Víkurfréttir - 12.04.2012, Side 22
22 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson á að baki
farsælan feril sem atvinnumaður
í íþóttinni en nú fyrir skömmu
lauk lið hans í sænsku úrvals-
deildinni keppni gegn liði So-
dertalje í fyrstu umferð úrslita-
keppninnar. Tímabilið var því
ekki eins og Logi og liðsfélagar
hans í Solna Vikings óskuðu sér.
„Okkur gekk vel á móti þessu liði
í deildinni í vetur en eitthvað fór
úrskeiðis í úrslitakeppninni,“
sagði Logi í spjalli við Víkurfréttir
en persónulega gekk Loga vel á
tímabilinu sem er að ljúka um
þessar mundir. Logi skoraði 16
stig að meðaltali og var að bæta
sig í nokkrum tölfræðiþáttum.
Logi skoraði reyndar meira að
meðaltali í fyrra eða 17 stig, en þá
var hann í aðeins stærra sóknar-
hlutverki. Hann var m.a. að bæta
bæði tveggjastiga og vítanýtingu
sína á þessu tímabili.
Tveggja ára samningur Loga við
Solna rennur út núna í maí og
það er óvíst með framhaldið hjá
honum eins og er. „Klúbburinn
var ánægður með mig bæði árin
en þeir ætla að bíða og sjá hvernig
fjárhagsstaðan verður fyrir næsta
tímabil og hver þjálfar liðið. Ég er
sjálfur alveg opinn fyrir því að kíkja
á aðra möguleika hér í Svíþjóð og í
öðrum löndum. Maður þarf oft að
bíða í einhvern tíma í körfunni eftir
því hvar maður muni spila og ég er
í rauninni bara orðinn vanur því.
Það var reyndar gott að hafa gert
tveggja ára samning hér og þurfti
ég því ekki að hugsa um þetta síð-
asta sumar og vonandi get ég gert
tveggja ára samning þar sem ég
verð næst,“ segir Logi sem verður
31 árs síðar á árinu.
Logi er því kominn í sumarfrí en
hann er vanur að nýta sumarið í að
æfa af krafti. „Ég mun fara í gott frí
með fjölskyldunni og svo kem ég
heim og byrja að æfa og undirbúa
mig fyrir næsta tímabil og kom-
andi verkefni með landsliðinu,“ en
spennandi verkefni eru framundan
hjá strákunum í landsliðinu.
Landsliðsverkefnið leggst rosalega
vel í Loga og er hann spenntur að fá
að mæta nokkrum af bestu liðum
Evrópu. „Það verður mikil upplifun
að fá að spila við t.d.
Serbíu í Belgrad
en þeir eru eitt
af þremur bestu
l i ð u m h e i ms ,
e innig verður
gaman að fara til
Ísrael og spila við
þá en þeir eru risar
í evrópskum körfu-
bolta,“ segir Logi.
L o g i s e m e r
Njarðvíkingur segist hafa fylgst með
ungu strákunum frá hans heimabæ
í vetur og er hann ánægður með ár-
angur þeirra. „Ég hef fylgst vel með
Njarðvíkurstrákunum í vetur og er
ánægður með þessa stráka. Þeir eru
að uppskera eftir alla vinnuna sem
þeir hafa lagt í síðustu sumur,“ en
Logi hefur sjálfur lagt það í vana
sinn að æfa með þessum ungu
strákum þegar hann er staddur á
Íslandi. „Ég mun æfa eitthvað með
þeim í sumar og það verður bara
gaman sjá hvort maður geti haldið
í við þessa ungu punga,“ segir Logi
léttur.
Að lokum spurðum við Loga
hvernig honum litist á það að gera
ætti heimildarmynd um æskuvin
hans og liðsfélaga, Örlyg Sturluson
sem lést aðeins 18 ára að aldri.
„Það er mjög ánægjulegt að
það sé verið að gera heimildar-
mynd um Ölla og hafa framleið-
endurnir sett sig í samband við
mig. Ég mun auðvitað aðstoða
þá eins mikið og ég get ef
þeir þurfa upplýs-
ingar og viðtöl,“
sagði Logi að
lokum.
