Víkurfréttir - 12.04.2012, Page 17
17VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012
ATVINNA
Bókhaldsþjónustan í Keflavík óskar
eftir bókara í fullt starf
Um framtíðarstarf er að ræða. Viðkomandi þarf að hafa
yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á sjálfstæðum vinnu-
brögðum við tölvuvinnslu fjárhags- og launabókhalds
ásamt almennum skrifstofustörfum og traustum tengslum
við viðskiptavini.
Þekking á DK hugbúnaði er skilyrði.
Leitað er að einstaklingi með menntun sem nýtist í starfi
og persónuleika sem á auðvelt með að byggja upp
traustvekjandi samstarf við viðskiptavini, hafa áhuga á
endurmenntun og fagleglegum vinnubrögðum, sem mikil
áhersla er lögð á. Æskilegur aldur er 30 ára og eldri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Bókhaldsþjónustan hefur þjónað fyrirtækjum á
Suðurnesjum í 30 ár. Það hefur ávallt verið okkar markmið
að byggja á traustum, faglegum og persónulegum
tengslum við okkar viðskiptavini.
Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá óskast
send fyrir 25. apríl.
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Stolt Sea Farm Holdings
Iceland ehf. Rekstraraðili áformar að framleiða allt að 2000 tonn af senegal
flúru á ári til manneldis. Eldið mun verða í stöð sem staðsett verður á landi
á lóðinni að Vitabraut 7, Reykjanesi.
Skipulagsstofnun úrskurðaði þann 18. maí 2011 að að eldi á senegalflúru
(Solea senegalensis) í strandstöð, á vegum Stolt Sea Farm, við Reykjanes
virkjun HS Orku í Reykjanesbæ, sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtals
verð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Byggt
var á þessum úrskurði við umsókn rekstraraðila um starfsleyfi.
Deiliskipulag fyrir Vitabraut 7 birtist í B deild Stjórnartíðinda þann 31. janúar
s.l. Fráveita frá sjálfu eldinu mun fara í bunustokk Reykjanesvirkjunar og til
sjávar. Heilbrigðisnefnd Suðurnesjasvæðis féllst á þennan frágang fráveit
unnar á fundi 27. október 2011 en áður hafði verið gerð grein fyrir fram
kvæmdinni í áðurnefndri málsmeðferð Skipulagsstofnunar. Umhverfis
stofnun gaf umsögn um þessa lausn.
Starfsleyfistillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, á tímabilinu 28. mars til 23. maí 2012.
TILLAGA AÐ STARFSLEYFI
Athugasemdafrestur er til 23. maí 2012
Akureyri - Egilsstaðir - Ísaörður - Mývatn - Patreksörður
Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
Hellulagnir - Hleðslur - Trjáklippingar - Garðyrkja
Grjótgarðar ehf. er nýtt fyrirtæki sem sérhær sig í lóðafram-
kvæmdum, jafnt við nýbyggingar og eins viðgerðir eða endurbætur
á gömlum lóðum. Einnig tökum við að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og gróðursetningar ásamt ráðgjöf um garðinn þinn.
Hjá fyrirtækinu eru tveir faglærðir starfsmenn á sviði skrúðgarðyrkju
sem báðir hafa mikla reynslu á sviði garðyrkju og lóðaframkvæmda.
Birgir Axelsson
Skrúðgarðyrkjumeistari
Sími 867-4041
Hjalti Már Brynjarsson
Skrúðgarðyrkjufræðingur
Sími 771-4645
Ný smíðastofa var opnuð í liðinni viku í Virkjun mannauðs á Ásbrú. Það er sjálfboðaliðshópur-
inn Hugur og hönd sem stendur að opnun smíða-
stofunnar. Hún er orðin að veruleika vegna stuðn-
ings fjölmargra aðila og allt gert á sjálfboðaliðs-
grunninum. M.a. hafa BYKO og Húsasmiðjan stutt
við uppbyggingu smíðastofunnar, auk ÍAV þjónustu
og fjölda annarra fyrirtækja og einstaklinga.
Ætlunin er að smíða leikföng úr tré í þessari stofu og
þar verða einnig náin tengsl við útskurðarstofuna og
saumastofuna sem eru í sama húsi.
Kennt verður 2 sinnum í viku af sjálfboðaliðum sem
eru m.a. lærðir trésmiðir.
Það kom í hlut Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í Reykja-
nesbæ, að klippa á borða og opna stofuna formlega.
Hann lét þau orð falla við það tækifæri að stuðningur
við það starf sem unnið er í Virkjun sé mikilvægur og
það sjálfboðastarf sem þar er unnið.
Ný smíðastofa opnuð í Virkjun
Sumarið kemur í næstu viku!
Þar sem sumardagurinn fyrsti er næstkomandi fimmtudag
munu Víkurfréttir koma út miðvikudaginn 18. apríl.
Skilafrestur auglýsinga er á mánudaginn.
Auglýsingasíminn er 421 0001
Póstfang auglýsingardeildar er gunnar@vf.is
Suðurnesjamenn stóðu sig vel að venju þegar Íslandsmótið í fitness og vaxtarrækt fór fram í Háskólabíó nú um páskahelgina.
Freyja Sigurðardóttir varð þar Íslandsmeistari kvenna í fitness en
Freyja hefur verið sigursæl í þessari íþrótt um langt skeið. Ásdís
Þorgilsdóttir varð í 3. sæti í flokki kvenna eldri en 35 ára og Inga
Lára Jónsdóttir hafnaði í 6. sæti í módelfitness. Þórmundur Hall-
son hafnaði í 4 sæti í fitness karla en þetta er hans fyrsta mót. Karl
Júlíusson varð svo í 2. sæti í vaxtarrækt.
Freyja
flottust!