Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.04.2012, Side 12

Víkurfréttir - 26.04.2012, Side 12
12 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR Keflavíkurkirkja AÐALSAFNAÐARFUNDUR KEFLAVÍKURSÓKNAR verður sunnudaginn 29. apríl kl. 17:00 í kirkjunni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Nýr geisladiskur kórs Keflavíkurkirkju verður kynntur. Allir velkomnir. Sóknarnefnd „Staðan í verkalýðsmálunum er samofin stöðunni í atvinnu- málum svæðisins. Við höfum verið í gríðarlega miklu atvinnuleysi í langan tíma. Við höfum upplifað allar verstu hliðar atvinnuleysis í langan tíma og það er farið að fara mjög illa með okkur hér,“ segir Kristján Gunnarsson í samtali við Víkurfréttir. Að vera atvinnulaus er ömurleg staða „Að vera atvinnulaus er ömurleg staða fyrir þann sem í því lendir. Fólk er að upplifa atvinnuleysi, eignamissi og hjá sumum heimilum verður algjör upplausn. Það eru einnig mörg dæmi þess að báðar fyrirvinnur séu atvinnulausar. Við sjáum það að fleiri og fleiri eru að klára atvinnuleysisbótatímabilið og standa þá uppi með þá staðreynd að hafa verið of tekjuhá við það eitt að fá bara atvinnuleysisbætur og þurfa að vera án tekna um tíma til að fá fjárhagsaðstoð frá félags- þjónustu sveitarfélaga. Það er ekki mikið svigrúm fyrir þetta fólk að standa skil á skuldum og skyldum og eiga vart ofan í sig eða á. Við sjáum mikinn fjölda hér á svæðinu sem hefur verið að missa húsnæði sitt og svo sjáum við á eftir fólki sem er að flýja land og er að leita að lífsbjörginni erlendis“. - Hvernig er ástandið í þjóð- félaginu að koma við félagsmenn VSFK? „Félagið hefur verið með stærsta hópinn á Suðurnesjum sem hefur verið án atvinnu. Við höfum séð at- vinnuleysið fara upp undir 23% hjá félaginu en um þessar mundir sjáum við það minnka mikið og vera um 11%. Það hefur verið auglýst mikið af störfum hér nú á vordögum við afleysingar. Flugvöllurinn og flugið er að taka til sín nokkur hundruð störf í sumarafleysingar. Það hefur munað mest um það,“ segir Krist- ján. Í dag eru 342 félagsmenn í VSFK án atvinnu og Kristján segir Suður- nes vera grátt leikin af atvinnuleysi og það kemur víða fram í minnk- andi tekjum, minni viðskiptum og verkalýðsfélagið finnur verulega fyrir því þar sem atvinnuleysið kemur við sjóði félagsins. „Við höfum ekki botnlaust fé til að hall- areka okkur á móti þessari stöðu,“ segir Kristján. Hann segir að VSFK hafi verið að ráðstafa meira fé úr sjúkrasjóði út af þessu ástandi á svæðinu en áður hefur verið gert. Þá segir hann félagið aldrei hafa sett eins mikla fjármuni í fjár- hagsaðstoð eins og á síðasta ári til matarlítilla félaga sinna. - Hvað hafið þið verið að gera fyrir félaga ykkar? „Sá sem er atvinnulaus greiðir félagsgjald til okkar en þeir greiða ekki í neina aðra sjóði félagsins. Við höfum hins vegar ekki skert réttindi þessara félaga okkar. Þeir halda fullum réttindum í sjúkra- sjóði, starfsmenntunarsjóði, orlofs- sjóði og þess háttar. Við höfum litið svo á að þegar félagar okkar eru atvinnulausir og þar með í vanda, þá hjólum við ekki í þá og skerðum réttindi þeirra. Þeir hinir sem hafa vinnu og eru að borga hafa í raun tekið þetta á sig. Við gerum þetta meðvitað og munum gera eitt- hvað áfram. Við verðum samt að fara gætilega því við höfum gengið mjög nærri okkur undanfarin ár“. Miklir fjármunir í fjárhagsaðstoð Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis hefur veitt talsverðum fjármunum í Velferðar- sjóð Suðurnesja sem síðan hefur