Grindvíkingar unnu sigur í fyrsta leik sínum gegn
Stjörnunni í undanúrslitum
Iceland Express-deildar karla í
körfubolta á þriðjudagskvöld.
Lokatölur urðu 83-74 í fremur
spennandi og skemmtilegum leik.
Grindvíkingar voru ávallt með
yfirhöndina í leiknum en þó tókst
þeim ekki að stinga Stjörnumenn
af og gera út um leikinn fyrr en
undir lokin.
Hátt í 600 manns voru mættir til
þess að fylgjast með rimmu Grind-
víkinga og Stjörnumanna en þarna
fara tvö af þeim liðum sem þykja
hvað líklegust til þess að hampa Ís-
landsmeistaratitlinum þetta árið.
Í hálfleik var staðan 38-35 fyrir
heimamenn en þeir gulklæddu voru
að spila fantagóða vörn á köflum.
Níu stolnir boltar í fyrri hálfleik
hjá Grindvíkingum segja kannski
sína sögu en þó náðu þeir ekki að
hrista Stjörnumenn af bakinu á sér.
„Þjálfarinn var sáttur við vörnina
en við héldum þeim í 74 stigum
sem er mjög gott. Við höfðum engar
áhyggjur af sókninni þar sem við
höfðum nóg af vopnum. Það sem
þarf að gera til að vinna er að spila
vörn. Við vorum að fá flott framlag
frá nokkrum mönnum í leiknum
en eigum þó nokkra inni, m.a. mig
sjálfan,“ sagði Sigurður Þorsteins-
son miðherji Grindavíkur í sam-
tali við Víkurfréttir að leik loknum.
„Stemningin hefði mátt vera betri
fyrir minn smekk. Það er komið
inn í undanúrslit og það hefðu mátt
vera meiri læti í stúkunni. Þetta
getur orðið hörkurimma en það
er bara undir okkur komið,“ sagði
Sigurður að lokum.
Grindvíkingar voru enn skrefinu
framar en stemningin magnaðist
upp hjá Stjörnunni í upphafi síðari
hálfleiks. Þorleifur Ólafsson sýndi
lipra takta hjá Grindvíkingum en
hann er óðum að finna sitt gamla
form. „Ég hef auðvitað verið að
glíma við meiðsli meira og minna
síðastliðin sex ár og í vetur hefur
Helgi verið að nota mig lítið.
Stundum var maður pirraður en ég
er honum þakklátur núna en ég er
að koma sterkur inn og mér líður
mjög vel,“ sagði Þorleifur Ólafs-
son en hann skoraði 16 stig og tók
7 fráköst gegn Stjörnunni. „Þetta
var skemmtilegur leikur og frábær
vörn hjá okkur. Við þurfum þó að
láta boltann ganga betur. Þetta lítur
allt mjög vel út og nú er bara næsti
leikur á þeirra heimavelli en við
ætlum okkur að sigra þar,“ sagði
Þorleifur.
Þegar 3. leikhluta lauk voru Grind-
víkingar komnir í nokkuð góð mál
og höfðu forystu 62-56. Þeir virtust
vera að landa sigrinum þegar hér
var komið við sögu. Lærisveinar
Teits Örlygssonar reyndu hvað þeir
gátu en eins og flestir körfubolta-
áhugamenn vita þá hafa Grind-
víkingar úr mörgum sterkum
leikmönnum að velja og breiddin
er fáheyrð. Það reyndist Stjörnu-
mönnum banabitinn í leiknum
að Grindvíkingar náðu að keyra á
mörgum mönnum og vörnin var
góð að vanda hjá deildarmeistur-
unum.
Á lokasprettinum reyndust heima-
menn því sterkari og Stjörnumenn
höfðu einfaldlega ekki nóg púður
til þess að fylgja Grindvíkingum
yfir endalínuna.
Logi óviss með framhaldið
Hef verið pirraður
en er þakklátur
þjálfaranum
- segir Þorleifur Ólafsson sem sýndi lipra takta í sigurleik
UMFG á Stjörnunni í fyrsta leik undanúrslitanna