í
tilefni árshátíðar kórsins. Kvartettinn starfaði lengi
eftir þetta og nefndum við okkur Keflavíkurkvartett-
inn. Hann söng víða um landið við ýmis
tilefni og einnig við ýmsar kirkjuathafnir.
Alla tíð var mikið samband milli okkar og
fjölskyldna okkar enda bjuggum við nálægt
hvor öðrum. Veiðitúrar voru líka snar þáttur
í frístundum okkar.
Það er margs að minnast á langri ævi.
Að lokum viljum við hjónin votta Sonju og
fjölskyldunni allri, okkar dýpstu samúð.
Guð blessi ykkur.
Haukur Þórðarson og Magnea Aðalgeirsdóttir
Jón Marinó Kristinsson - minning
Sonja I. Krist nsen,
Kamilla J. Williams,
Arne I. Jónsson, Soffía Pétursdóttir,
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, Bjarni Guðmundsson,
María J. Anninos, Joseph A. Anninos,
Kristín V. Jónsdóttir, Böðvar Snorrason,
Jón Marinó Jónsson, Jóna Björk Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður og vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi.
Jón Marinó Kri tinsson,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði í faðmi
fjölskyldunnar, sunnudaginn 1. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðj daginn 10. apríl, kl.14:00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Garðvangur Garði.
www.facebook.com/grasalaeknir.is