úthlutað til þeirra sem eru verst settir. Þá hefur félagið einnig verið með beina fjárhagsaðstoð við félaga sína og þá helst í desember og segir Kristján að fjárhæðirnar hafi aldrei verið eins háar og tvö síðustu ár og þær skipti milljónum króna. Bara á síðasta ári var upphæðin um 3 milljónir króna. Kristján leggur áherslu á að unnið sé markvisst að því að koma hjólum atvinnulífsins í gang að nýju. Það sé forsenda þess að skapa ný störf. „Við erum búin að sjá fullt af undirritunum, skóflustungum, borðaklippingum og allt mögulegt. Svo koma vonbrigðin á eftir. Öll þessi bið eftir því að álverið fari af stað og orkumálin öll. Það eru alltaf endalausar fréttir af frestunum og vonbrigðum. Nýjasta dæmið er kísilverksmiðjan í Helguvík. Þar hvarf erlendi samstarfsaðilinn á braut þegar rétti verðmiðinn var settur á verksmiðju í Kanada og skildi okkur eftir, eftir að hafa haldið fólki hér uppi á kjaftasnakki í marga mánuði. Nú erum við að frétta það að búið sé að undirrita samninga við nýja aðila. Hvort Margrét Einarsdóttir, Þórir Frank Ásmundsson, Sigrún Valdimarsdóttir, Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, Kristinn Edgar Jóhannsson, Hrönn Ásmundsdóttir, Snorri Ólason og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ásmundur Björn Cornelius, Vatnsholti 1d, Reykjanesbæ, hefur verið jarðsettur í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Þroskahjálp á Suðurnesjum. Þökkum samúð og vinarhug Gunnar Sveinsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ægir Magnússon, Sigurbjörn Gunnarsson, Jenný Sandra Gunnarsdóttir, Gísli B. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Harpa Hjörleifsdóttir, Þórður Haraldsson Þröstur Elfar Hjörleifsson, Dýrborg Ragnarsdóttir, Hrönn Hjörleifsdóttir, Þorgeir Kolbeinsson, Sóley Vaka Hjörleifsdóttir, Jóhann Guðnason, Bylgja Dögg Hjörleifsdóttir, Guðjón Paul Erlendsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ástrósar Eyju Kristinsdóttur, frá Norðurgarði Vestmannaeyjum til heimilis að Faxabraut 13, Keflavík Sérstakar þakkir til Heimahjúkrunar HSS og starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi fyrir sérstaklega góða umönnun. Sonja I. Kristensen, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns og vinar, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Marinós Kristinssonar. Innilegt þakklæti til alls starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði fyrir einstaka umönnun og hlýju í hans garð. Guð blessi ykkur öll. Kristján Gunnarsson hefur verið verkalýðsleiðtogi í Reykjanesbæ í tvo áratugi. Hann var að undirbúa sinn 20. aðalfund hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og ná- grennis [VSFK] þegar Víkurfréttir tóku hann tali á þriðjudagsmorgun. Verkalýðsfélagið fagnar stórum tímamótum í árslok þegar það verður 80 ára. Félagsmenn hafa þó kannski ekki ríka ástæðu til að fagna því atvinnuleysið hefur leikið félagsmenn grátt og um tíma var atvinnuleysið innan félagsins 23% en er komið niður í 11% um þessar mundir. Flugið okkar bjargvættur Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis í Víkurfréttaviðtali: Aðsendar greinar á vf.is Þó nokkuð af efni þarf að bíða birtingar í þessari viku. Þá þurftum við að færa aðsendar greinar úr blaðinu og yfir á netið. Má þar benda á svargrein frá minnihlutanum í Garði til bæjarstjóra og einnig grein sem Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður skrifar. Sjá nánar á vf.is.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.