Víkurfréttir - 12.04.2012, Page 23
23VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
páskafrí
Þá er góðu páskafríi lokið. Maður er kominn í eldri hópinn í liðinu
þegar tilfinningin að byrja aftur eftir fjögurra daga frí er svipuð
og eftir mánaðarfrí. Ekki það að ég hafi ekki hreyft mig í fríinu.
Ég stundaði hina ævafornu íþrótt páskaeggjaát af miklum móð.
Var nálægt því að slá Íslandsmetið í flokki súkkulaðieggja nr. 4.
Á meðan tókst mér líka að stelast í lakkríseggið hjá krökkunum
og tók ekkert aukalega fyrir það. Borðaði samt líklegast ekki jafn
mikið súkkulaði og Beggi og Sigurbergur sem unnu sitthvor 8
páskaeggin í páskalukkuhjóli liðsins. Smá sárabót fyrir hina var
að liðið í heild vann 8 egg líka. Hef aldrei séð 8 páskaegg hverfa
á jafn skömmum tíma. Þetta var eins og soltin úlfahjörð sem
hefur náð að fella lítinn hreindýrskálf. Það var súkkulaði út um
allt. Best að taka það fram samt að alla jafna eru flestir leikmenn
liðsins mjög duglegir í mataræðinu, bara ekki um páskana.
Einhverjir íþróttamenn eyddu hins vegar ekki öllu páskafríinu
í að úða í sig súkkulaði. Körfuboltinn er að ná hámarki um
þessar mundir. Því miður eru bæði Keflavíkurliðin dottin út
en önnur Suðurnesjalið líta ansi vel út. Njarðvíkurstelpurnar
eru á góðri leið með að tryggja sér titilinn þegar ég skrifa þetta
á þriðjudagskvöldi og Grindavíkurstrákarnir virðast ætla að
bæta í eftir góðan vetur. Ansi súrt að sjá stelpurnar vera með
besta liðið í vetur og vinna deildina, eiga svo slæma kaflann sinn
á versta tíma og vera dottnar út strax. Þetta er samt það sem
gerir úrslitakeppnina svona skemmtilega, eða leiðinlega í tilviki
Keflavíkur, allt getur gerst. Fleiri keppnir kláruðust um páskana.
Manchester City tókst að klúðra enska titlinum. Mér gæti ekki
verið meira sama þar sem að í mínum huga stendur City fyrir allt
sem er rangt í boltanum í dag. Það á ekki að vera hægt að kaupa
titla. Því miður er það hitt Manchester liðið sem hirðir titilinn,
veit ekki hvort mér finnst verra.
Sem betur fer er orðið ansi stutt í mótið hérna heima þannig
að maður getur hætt að fylgjast með enska boltanum (held
með Liverpool þannig að ég er löngu hættur). Menn geta farið
að dusta rykið af Keflavíkurderhúfunni og treflinum. Stoppa í
götin á gamla teppinu og þvo skítalyktina úr happaúlpunni. Hita
upp söngröddina því það er komin graslykt í loftið. Völlurinn er
orðinn grænn enda einn sá besti á landinu. Það má byrja að telja
niður og láta sig fara að hlakka til því þetta fer að bresta á. Besti
tími ársins, sumar og fótbolti, gerist ekki betra. Vonandi hlakkar
fleirum jafn mikið til og mér og sem flestir mæti á völlinn. Ef allir
leggjast á eitt þá getur það ekki klikkað, þetta verður gott sumar.
Öl
l v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl
. A
lla
r v
ör
ur
fá
st
í
BY
KO
B
re
id
d
en
m
in
na
fr
am
bo
ð
ge
tu
r v
er
ið
í
öð
ru
m
v
er
sl
un
um
.
með BYKOKlúBBnum
Búðu Betur
Vnr. 79290121
Bílkerra 1520x1200 mm. Heit-
galvaniseruð með dekkkrossvið
í botni. Nefhjól og LED ljós.
Vnr. 74830006
Einhell hekkklippur sem henta vel í garð inum.
Einkar kraftmikil eða 600W og með
53 cm spjót. Hægt að klippa greinar sem eru allt
að 15 mm sverar. Hægt er að snúa aftara hand-
fangi í allar áttir eftir því sem hentar.
skoðaðu
kerruúrvalið
á BYko.is
Frábær tilboð og ljúffengar veitingar ásamt happdrætti
með hundruðum glæsilegra vinninga.
Ef þú ert ekki einn af tugþúsundum sem eru í klúbbnum
nú þegar þá bara skráir þú þig á staðnum.
Fimmtudaginn 12. apríl, kl. 19-21
Sjáumst í byko
109.900kr.
Almennt verð 139.900 kr.
KLÚBB verð
8.990kr.
Almennt verð 12.240 kr.
KLÚBB verð
1.990kr.
Almennt verð 2.340 kr.
KLÚBB verð
14.990kr.
Almennt verð 21.990 kr.
KLÚBB verð
39.990kr.
Almennt verð 49.990 kr.
KLÚBB verð
klúBBakvöld
Vnr. 49620201
ELEGANT oAk harðparket,
eik, 8x192x1285 mm, mjög
fallegt tveggja stafa parket.
1.690kr./m2kLÚbb verð
Almennt verð
2.365 kr./m2
Vnr. 65001609
AKAI spjaldtölva.
Vnr. 55420162
JUWEL safnkassi 600 ltr.
Vnr. 51351127/8
SOUTH útiljós, staur,
103 cm, 60W, IP44,
svart eða hvítt.
Ásdís Sigurgeirsdóttir,
Einar Björn Bjarnason, Sæunn Kristinsdóttir,
Guðrún Bjarnadóttir, Pétur Gíslason,
Þórkatla Bjarnadóttir, Lúðvík Gunnarsson,
Sigurgeir Þór Bjarnason, Kristjana Halldórsdóttir,
Sveinbjörn Bjarnason, Ingibjörg Steindórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Þórarinsson,
fyrrverandi hafnarstjóri í Grindavík,
Skipastíg 22, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
laugardaginn 7. apríl. Verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 17. apríl kl. 14:00.
Kristmundur Gíslason keppti á h e i m s m e i s t a r a m ó t i
ung linga í taekwondo s em
fór fram í Egyptalandi 4.-8.
apríl og Kristmundur þar eini
fulltrúi Íslands að þessu sinni.
Kristmundur sem er 16 ára er
fyrsti keppandi Keflavíkur sem fer
á heimsmeistaramót en á mótinu
voru tæplega 800 keppendur frá
yfir 100 löndum. Kristmundur
vann sinn fyrsta bardaga og
komst því í 8 manna úrslit þar
sem hann tapaði gegn tyrkneskum
bardagamanni. Kristmundur
endaði því í 5.-8. sæti á mótinu
og er einn örfárra Íslendinga sem
hafa náð að komast áfram úr fyrstu
umferð á heimsmeistarmóti.
Kristmundur í 5.-8. sæti á HM
Þegar Víkurfréttir voru á leið í prentun áttu Njarðvíkingar og Haukar eftir
að mætast í þriðja leik liðanna um
Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta.
Njarðvíkingar gátu með sigri tryggt sér
titilinn en sjá má úrslitin á vefsíðu okkar
vf.is.